Bjornbragi’s Weblog


Fleiri tvífarar – líkindin eru sláandi!
desember 9, 2008, 5:29 pm
Flokkað undir: Tvífarar

Fyrir stuttu síðan birtust fyrstu tvífararnir hér á Svínkanum og munum við halda því áfram næstu daga. Að þessu sinni birtast tveir tvífarar sem eru svo yfirgengilega líkir að viðkvæmar sálir eru varaðar við því að berja þá augum. Fyrir þá sem þurfa á áfallahjálp að halda eftir að hafa séð hvað þetta fólk er líkt hvert öðru bendum við á neyðarsíma Rauða krossins. Númerið er 1717.

Image and video hosting by TinyPic
← Glam og Sigríður Margrét →

Glam er söngvari norsku glysrokksveitarinnar Wig Wam, sem gerði garðinn frægan í Eurovision árið 2005. Sigríður Margrét er fyrrum starfsmaður Subway í Kringlunni, en hún starfaði einnig við afgreiðslu í útibúi X18 á Fiskislóð um nokkurra mánaða skeið. Glam hefur löngum þótt fremur kvenlegur í útliti á meðan Sigríður hefur haft orð á sér fyrir að líta út eins og kynskiptingur.

Líkindin eru vægast sagt sláandi. Sérfræðingar og áhugafólk um tvífara hafa leitt að því líkum að Glam sé í raun kynfaðir Sigríðar. Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur, sem hingað til hefur verið talin faðir hennar, íhugar málsókn vegna þessara fullyrðinga.

Image and video hosting by TinyPic
← Donatella Versace og Gibbon Helgi Gíslason →

Donatella er heimsfrægur ítalskur fatahönnuður og systir Gianni Versace heitins. Gibbon er þekktastur fyrir að hafa tekið þátt í söngvakeppni Versló, Vælinu, árið 2006 þegar hann söng Westlife-slagarann Flying Without Wings með unnusta sínum Salóme Herði Engilsdóttur. Þeir höfnuðu ekki í verðlaunasæti.

Grímur og Donatella bera sama húð- og háralit og andlitsfallið er sem gert eftir sama móti. Þá eru þau bæði drykkfelld og gefin fyrir tísku. Ekki er vitað til þess að Donatella sé kynmóðir Gríms, en vitað er að faðir hans dvaldi mikið á Ítalíu seinni hluta árs 1985.



Tvíburar sem voru aðskildir við fæðingu?
desember 4, 2008, 10:38 pm
Flokkað undir: Tvífarar

Þá er komið að nýjum lið á Svínkanum, en það er eitthvað sem á sér ekkert fordæmi í afþreyingarsögunni. Við á ritstjórn Svínkans ætlum að taka upp á því að birta tvífara, þ.e. tvær manneskjur sem eru sláandi líkar hvor annarri. Fyrstu tvífararnir eru svo sannarlega ekki af verri endanum. Engir tveir eru eins, segir máltækið, en þessir tvífarar afsanna það svo um munar.

Image and video hosting by TinyPic
← Sergio Ramos og Jónína Bogadóttir →

Ramos er bakvörður hjá knattspyrnuliðinu Real Madrid en Jónína er fyrrum starfsmaður veitingastaðarins Trocadero á Suðurlandsbraut. Svínkinn óskar þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með að vera eftirmynd hvors annars.