Bjornbragi’s Weblog


Magavöðvamaður ei meir
júní 11, 2008, 10:35 am
Flokkað undir: Bakkus, Vöðvar

Image and video hosting by TinyPic

Viðar Jónsson, sem fyrr á tímum gekk undir nafninu Magavöðvamaðurinn og gat sér frægðar fyrir einstaklega lögulegan líkama, má svo sannarlega muna sinn fífil fegurri. Viðar hefur lagt lóðin á hilluna en leitast þess í stað við finna týnda drauma í flöskubotnum. Hefur hann ekki haft erindi sem erfiði. Þessi mynd var tekin af Viðari um helgina og sýnir svo ekki verður um villst að litli drengurinn með magavöðvana hefur villst af leið.



Vöðvatröll í röngum störfum
júní 10, 2008, 11:20 pm
Flokkað undir: Topp 10, Vöðvar | Tags:

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað það eru mörg störf sem maður gæti ekki með nokkru móti séð fyrir sér að maður, sem er gjörsamlega afmyndaður af vöðvum, gæti sinnt. Þá er ég ekki að meina af líkamlegum ástæðum, heldur vegna staðalímynda samfélagsins. Hef ég tekið saman topp 10 lista yfir þau störf sem vöðvatröll myndu passa verst inn í.

#10 Hárgreiðslumeistari
#9 Nefndarritari Menntamálaráðuneytisins
#8 Starfsmaður í nammisölu í bíóhúsi
#7 Seðlabankastjóri
#6 Biskup Íslands
#5 Aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
#4 Fiðluleikari
#3 Forseti Íslands
#2 Taugaskurðlæknir
#1 Náunginn sem flytur táknmálsfréttir

Það væri gaman að sjá fleiri hugmyndir…

Fleximus Maximus
Fleximus Maximus Taugaskurðlæknir sem leikur á fiðlu í frístundum.



Þegar byssurnar eiga erfitt með að festa svefn
júní 6, 2008, 10:31 pm
Flokkað undir: Vöðvar

Í gær voru vöðvarnir mínir órólegir þegar ég fór að sofa og héldu fyrir mér vöku. Sérstaklega voru byssurnar erfiðar, enda hafði ég verið að refsa þeim um morguninn. Ég þurfti að fá góðan svefn vegna þess að það var lappaæfing í morgun. Það var bara eitt í stöðunni og það var að syngja fyrir þær vögguvísu. Þess vegna song ég, við lagið Sofðu unga ástin mín, fyrir þær eina í einu:

Sofðu unga byssan mín
Úti regnið grætur
Pabbi geymir glútamín
Mysuprótein og kreatín
Á morgun ætlum við að taka fætur

Ég þarf ekki að taka það fram að byssurnar mínar sofnuðu samstundis eins og englar.

Stundum þarf að svæfa þessar elskur