Bjornbragi’s Weblog


Góða kvöldið frá Kaupmannahöfn
september 24, 2008, 11:33 pm
Flokkað undir: Grillað í Svínka

Image and video hosting by TinyPic

Lesendur DV hafa væntanlega rekið upp stór augu þegar þeir sáu hálfan mann og hálft svín í blaðinu í dag. Það var að sjálfsögðu ég, en sagan af hnífamanninum góða rak á fjörur þeirra og var sagt frá málinu í blaðinu (sjá að ofan). Ég bíð nú spenntur eftir að Óttar Sveinsson skrifi Útkalls-bók um reynslu mína. Hún myndi væntanlega heita Útkall í lestinni.

Frá Danmörku er þó allt gott að frétta og engir fleiri hnífamenn hafa látið á sér kræla. Þó höfum við Íslendingar í Danmörku nokkrar áhyggjur af stöðu íslensku krónunnar. Hún er jú orðin jafn veik og lögfræðingurinn Andrew Beckett var á 104. mínútu kvikmyndarinnar Philadelphia. Af þeim sökum er orðið fremur dýrt að vera á lífi. Ég keypti mér til að mynda banana í dag og þurfti að greiða fyrir hann 140 þúsund íslenskar krónur, hárið á mér og allar fyllingar úr tönnunum.

Af þessum sökum hef ég tekið upp á óhefðbundum aðferðum við að verða mér úti um peninga. Ég er orðinn handrukkari. Mitt fyrsta verk var að búa til 100 þúsund króna skuld á Hauk Harðarson. Þegar hann neitaði að borga bankaði ég upp á hjá honum og tók hann í fótaklemmu. Svo kveikti ég í reiðhjólinu hans. Þá gafst hann upp og greiddi skuldina.

Og ekki nóg með það. Ég er kominn með enn eina viðskiptahugmyndina, sem ég mun bera undir Mjólkursamsöluna um jólin. Hún er sú að setja á markað jógúrt með bjórbragði. Varan mun að sjálfsögðu hljóta nafnið Bjórgúrt og verður markaðssett sem heilsusamleg lausn fyrir drykkjufólk sem vill koma sér í form án þess að setja tappann í flöskuna.

Anna er búin að gera plötusamning við Senu og gefur út sína fyrstu sólóplötu á Íslandi um jólin. Eins og gengur og gerist í bransanum þarf Anna að færa ýmsar fórnir. Skemmst er að minnast þess að Jóhanna Guðrún breytti nafninu sínu í Yohanna og Anna þarf líka að skipta um nafn. Hafa Senu-menn ákveðið að Anna taki upp nafnið Ríðu-Anna, sem skírskotun í Rihönnu.

Að lokum tel ég rétt að fara nokkrum orðum um rafrænt stríð séra Halldórs Gröndals og Jóns Ragnars. Halldór reit nýverið eftirfarandi ummæli í skoðanakerfið: „Nú hef ég blessunarlega komið í veg fyrir allar lélegar tilraunir til húmors af hálfu JR og fleiri grínista. Og afleiðingin er betra blogg og skemmtilegra skoðanakerfi.“ Fóru þau mjög fyrir brjóstið á Jóni, sem lýsti yfir stríði í kjölfarið. Ég verð að segja að ég hef mjög gaman af því að fá athugasemdir á Svínkann, hversu vitsmunalegar sem þær eru, og hvet alla lesendur til að skilja eftir sig nokkur orð. Ég þakka Gröndali fyrir góðar athugasemdir en bið hann um leið að endurskoða ummæli sín um Jón Ragnar. Sá síðarnefndi hefur verið afar ötull við að skilja eftir sig skemmtilegar athugasemdir á Svínkanum og, eins og hann benti réttilega á, eru athugasemdir bensín á vél bloggarans. Ef við höfum ekki ást fyrir hvort annað, hvað höfum við þá?

Góðar stundir.



Myndir frá Svínaskeldu 2008
júlí 7, 2008, 10:42 am
Flokkað undir: Glatt á hjalla, Grillað í Svínka

Afmæli Björns Braga, sem hlotið hefur nafnið Svínaskelda, var haldið með pompi og prakt síðasta föstudagskvöld. Veislan fór að mestu leyti friðsamlega fram, ef frá er talið leiðinlegt atvik þegar Grímur Helgi Gíslason tók bræðiskast er honum þótti dómgæslan í Svínablingi halla á sig. Grímur varð nýverið mikill stuðningsmaður knattspyrnuliðsins ÍA og útskýrist hegðun hans að einhverju leyti af því. Svínablingið endaði annars þannig að Norður-Kóreumenn sigruðu, öllum að óvörum, og skutu þar með Ísraelsmönnum, Sovétmönnum og Nasistum ref fyrir rass.

Svínkinn hefur sett inn myndir frá herlegheitunum og má nálgast þær hér, eða í tenglunum á vinstri hönd. Að neðan eru nokkrar vel valdar með útskýringum.

Image and video hosting by TinyPic
Fjölþjóðleg vinátta Viðar vílaði ekki fyrir sér að blanda geði við asíska minnihlutann.

Image and video hosting by TinyPic
Ekkert vesen núna Grímur gefur alþjóðlegt merki um að hann komi í friði. Ómar fylgist hneykslaður með, enda kom hann í þeim tilgangi að lenda í bardaga.

Image and video hosting by TinyPic
Á meðan allt lék í lyndi Það er skemmtileg tilviljun að á sama augnabliki og þessi hópmynd var tekin var Kristján Sturla að falla til jarðar. Kristján lenti fyrir aftan hópinn og lést samstundis.

Image and video hosting by TinyPic
Nakinn og reiður Óttar Snædal, sonur Jens Lehmann, sá ástæðu til að svipta sig klæðum þegar upp hófust eldheitar umræður um hvort Oliver Kahn eða faðir hans væri réttmætur handhafi treyju númer 1 hjá þýska landsliðinu.

Image and video hosting by TinyPic
Egils Lite Þú berð hann ekki utan á þér.

Image and video hosting by TinyPic
Örlagaspjöld Vöktu mikla lukku, en á sama tíma ollu þau vinslitum.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Kjarval? Viðar fékk það hlutverk að teikna Steingrím Njálsson fyrir liðsfélaga sína og tókst þeim að fatta það á innan við 10 sekúndum. Hér má sjá afraksturinn.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Donald Trump? Davíð Gill frumsýndi hárkollu sem hann lét sauma á sig í Bandaríkjunum.

Image and video hosting by TinyPic
Gleðst þrátt fyrir erfiðleika Hannes varð ánægður þegar hann komst að því að hann þyrfti ekki að taka útspörk í veislunni.

Image and video hosting by TinyPic
Tveir faggar Viðar gerir Jóni Ragnari ljóst að ef hann ætlar sér að vera tekinn alvarlega þarf hann að þjálfa latsana betur.



Leikmaður Þróttar reynist vera kona
júní 4, 2008, 8:29 pm
Flokkað undir: Grillað í Svínka, Menn með stór typpi

Í dag fékk ég símtal úr númerinu 410-6863 sem, eins og glögglega má sjá, gat ekki boðað gott. Í símanum var kona, sem hafði eftirfarandi að segja:

„Sæll Björn. Ég hringi frá skrifstofu HR. Mér þykir leitt að tilkynna þér að samstarfi HR og CBS (Copenhagen Business School) hefur verið slitið og þar af leiðandi gefst þér ekki kostur á að fara út í skiptinám næsta vetur. Í sárabætur viljum við bjóða þér upp á að sækja helgarnámskeið í Þrándheimi í Noregi. Það er reyndar aðeins dýrara, kostar um 400 þúsund krónur, en innifalið í verðinu er bók og svo verður öllum þátttakendum boðið í bíó að því loknu.“

Þarna var að sjálfsögðu um grín að ræða og var það í boði góðvinar míns, Jóns Ragnars Jónssonar. Þótti mér það sérlega fyndið. Einkum tilboðið um helgarnámskeið í Þrándheimi. Það kom hins vegar flatt upp á mig að heyra að Jón talaði með fullkominni kvenmannsrödd. Svo fullkominni að Höður hinn blindi hefði ekki getað heyrt að um karlmann væri að ræða. Ákvað ég að kanna málið og komst að raun um að Jón gekkst undir kynskiptiaðgerð í Boston í vetur. Ritstjórn þessa bloggs óskar honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann.

Starfsmaður Landsbankans og leikmaður Þróttar � Landsbankadeildinni

Óþekk stelpa Jón brá á leik þegar
hægt var um vik í bankanum.