Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi
Ég biðst andláts á því að hafa ekkert bloggað. Ástæður fyrir bloggleysi verða ekki tíundaðar, en þess heldur mun ég drepa á því helsta sem hefur drifið á daga mína með nokkrum myndum og texta. Myndir og texti eru jú eitt vinsælasta formið sem notast er við í dag til þess að koma hlutum á framfæri. Svínið lofar hins vegar skemmtilegum jólamánuði á Svínkanum, með miklu bloggi og gleði.

Mottan og rottan Vigdís Sverrisdóttir, dóttir Sverris Hermannssonar fyrrum Alþingismanns og bankastjóra, sótti Kaupmannahöfn heim og dvaldi um hríð hjá okkur hjónunum á Svínastöðum. Hér stillir Vigdís sér upp fyrir myndatöku ásamt svíninu sjálfu. Vigdís varð sér til mikillar skammar þegar hún kúkaði í útigrill fyrir utan blokkina okkar og var í kjölfarið handtekin. Þurfti hún að dvelja á hundahóteli síðustu tvær næturnar.

Glettið gamalt lag Björn Þór Ingason, sonur Inga aðstoðarskólastjóra, kom einnig til Kaupmannahafnar. Hér leikur hann lagið Áðan í útvarpinu fyrir ónefndan albanskan skiptinema, en Björn lét alla heyra af því að hann hefði lent í þriðja sæti í Vælinu á sínum tíma með einmitt þessu lagi.

Reiður og graður Björn gerði ítrekaðar tilraunir til að læða í deigið hjá Vigdísi, en án árangurs. Á endanum var honum nóg boðið og hann steypti Vigdísi í gólfið með þeim afleiðingum að hún tognaði í baki og hlaut stórt mar á síðuna. Þessi meiðsli hennar eru talin helsta ástæðan fyrir því að hún kaus að hægja sér í útigrillið fremur en í venjulegt klósett.

Hot and heavy Anna og nýi kærastinn hennar, Gibbon Helgi Gíslason, sonur Gísla Marteins Baldurssonar. Gibbon gekk áður undir nafninu Grímur, en tók upp nafnið Gibbon eftir að í ljós kom að hann er 1/4 skopparabolti og 1/4 api, en aðeins hálfur maður.

Leikur við hirðfíflið Ég að vinna Hí-Hí Dúlluson (fyrrum Haukur Harðarson, sonur Harðar bróður hans Viðars) í Pro Evolution. Hí-Hí hefur aldrei unnið Pro Evolution leik, enda er hann með bráðaofnæmi fyrir árangri. Ef hann kemst í snertingu við árangur bólgnar hann upp og hættir að geta andað. Samkvæmt læknisráði tapar hann því í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og tapar helst frekar illa.

Svínaboð á Svínastöðum Svínið og frú buðu Hí-Hí og Gibbon í mat og eldaði svínið kótilettur af sjálfu sér. Hí-Hí hyllir svínið fyrir matseldina en Gibbon er öllu skelkaðari, enda óvanur umgengni við svínið.

Loksins flottur Hér er ég búinn að finna mér lúkk sem ég er ánægður með, en það er þetta skegg sem er það vafasamasta sem sést hefur síðan Rúnar Ingi Einarsson, sonur Einars Áskels sögupersónu, varð kynþroska og fór að láta sér vaxa grön.
Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi

Af sem áður var Haraldur Gísli Sigfússon bendir til hægri, frá honum séð, sem er sú átt sem hann telur betri af tveimur slæmum kostum.
Miklar lækkanir hafa verið á öllu mögulegu í Danmörku að undanförnu og hefur það valdið talsverðu umróti víða um heim. Lækkanirnar þykja margar hverjar gefa til kynna að ekki sé allt með felldu í heiminum í dag.
Haraldur Gísli Sigfússon, námsmaður, lækkaði um 6,4 sentimetra um leið og hann vaknaði í morgun. Hann stóð í tæpum 175 sentimetrum þegar hann fór á fætur, en var 181 sentimetri á hæð þegar hann flutti til Danmerkur í lok ágúst.
Haukur Harðarson, suguþræll og blóraböggull (e. whipping boy), lækkaði fituprósentu sína úr 1,3 í 0,6. Danska landlæknisembættið sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem Haukur var aðvaraður. Verði hann ekki búinn að koma sér aftur upp fyrir 1% í fitu innan 30 daga verður honum vísað úr landi.
Björn Bragi Arnarsson, lækkaði umtalsvert í áliti hjá Magnúsi Berg Magnússyni, skólabróður sínum, en sá fyrrnefndi hefur gert ákaflega lítið í sameiginlegu 72 klukkustunda hópverkefni þeirra í kúrsinum Advanced Service Marketing. Eftir að Magnús skammaði Björn eins og hund í kaffihléi þeirra pilta í dag tók Björn hins vegar við sér í hópvinnunni og gekk lækkunin að mestu til baka. Magnús hefur nú sæmilegt álit á Birni og er talið að hópverkefnið sé ekki í hættu.
Þorsteinn Kári Jónsson, skógarhöggsmaður, lækkaði í iPodinum sínum laust fyrir klukkan 14 í dag. Þorsteinn var að hlusta á lagið Ordinary World með Duran Duran á hljóðstyrk 35, en lækkaði skyndilega niður í 20. Ekki er vitað hvað olli lækkuninni en fyrrum starfsmaður verslunarinnar Japis telur líklegt að Þorsteinn sé með eyrnabólgu.
Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi
Pétur Óskar er sigurvegari kvikmyndagetraunarinnar og hlýtur að launum veglega vinninga og mikinn heiður. Svolítið vandræðalegt að Jón Ragnar skuli hafa reynt að eigna sér heiðurinn.
Nú er ég búinn að búa í Danmörku í tæpar tvær vikur og er nánast orðinn danskur að fullu. Ég tala dönskuna reiprennandi og kann ekki lengur stakt orð í íslensku. Ég er kominn með danska kennitölu, á bara danska vini og er búinn að eignast danska fjölskyldu. Ég er meira að segja búinn að eignast tvíburadætur sem heita Pia og Peberfrugt.
Þrátt fyrir nýtt þjóðerni mitt er ég ekki enn farinn að kunna til vegar eins og hreinræktaður Dani. Um daginn var ég að hjóla í skólann og villtist svo svakalega að ég endaði í Vilníus, höfuðborg Litháen. Ástæðan fyrir því var sú að ég tók hægri beygju einum of snemma. Á myndinni að neðan má sjá leiðina sem ég fór.

Það er rétt að leiðrétta útbreiddan misskilning. Danir eru alls ekki feitir, sveittir og rauðir í framan. Þeir eru þvert á móti allir fríðir sem dádýr og með lægri fituprósentu en léttmjólk. Undanfarna daga hef ég reynt eftir fremsta megni að komast að því hvers vegna svo er, þar sem Danir drekka síst minni bjór en Íslendingar. Þeir eru greinilega á einhverju skotheldu róna-dieti.
Annar útbreiddur misskilningur meðal Íslendinga er sá að Dönum líki eitthvað við okkur Íslendinga. Þeir hata okkur. En reyndar ekki jafn mikið og þeir hata Norðmenn og Svía. Addinn ætlaði að komast til botns í málinu á dögunum og spurði danskan félaga sinn sakleysislega: “Why do you hate us?” Félaginn svaraði um hæl: “Because you took all our money!” Mér var brugðið þegar ég heyrði þetta. Nú geng ég alltaf með smekkfulla vasa af seðlum og gef dönsku fólki úti á götu, til að reyna að skila einhverju af því sem ég hef tekið frá dönsku þjóðinni.
Annars er ég kominn með frábæra viðskiptahugmynd. Ég ætla að stofna sólbaðsstofu með dönsku þema á Íslandi. Hún á að sjálfsögðu að heita Tanmörk.

Bolludagur Knattspyrnan á Íslandi er um margt ólík knattspyrnunni í Danmörku. Í Danaveldi er markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar til dæmis ekki þyngri en Elvis Presley var þegar hann fannst látinn.