Flokkað undir: Hvar ertu nú?

Á góðri stundu Addinn tekur því rólega í peysu frá Landsbankanum, sem er að öllum líkindum ekki stolin. Þess ber að geta að ekki er hægt að greina á myndinni hversu vöðvaður Addinn er orðinn í dag.
Hvar ertu nú? er nýr liður á Svínkanum. Þar verður tekið hús á mönnum sem trónuðu eitt sinn á toppi veraldar, en hafa ef til vill verið lítið í sviðsljósinu undanfarin misseri. Þess ber að geta að Kristján Sturla á hugmyndina að þessum lið og fær þakkir fyrir, enda góð. Bæði hugmyndin og Sturlan.
Þegar ég ákvað að byrja með þennan lið var aðeins einn maður sem kom til greina sem fyrsta fórnarlambið: Addinn. Addinn, eða Arnar Stefánsson eins og Þjóðskráin heldur að hann heiti, er skólabróðir minn úr Versló og ákaflega mikill meistari. Hann er fæddur árið 1983 og er líklegur til mikilla afreka í lífinu.
Hvað ertu að gera nákvæmlega núna?
„Ég er að leita mér að íbúð í Köben ásamt því að þykjast vera að vinna við tryggingar.“
Jæja góði. Hvar vinnur þú og hvert er hlutverk þitt?
„Ég er að vinna hjá Vátryggingafélagi Íslands hf. Starf mitt þar að leysa af sérfræðingana í ábyrgðartryggingunum, á meðan þeir skella sér í sumarfrí.“
Veistu eitthvað hvað þú ert að gera? Ertu ekki í raun og veru búinn að spinna þér lygavef og gera fyrirtækið að hálfgerðum leiksoppi?
„Þarna hittirðu naglann á höfuðið. Ég veit minna en ekki neitt hvað ég er að gera. Menn eru að biðja mig um að gera einhverjar starfsábyrgðartryggingar fyrir byggingastjóra, en ég geri þær aldrei. Ég er hérna einungis peninganna vegna.“
En hvers vegna ertu að leita þér að íbúð í köben?
„Ég er að fara í skóla í Lyngby og svo vil ég að sjálfsögðu elta besta vin minn, Björn Braga, sem er að fara í CBS.“
Hvað ertu að fara að læra þar?
„Dönsku og hluta af Service Management.“
Þú ert útskrifaður úr HÍ ekki satt? Hvað lærðir þú þar?
„Ég nam stjórnmálafræði og útskrifaðist með láði, eða það finnst mér allavega.“
Hvað þýðir samt „láði“ eiginlega?
„Veistu það ég veit það ekki. Ég sá þetta í einhverri bíómynd og finnst þetta í raun eiga við allt sem ég geri. Að gera eitthvað með láði hljómar bara vel.“
Þú ert harðgiftur ekki satt?
„Jú, ég er búinn að vera með stúlku sem heitir Anna Vala undanfarin þrjú og rúmlega hálft ár.“ (Innsk. blaðamanns: Kærasta Addans er belgísk og heitir í raun Luftwaffe Guðmundsdóttir.)
Hefur þú verið viðriðinn eitthvað ólöglegt síðan þú útskrifaðist?
„Vá, látum okkur sjá. Ég þarf virkilega að hugsa þetta. Ég hef ekkert verið í skipulagðri glæpastarfsemi ef þú meinar það Neibb, ég held ekki. Verð eiginlega að segja að ég er afar löghlýðinn borgari.“
Þú og Finnur Eiríks ætluðuð alltaf að endurgera kvikmyndina Blade á íslensku. Hvað varð um það?
„Það strandaði eiginlega allt á Jive-num (Innsk. blaðamanns: Jive-inn er Gunnar Hrafn Gunnarsson) og Breka Logasyni. Við vorum komnir með handrit, búnir að redda sverðum og hnífum og meira að segja búnir að ákveða lagalistann í myndinni. En þá varð Gunnar Hrafn aðeins of frægur og Breki var aðeins of töff fyrir þetta verkefni. Meira að segja þú varst búinn að samþykkja að leika eitt illmennið, þannig að það gefur auga leið að þessi mynd hefði verið golden.“
Gætir þú hugsað þér að hætta öllu sem þú ert að gera núna og fara heils hugar í Blade-verkefnið?
„Já, ég gæti það svo sem alveg. Handritið var það solid að það má alveg græða eitthvað á því. Ég meina það er ekki eins og ég sé að þjóna samfélaginu eitthvað í mínu starfi hérna hjá VÍS. Myndi hinsvegar tvímælalaust gera það með myndinni Blað IV.“
Hvað er eftirminnilegast úr versló?
„Það er svo margt maður. Hins vegar eru nokkur atriði sem standa tvímælalaust upp úr. Blakið í íþróttum, Gunnar Hrafn og Helga Björns, Vælið 2003 og Kýpur 2003 þar sem allt gerðist – þá sérstaklega ástarsagan milli Bjargar Valgeirs og Þorvalds og svo Kristínar Bergs og Þormóðs trölls. Og svo spilakvöldið ógurlega heima hjá Gunnari Hrafni þegar hann rak alla út, þar sem hann ætlaði alla leið með kærustunni sinni á þeim tíma.“
Ef þú þyrftir að vera meðlimur í einni nefnd í versló þar til þú ferð á eftirlaun, hvaða nefnd myndi það vera og af hverju?
„Allavega ekki íþró þar sem gengið sem var í henni þegar ég hætti eyðilagði hið góða mannorð sem hún hafði. Ég hugsa að ég myndi segja 12:00, því þá hefði ég ágætt tækifæri til þess að þröngva mínum húmors-hugsjónum upp á Verzlinga um ókomna tíð.“
Hvað fannst þér um mig þegar við vorum í versló? Hugsaðir þú: „Djöfull er Bjöllinn nettur“ eða „hversu athyglissjúkt er þetta fífl?“
„Eiginlega hvorugt. Ég man vel eftir því þegar ég sá þriðjubekkjarmyndina af þér fyrst og ég man greinilega að ég hugsaði með mér að þú værir kannski ekki sá myndarlegast í heimi. En síðan þegar ég sá þig í alvöru þá leistu töluvert betur út, varst eiginlega svolítið sætur. Þegar við byrjuðum síðan að „hanga“, sem er slangur yfir hitting á marmaranum, þá fannst mér þú alltaf frekar nettur. Með fullt af góðum hugmyndum og fyndinn. Alveg þangað til þú bannaðir mér að kalla þig Bjölla, þér fannst það minna þig um of á Böll. En fyrst þú ert byrjaður að kalla þig aftur Bjölla, þá ertu alveg pottþéttur gaur.“
Bannaði ég það einhvern tímann?
„Já, þú varðst alveg brjálaður þegar ég kallaði þig Bjölla. Sagðir mér vinsamlegast að hætta því þar sem þetta hljómaði eins og ég væri að kalla þig böll.“ (Svínkinn efast um þessar fullyrðingar Addans.)
Hugsaðir þú á einhverjum tímapunkti: „Þessi maður er svo ljótur að hann er ekki mennskur. Getur verið að hann sé getinn af ófreskju?“
„Vá, þetta er með fyndnari viðtölum sem hafa verið tekin við mig. Reyndar þegar ég hugsa út í það þá er þetta það eina, en það skiptir ekki öllu. Svarið við spurningunni er klárlega nei þar sem mér finnst þú ekki vera ófríður maður. Útlit þitt ber vott um stolt og glæsileika og ef ég vissi ekki að þú værir getinn af mönnum myndi ég segja að þú hefðir í þér, hvort í senn, glæsileika kentársins og krúttleika Harry Potter. Hvað stoltið varðar, þá myndi ég giska á að þú hefðir verið getinn af þessum tveimur aðilum einhvers staðar í Frakklandi, þar sem Frakkar eru afar stolt þjóð.“
Eitthvað að lokum?
„Já, ég vona eiginlega að við getum hist ofar. Þú varst einhvern tímann að tala um lunch. Þú varst reyndar fullur en mjög einlægur. Þú varst sumsé að tala um lunch með mér, Hauki og Gunna Jive þegar hann væri á landinu. Svar mitt er já, Björn Bragi. Ég væri alveg til í lunch og við ættum í alvöru að gera þetta. Skemmtikveðja, Al-Addinn“