Bjornbragi’s Weblog


Kreppan tekur á sig nýja og skelfilegri mynd
október 3, 2008, 11:20 am
Flokkað undir: Með kreppu á bakinu

Image and video hosting by TinyPic
Kokkur án fjármagns Gott er að rífa niður búnt af íslenskum fimmþúsundkrónuseðlum og bera fram með skónum.

Það er erfitt að vera íslenskur námsmaður í útlöndum í dag. Sérstaklega í Danmörku, enda alkunna að Danir hata Íslendinga. Í liðinni viku voru samþykkt lög hér í landi, þess efnis að allir Íslendingar búsettir í Danmörku þyrftu að ganga með hvítan borða, með mynd af íslensku krónunni, um handlegg sér. Ástæðan fyrir því er sú að Danir vilja þekkja Íslendinga úr fjöldanum svo þeir geti hlegið að þeim og verið vondir við þá. Staða Íslendinga í Danmörku í dag er því ekki alls kostar ósvipuð stöðu gyðinga í Þriðja ríkinu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Við deyjum hins vegar ekki ráðalaus þrátt fyrir ólgandi fátækt og lausafjárskort. Í gærkvöldi náði ég að selja eyrun á mér í skiptum fyrir súpudisk til þess að halda mér á lífi. Í fyrstu kann það hlutskipti mitt að hljóma illa, en svo var nú aldeilis ekki. Í kjölfarið var mér boðin vinna við að leika sel í dönsku brúðuleikhúsi. Í laun fyrir hverja sýningu fæ ég 5 danskar krónur, andvirði 300 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag.

Sökum efnahagsástandsins höfum við hjónin á Bjöllastöðum eðlilega þurft að halda að okkur höndum í neyslu. Þetta er einna mest áberandi í eldhúsinu. Í fyrradag sauð ég gamla Converse-skó, sem við borðuðum með bestu lyst. Í gærkvöldi ristaði ég mér svo hulstrið af Tiger Woods 2007 leiknum mínum en Anna lét sér nægja að borða burðarpoka úr Fakta, enda er hún í aðhaldi.

Annars þarf ég engu að kvíða því ég er búin að skrifa handrit að kvikmynd sem ég á von á að selja fyrir metfé. Myndin fjallar um nokkra graða menntaskólastráka sem hugsa ekki um annað en rassa á stelpum og eru að „eltast við rassa“ dagana langa. Myndin gerist í síðustu viku og ber öll sagan mikinn keim af núverandi efnahagsástandi. Verkið heitir að sjálfsögðu Botninum náð.

Listi yfir hluti sem eru verri en núverandi efnahagsástand:
$ Að vera indónesíski trjámaðurinn.
$ Að vinna á Nonnabita.