Bjornbragi’s Weblog


Af laukum og svínum
september 8, 2008, 12:43 pm
Flokkað undir: Heimspeki

#1 Hvers vegna segir maður að eitthvað sé laukrétt?

#2 Hvers vegna segir maður að eitthvað svínvirki?

Sá sem veit svörin við þessu er vinsamlegast beðinn um að deila vitneskju sinni með lesendum Svínkans. Öðrum stendur hins vegar til boða að koma með athyglisverðar tilgátur eða hnyttin tilsvör.



Nokkrar vangaveltur
júní 5, 2008, 11:00 pm
Flokkað undir: Heimspeki

Af hverju er eftirfarandi spurning ekki meira notuð í sjónvarpsviðtölum við karlmenn: „Ertu hættur að lemja konuna þína?“ Og þeir krafðir um að svara einfaldlega já eða nei.

Munu menn einhvern tímann komast yfir það að leikmaður Þróttar heiti Michael Jackson?

Af hverju er snípur kvenna aldrei kallaður dráttarkúla?

Af hverju eru sílíkonbrjóst ekki kölluð gúmmítúttur? (Ég veit, þau eru ekki úr gúmmíi.)

Er virkilega ómögulegt að kenna dýri að tala?

Af hverju er ekkert tiltökumál að menn klæðist fótboltatreyjum í ræktinni (eða úti á götu ef þeir urðu undir í lífinu) en hins vegar yrði það litið hornauga ef menn klæddust búningum úr öðrum starfsstéttum, eins og t.d. læknaslopp, Securitas-búning eða slökkviliðsgalla?

Er mannslíf virkilega verðmætara en líf ísbjarnar?

Veltið þessum spurningum fyrir ykkur og ræðið þær við sessunaut ykkar.

Köttari
Thriller í Árbænum Michael Jackson fagnar sigurmarki sínu í leiknum.