Bjornbragi’s Weblog


Skápasvínið
desember 15, 2008, 4:44 pm
Flokkað undir: Svínaverðlaunin 2008

Image and video hosting by TinyPic

Tilnefningar til Svínaverðlaunanna 2008 halda áfram og nú er komið að Skápasvíninu. Sem fyrr hvetjum við alla lesendur til að kommenta og segja skoðun sína á tilnefningunum og hver ætti að hljóta verðlaunin. Við minnum fólk líka á að halda áfram að kjósa Hvatningarsvínið og Skammarsvínið í færslunum hér á undan.

Skápasvínið eru verðlaun sem veitt verða þeim einstaklingi tengdum Svínkanum, sem er líklegastur til að vera samkynhneigður en er ekki kominn út úr skápnum. Við ákvörðun tilnefninga í þennan flokk var horft til samskipta manna við hitt kynið og sitt eigin, næmni, viðkvæmni, snyrtileika, fituprósentu, hversu vel þeir ná saman við mæður vina sinna, þekkingu þeirra á verkum ýmissa söngdíva og hversu vel lyktandi þeir eru. Með útnefningu verðlaunanna er vonast til þess að þeir sem eru fastir inni í skápnum sjái ástæðu til þess að brjótast út úr honum og hætti að lifa í felum.

Eftirtaldir eru tilnefndir til Skápasvínsins 2008:

Allan Sigurðsson
Allan er tilnefndur fyrir að vera lesbía, en ekki hommi. Allan hefur alla tíð haft gríðarlega lesbískar tilburði og hefur lifað öllu sínu lifi eins og skápalessa. Fyrst ber að nefna klippinguna en á einhvern ótrúlegan hátt hefur Allan alltaf verið klipptur eins og kona á fertugsaldri. Þá er hann gríðarlega næmur, viðkvæmur og þægilegt að tala við hann, sem verða að teljast mjög kvenlegir eiginleikar. Allan hefur vissulega mikinn áhuga á stelpum, en þorir ekki að nálgast þær af ótta við sleggjudóma samfélagsins. Allan heldur nefnilega sjálfur að hann sé kona.

Pétur Örn Svansson
Pétur hefur ekki náð að þvo af sér hommastimpilinn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og margir af bestu vinum Péturs halda enn þann dag í dag að hann sé hommi. Grunurinn er svo sterkur vegna þess að Pétur er með eindæmum snyrtilegur, hreinlegur, smekklega klæddur og með glæsilega tónað litarhaft. Þá er hann indæll, dörrast lítið og með ómþýða rödd. Að auki hefur Pétur verið gómaður við að afgreiða á kaffihúsinu Kósý og vitað er að hann hefur góð sambönd í undirgrundum hommasamfélagsins.

Haukur Harðarson
Haukur hefur öll einkenni sem góður hommi þarf að hafa og veðbankar um allan heim eru svo sannfærðir um samkynhneigð hans að þeir eru hættir að taka við veðmálum á það. Það þarf ekkert að tíunda ástæðurnar fyrir augljósri samkynhneigð, hann gefur það einfaldlega upp með augunum og brosinu. Haukur er óvenju snyrtilegur, fitusnauður, vel lyktandi og góður vinur mæðra vina sinna. Náttúruleg undirgefni hans og roluháttur öskra einfaldlega: „Gefið mér karlmann til þess að drottna yfir mér og það strax!“

Magnús Berg Magnússon / Þorsteinn Kári Jónsson
Magnús Berg og Þorsteinn Kári fá sameiginlega tilnefningu þar sem þeir eru taldir hafa þróað með sér samkynhneigt samband þrátt fyrir að hafa hvorugur verið hommi fyrir. Þannig varð saklaus vinátta þessara tveggja drengja að feitum, sameinuðum hommagelti. Einkennin eru fjölmörg, en helst ber að nefna að þeir hafa iðulega eldað saman kynlegan mat og þá er vitað til þess að þeir hafa bakað saman oftar en einu sinni. Svoleiðis gera menn ekki.

Óttar Snædal Þorsteinsson
Óttar Snædal kemur kannski svolítið óvart inn á listann, en einkennin ljúga ekki. Óttar er snyrtilegur, grannur og hnyttinn og hefur aldrei verið í ástarsambandi við stelpu sem varir lengur en opnunartíminn á Vegamótum. Þá hefur hann alla tíð verið óvenju snertifælinn gagnvart karlmönnum sem vilja gera létt kynferðislegt glens í honum. Eins og allir vita hefur það þveröfuga þýðingu og ber merki um gríðarlegt óöryggi gagnvart eigin kynhneigð.



Hvatningarsvínið
desember 14, 2008, 2:53 pm
Flokkað undir: Svínaverðlaunin 2008

Image and video hosting by TinyPic

Svínkinn heldur áfram að birta tilnefningar til Svínaverðlaunanna 2008 og nú er komið að Hvatningarsvíninu. Við biðjum alla lesendur Svínkans um að kommenta og segja skoðun sína á tilnefningunum og hver ætti að hljóta verðlaunin. Við ákvörðun sigurvegara verður tekið mikið tillit til álits almúgans. Við minnum lesendur einnig á að halda áfram að segja skoðun sína á Skammarsvíninu. Við höldum svo áfram að birta eina tilnefningu á dag næstu daga.

Hvatningarsvínið eru verðlaun sem veitt verða þeim einstaklingi er þótt hefur sína Svínkanum og starfsemi hans mesta hvatningu með því að skilja eftir athugasemdir á vefnum. Við ákvörðun tilnefninga í þennan flokk var horft til fjölda athugasemda, gæða þeirra og hversu uppbyggilegar og jákvæðar þær hafa verið. Með útnefningu verðlaunanna er vonast til þess að lesendur Svínkans fái hvatningu til þess að skilja eftir sig enn fleiri og uppbyggilegri athugasemdir og að þeir sem tilnefndir eru verði öðrum hvatning til þess að fylgja fordæmi þeirra.

Eftirtaldir eru tilnefndir til Hvatningarsvínsins 2008:

Viðar Jónsson
Haukur Harðarson
Halldór Gröndal
Jón Ragnar Jónsson
Óttar Snædal Þorsteinsson

Allir hafa þeir fylgt Svínkanum frá upphafi og skilið eftir margar og góðar athugasemdir. Eins og vitur maður sagði eitt sinn, þá eru athugasemdir fyrir blogg eins og bensín er fyrir bíl. Án þeirra væri ekki hægt að keyra bílinn sem þetta blogg er. Að sjálfsögðu hafa fleiri góðir menn verið duglegir að skilja eftir athugasemdir á Svínkanum, en því miður var aðeins hægt að tilnefna fimm.



Skammarsvínið
desember 13, 2008, 9:04 am
Flokkað undir: Svínaverðlaunin 2008

Image and video hosting by TinyPic

Í dag birtir Svínkinn fyrstu tilnefninguna til Svínaverðlaunanna 2008. Munu tilnefningar birtast daglega næstu daga. Nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að allir lesendur Svínkans kommenti, segi skoðun sína á tilnefningunum og hver ætti að hljóta verðlaunin. Við ákvörðun sigurvegara verður tekið mikið tillit til álits almúgans.

Skammarsvínið er veitt einstaklingi tengdum Svínkanum, sem hefur sýnt af sér skammarlega og óforbetranlega framkomu á árinu. Með útnefningu þessara verðlauna er vonast til þess að einstaklingurinn fái hvatningu til þess að taka sig á og laga framkomu sína.

Hannes Þór Halldórsson
Hannes er tilnefndur fyrir að hafa mig óeðlilega neðarlega á vinalistanum sínum á MySpace og gefa með því skýr skilaboð um að öll sú vinátta og ást sem ég hef gefið honum í gegnum árin var aðeins til ónýtis. Þá er Hannes orðinn óþarflega góður með sig eftir að hann fór að hanga með frægu fólki og menn fóru að tala um að hann væri kannski allt í lagi í marki. Einnig er Hannes óstundvís með eindæmum.

Þórarinn Örn Þrándarson
Þórarinn er tilnefndur fyrir að hafa tekið afar neikvæðum hamskiptum á árinu. Þórarinn var þekktur fyrir að vera hrókur alls fagnaðar og partíljón af Guðs náð. Hann fór hins vegar út að hlaupa snemma á árinu og er ekki ennþá kominn heim. Í dag er hann 15 kílóum léttari en í byrjun árs, hættur að drekka, byrjaður með stelpu og búinn að frelsast.
Uppfært: Þórarinn stíflaði klósettið hjá systur minni, sem hafði verið svo góð að hýsa hann í nokkra daga.

Gibbon Helgi Gíslason
Gibbon er tilnefndur fyrir að hafa hræðilegan tónlistarsmekk, en hann hlustar einkum á tilfinningaþrungið bandarískt háskólarokk í bland við endurútgáfur af gömlum lögum í flutningi fólks sem hefur unnið raunveruleikaþætti á borð við American Idol og Britain’s Got Talent. Gibbon er ákaflega vondur maður, illa innrættur og borðar óhollan mat.

Garðar Stefánsson
Garðar var miðpunktur í hneykslismáli sem kom upp á Svínaskeldu í fyrra, en þá yfirgaf hann veisluna alltof snemma og bar fyrir sig lélegri afsökun. Í ár bjuggust menn því við Garðari sterkari en nokkru sinni fyrr. En viti menn, Garðar mætti ekki og sýndi þar með Svínaskeldu yfirgengilega óvirðingu. Þá hefur Garðar ekki sýnt nokkra viðleitni til að styrkja vináttu sína við Svínkann eða önnur svín jarðar.
Uppfært: Garðar bauð mér ekki í útskriftarveisluna sína.

Björn Þór Ingason
Björn Þór er tilnefndur fyrir frammistöðu sína er hann sótti Kaupmannahöfn heim í haust. Bjuggust margir við því að honum fylgdi gleði og jafnvel nokkur glaumur, en það reyndist alrangt. Af einhverri óskiljanlegri ástæðu var Birni mál að kúka frá fyrstu mínútu og var alla helgina í leit að klósettum til að hægja sér á. Þá kvartaði hann ákaft yfir því að vera þunnur. Auk þess skreið hann upp í rúm til mín í útigallanum sínum, sem er auðvitað ekkert annað en rangt.