Flokkað undir: Klassískar kvikmyndir
Ein af mínum uppáhalds myndum er heimildarmyndin Pumping Iron. Myndin fjallar um leiðina á Mr. Olympia vaxtaræktarkeppnina 1975 og er dúllan Arnold Schwarzenegger að sjálfsögðu miðpunkturinn. Myndin er ekki bara fyrir vöðvaelskandi fólk heldur er hún frábært kennslumyndband í því hvernig fólk á að hugsa ef það vill ná árangri, í hverju sem er.

Dæmi um speki ríkisstjórans:
I have no fear of fainting in a gym, because l know it could happen. I threw up many times while l was working out. But it doesn’t matter, because it’s all worth it.
Ríkisstjórinn vill sem sagt meina að enginn verði óbarinn biskup og það er bara alveg laukrétt hjá honum.
Fyrir ykkur sem hafið ekki séð þetta meistaraverk bendi ég á að það er hægt að horfa á hana alla á YouTube, en einhver æringi hefur halað henni þar inn. Nú svo get ég auðvitað útvegað hverjum sem er hana á tölvutæku formi, enda dreifi ég ólöglegu efni hikstalaust. Og ef einhver hefur eitthvað út á það að setja tek ég hann í kleinu.
Fyrstu mínúturnar í Pumping Iron: