Bjornbragi’s Weblog


Hollendingurinn sjúgandi
nóvember 7, 2008, 2:11 am
Flokkað undir: Hann er bara að leika við barnið

Nú hef ég upplifað margt á minni löngu og erfiðu ævi og mín gömlu augu hafa litið marga yfirskilvitlega gjörninga. Þetta myndband úr ónefndum hollenskum sjónvarpsþætti er hins vegar án nokkurs vafa það allra vafasamasta sem ég hef séð (myndband Skjaldar Eyfjörð við Fjöllin hafa vakað ekki meðtalið). Kannski er ég eitthvað gamaldags, en eitthvað segir mér að fólk muni byrja á að hringja í allavega 3-4 símanúmer áður en það fær þennan þáttastjórnanda til að passa börnin sín.