Þetta myndband er það fyndnasta sem ég hef séð á ævi minni. Ég veit ekki hvers kyns djöfull hefur tekið sér bólfestu í þessari geit, en hljóðin í henni eru svo mannleg og fáránleg að það er geðveiki. Ef ég ætti þessa geit þyrfti ég engan annan félagsskap í lífinu. Ég myndi aldrei fá nóg af henni. Hljóðið á 0:52 er svo fyndið að brisið í mér féll saman af hlátri.
Myndandið hér fyrir neðan er líka ógeðslega gott. Þessi geit er fáránlega góð á því og með eindæmum mannleg. Hún er augljóslega afar ósátt og lætur vita af því með óyggjandi hætti. Hún yrði mjög góð í mótmælin á Íslandi. Klárlega næst besta geitin á eftir geitinni að ofan.
Lýðheilsustöð varar fólk hins vegar við því að spila hljóðin í báðum geitunum á sama tíma, því þá fellur það í trans og hlýtur varanlegan heilaskaða.
Flokkað undir: Myndband
Ritstjórn Svínkans ætlaði að birta mjög góða frétt um Viðar, en þá hótaði hann því að segja öllum að Svínkinn væri með rækjutyppi og því var fréttin kæfð í fæðingu. Ég býð hins vegar upp á enn eitt myndbandið og er það einkar skemmtilegt. Smellið hér ef þið viljið kætast!

Ég er búinn að vera að æfa þennan dans og mun frumsýna hann á Kaffibarnum næstu helgi.