Flokkað undir: Hann er bara svín

Gömul mynd Ég og systur mínar tvær þegar við vorum grísir.
Nokkuð hefur borið á því að fólk sem ég þekki segi mér að það hafi ekki fílað mig áður en það kynntist mér og að það hafi jafnvel talið að ég væri algjör skaufi (á neikvæðan hátt). Fremstur í flokki í þessum sleggjudómum er Haraldur Gísli Sigfússon, betur þekktur sem Haríbó Gilitrutt Salómonsson. Haraldur gekk svo langt að halda vargastefnu gegn mér í sumar og drekkti vangefnu barni í von um að leggja á mig ill álög. Hann hefur hins vegar lýst yfir eftirsjá og iðrun vegna þessara gjörða sinna og sagði á dögunum: „Björn, þú ert ekki hræðileg manneskja. Þú ert allt í lagi.“
Samfélag mannanna er beðið um að sýna skilning og jafnvel biðlund eftir því að ég þroskist og verði að manni. Haukur Harðarson, betur þekktur sem Salóme Hörður Engilsdóttir, komst svo að orði á dögunum þegar honum var nóg boðið eftir að ég hafði vélað einhvern djöfulgang gegn honum: „Þú ert með stóran heila, en litla sál.“ Þetta gætu mjög líklega verið orð að sönnu. Svínkinn biður samfélag mannanna að sýna því skilning að ég þarf að reyna að lifa með þessari erfiðu samsetningu.
Svínaverðlaunin 2008
Það er mér hins vegar ánægja að greina frá ó svo skemmtilegum fréttum. Á næstu dögum verða birtar tilnefningar til Svínkans 2008, en það eru verðlaun sem Svínkinn veitir í samstarfi við Svínaréttindafélag Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem Svínkinn er veittur og verður verðlaunað í hinum ýmsu flokkum. Má þar til dæmis nefna…
- bjartasta svínið… sem verða veitt nýliða ársins, þ.e. þeirri manneskju sem ég hef kynnst á þessu ári sem hefur skarað framúr í vináttu við mig og er jafnvel líkleg til þess að verða vinur svínsins um ókomin ár
- skammarsvínið… sem verða veitt þeirri manneskju sem hefur gefið svíninu langt nef eða verið yfir höfuð ill og grimm
- hvunndagssvínið… sem verða veitt þeirri manneskju sem hefur skarað fram úr þrátt fyrir erfiðleika eða fötlun
- besti svínapartnerinn… sem verða veitt þeirri manneskju sem hefur gert einhverja djöfulsins snilld í samstarfi við mig
- frægasta svínið… sem verða veitt frægasta vini mínum
- heiðurssvínið… sem verða veitt þeirri manneskju sem hefur unnið ötullega og af ósérhlífni að því að gera svínið að betra svíni
- skápasvínið… sem verða veitt þeirri manneskju sem er líklegust til að vera samkynhneigð, en er ekki enn komin út úr skápnum
Fylgist vel með því tilnefningarnar fara að birtast innan skamms. Allt hér á Svínkanum í desember.