Bjornbragi’s Weblog


Myndir frá Svínaskeldu 2008
júlí 7, 2008, 10:42 am
Flokkað undir: Glatt á hjalla, Grillað í Svínka

Afmæli Björns Braga, sem hlotið hefur nafnið Svínaskelda, var haldið með pompi og prakt síðasta föstudagskvöld. Veislan fór að mestu leyti friðsamlega fram, ef frá er talið leiðinlegt atvik þegar Grímur Helgi Gíslason tók bræðiskast er honum þótti dómgæslan í Svínablingi halla á sig. Grímur varð nýverið mikill stuðningsmaður knattspyrnuliðsins ÍA og útskýrist hegðun hans að einhverju leyti af því. Svínablingið endaði annars þannig að Norður-Kóreumenn sigruðu, öllum að óvörum, og skutu þar með Ísraelsmönnum, Sovétmönnum og Nasistum ref fyrir rass.

Svínkinn hefur sett inn myndir frá herlegheitunum og má nálgast þær hér, eða í tenglunum á vinstri hönd. Að neðan eru nokkrar vel valdar með útskýringum.

Image and video hosting by TinyPic
Fjölþjóðleg vinátta Viðar vílaði ekki fyrir sér að blanda geði við asíska minnihlutann.

Image and video hosting by TinyPic
Ekkert vesen núna Grímur gefur alþjóðlegt merki um að hann komi í friði. Ómar fylgist hneykslaður með, enda kom hann í þeim tilgangi að lenda í bardaga.

Image and video hosting by TinyPic
Á meðan allt lék í lyndi Það er skemmtileg tilviljun að á sama augnabliki og þessi hópmynd var tekin var Kristján Sturla að falla til jarðar. Kristján lenti fyrir aftan hópinn og lést samstundis.

Image and video hosting by TinyPic
Nakinn og reiður Óttar Snædal, sonur Jens Lehmann, sá ástæðu til að svipta sig klæðum þegar upp hófust eldheitar umræður um hvort Oliver Kahn eða faðir hans væri réttmætur handhafi treyju númer 1 hjá þýska landsliðinu.

Image and video hosting by TinyPic
Egils Lite Þú berð hann ekki utan á þér.

Image and video hosting by TinyPic
Örlagaspjöld Vöktu mikla lukku, en á sama tíma ollu þau vinslitum.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Kjarval? Viðar fékk það hlutverk að teikna Steingrím Njálsson fyrir liðsfélaga sína og tókst þeim að fatta það á innan við 10 sekúndum. Hér má sjá afraksturinn.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Donald Trump? Davíð Gill frumsýndi hárkollu sem hann lét sauma á sig í Bandaríkjunum.

Image and video hosting by TinyPic
Gleðst þrátt fyrir erfiðleika Hannes varð ánægður þegar hann komst að því að hann þyrfti ekki að taka útspörk í veislunni.

Image and video hosting by TinyPic
Tveir faggar Viðar gerir Jóni Ragnari ljóst að ef hann ætlar sér að vera tekinn alvarlega þarf hann að þjálfa latsana betur.



Styttist í Svínaskeldu 2008
júlí 4, 2008, 4:34 pm
Flokkað undir: Glatt á hjalla

Image and video hosting by TinyPic
Fullur eftirvæntingar Stefán Haukur Viðarsson. Myndin er tekin sumarið áður en hann byrjaði í Versló.

Afmæli Björns Braga, sem er styrkt af Svínkanum, hefst eftir tvær og hálfa klukkustund og ríkir mikil eftirvænting. „Stemningin er mjög góð. Ég fer í fordrykk klukkan 18 þar sem fagnað verður Internet-tengingu á nýja heimilinu mínu,“ segir Stefán Haukur, afmælishæsti gestur kvöldsins. „Mórallinn í hópnum er frábær og það er búinn að vera mikill stígandi í þessu hjá okkur. Nú er bara að byggja ofan á góðan árangur í afmælisveislum undanfarinna ára. En það er alveg ljóst að menn verða að leggja sig 110% fram ef þeir ætla ekki að vera í einhverri fallbaráttu á Hverfisbarnum síðar í kvöld,“ segir Stefán og hefur greinilega ekki hugmynd um að hann er orðinn alltof gamall fyrir Hverfisbarinn, sem og reyndar aðra skemmtistaði miðbæjarins.

Það er annað hljóð í Halldóri Gröndal, en hann er einn af fjölmörgum sem langaði að koma í afmælið en var ekki boðið. „Ég er mjög vonsvikinn að vera ekki í hið minnsta í úrtakshópnum. En þetta verður blóðug barátta svo ég skil að þeir allra hæfustu hafi verið valdir. Minn tími mun koma,“ segir Halldór, en kveðst skilja ákvarðanir Björns. „Miðað við þetta úrvalslið sem þú valdir, þá skil ég að mér hafi ekki verið boðið, en ég stefni að sjálfsögðu á að vera á þessum lista að ári. Ég á sjálfur eftir að eiga tvítugsafmæli og hver veit hverjum verður boðið í það,“ segir Halldór í rafrænum hótunartón.

Afmælið hefst stundvíslega klukkan 19, en þá verður boðið upp á grillaðar píkur.



Styttist í fögnuðinn – myndband til upphitunar
júlí 4, 2008, 10:40 am
Flokkað undir: Glatt á hjalla, Knattspyrna

Þetta kostulega myndband er í boði Dodda, sem flestir þekkja betur undir nafninu Kevin Nolan. Hér er Bastian Schweinsteiger í viðtali eftir úrslitaleik Þjóðverja og Spánverja á EM og verður fyrir mikilli truflun vegna fagnaðarláta hinna síðarnefndu.

Myndbandið er sérstaklega viðeigandi einmitt í dag því að Spánverjarnir sýna glögglega hvernig gestir í afmælisboði aldarinnar munu skemmta sér. Þeir sem ekki eru boðnir verða hins vegar eins og Schweinsteiger; með hneykslunarsvip og tár á kvörmum.



Ummæli leikmanna – Mikil eftirvænting ríkir
júlí 3, 2008, 10:10 am
Flokkað undir: Glatt á hjalla

Image and video hosting by TinyPicHannes Þór: Eitt af stærstu afmælum ársins
Hannes Þór Halldórsson er einn afmælisreyndasti gesturinn í ár. „Þetta er auðvitað eitt af stærstu afmælum ársins og alltaf mikil stemning. Það er mikilvægt að koma vel stemmdur í svona stóratburð,“ segir Hannes. Hann er á því að sterk liðsheild verði það sem öðru fremur mun skila afmælinu langt, en hvaða leikmenn er hann spenntastur fyrir því að sjá á stóra sviðinu?

„Það verður sérstaklega gaman að sjá hvernig Garðar Stefánsson plumar sig á meðal almennings eftir að hafa sloppið úr prísundinni,“ segir Hannes, sem hlakkar sjálfur mikið til föstudagsins. „Ég er þegar byrjaður að undirbúa mig andlega. Ég þarf auðvitað að hita lifrina vel upp og drekka ótæpilega fram að þessu, svo að ég lifi kvöldið af.“

Image and video hosting by TinyPicÓlafur Már: Langaði alltaf að prófa að fara í afmæli
„Ég verð að segja að þetta er vægast sagt stórkostleg tilfinning,“ segir Ólafur Már Ólafsson, sem er nýliðinn í hópnum en hann hefur aldrei á ævi sinni verið boðinn í afmæli. Hann játar fúslega að hann hafi þó lengi langað til þess að fara í afmæli.

„Jú, alveg frá því að ég var barn og frétti af því að það væri verið að halda afmæli. Þá langaði mig alltaf til þess að prófa að fara sjálfur í eitt slíkt,“ segir Ólafur. Nú þegar komið er að því ætlar hann svo sannarlega að nýta sénsinn. „Ég mun mæta vel hvíldur og snyrtilegur. Ég held að það sé lykilatriði.“

Image and video hosting by TinyPicKristján Sturla: Mikilvægt að almenningur fjölmenni í garðinn
Kristján Sturla Bjarnason hefur átt fast sæti í afmælum í fjölda ára og alltaf staðið fyrir sínu. „Það skiptir auðvitað gríðarlegu máli að menn fari snemma að sofa kvöldið áður og að mórallinn verði í lagi,“ segir Kristján, en er á því að til þess að afmælið heppnist sem best sé nauðsynlegt að gestir þess fái góðan stuðning þeirra sem ekki eru boðnir.

„Ég vona að fólk átti sig á því að stuðningurinn skiptir gríðarlega miklu máli og hann mun án nokkurs vafa gera útslagið. Ég vil sjá almenning fjölmenna í garðinn og styðja við bakið á okkur sem verðum inni í afmælinu,“ segir Kristján, sem vonast til að aðsóknarmet verði slegið. „Oft er þörf en nú er nauðsyn. Það er ekkert flóknara. Fyllum Þingásinn á föstudagskvöldið!“

Image and video hosting by TinyPicJón Ragnar: Ég fer með Kristjáni á klósettið til þess að skíta
Jón Ragnar Jónsson er vongóður um að hópurinn í ár geri afmælið að einu af bestu afmælum sögunnar. „Ég hef miklar væntingar vegna þess að þetta hefur verið frábært undanfarin ár. Afmælin hafa verið í mikilli sókn, sem sést best á því hversu hátt þau eru komin á styrkleikalista Alþjóða Afmælissambandsins (AA),“ segir Jón.

Jón Ragnar og fyrrnefnd Kristján Sturla eru ekki bara samherjar í afmælisboðinu, heldur eru þeir trúlofaðir og hafa átt í ástarsambandi í sjö ár. „Við gerum allt saman. Við vinnum saman í Landsbankanum og við förum meira að segja saman á klósettið niðri til þess að skíta,“ segir Jón, en kveðst aldrei hafa fundið fyrir fordómum í garð þeirra Kristjáns vegna sambands þeirra.

Image and video hosting by TinyPicÓttar Snædal: Á von á dólgslátum í Garðari
Óttar Snædal Þorsteinsson á von á sterku afmæli, en hann segir það vera einn af viðburðum ársins. „Þessi afmæli eru alltaf viss hápunktur og er það aðallega vegna þess hversu sterkur mannskapur er saman kominn í þeim. Ég á von á sterku afmæli í ár, eins og endranær, og þó að það muni hugsanlega byrja rólega og jafnvel vandræðalega þá er ég fullviss um að örlagaspjöldin munu hrista mannskapinn saman,“ segir Óttar.

Óttar man vel eftir fyrsta afmælinu sem hann mætti í hjá Birni Braga, en þar varð hann sér til skammar með því að gefa lélega gjöf. „Það er mér ákaflega minnisstætt vegna þess að ég þekkti þig lítið sem ekkert þá og gaf þér krítarnammi í afmælisgjöf. Ég ætlaði upphaflega að gefa þér nærföt, sem mér fannst fyndið í ljósi þess hvað við þekktumst lítið. Krítarnar voru ekki fyndnar, en þær voru keyptar sökum tímaskorts,“ segir Óttar. Ritstjórn Svínkans fundaði um þessa afsökun Óttars og tekur hana gilda.

Óttar tekur undir með Hannesi og segist eiga von á því að Garðar Stefánsson komi sterkur inn í hópinn að nýju. „Undanfarna mánuði hef ég fylgst náið með endurkomu anarkí-sósíalistans Garðars Stefánssonar í skemmtanalífið og bind miklar vonir dólgslæti í honum. Hins vegar hef ég miklar áhyggjur af því að Davíð Gill muni ekki ná að samlagast hópnum en hann hefur breyst mikið á undanförnum vikum,“ segir Óttar.



Afmælishópurinn tilkynntur
júlí 2, 2008, 2:14 pm
Flokkað undir: Glatt á hjalla

Afmælisvöðvafoli

Til hammó með ammó Þessi vöðvasveinn mun framreiða kökur og kaffi.

Björn Bragi Arnarsson hefur valið 20 manna hóp fyrir afmælisveislu hans sem fer fram næstkomandi föstudagskvöld, 4. júlí. Leikið verður á heimavelli í Þingási og hefst fögnuðurinn stundvíslega klukkan 19. Hópurinn er skipaður karlalandsliði fagmanna. Hér að neðan má sjá þá 20 sem valdir voru, en í svigum er fjöldi afmæla sem hver og einn hefur farið í á ævinni.

Allan Sigurðsson (22)
Davíð Gill Jónsson (4)
Garðar Stefánsson (41)
Grímur Helgi Gíslason (13)
Eiríkur Ásþór Ragnarsson (55)
Hannes Þór Halldórsson (72)
Haukur Johnson (90)
Kristján Sturla Bjarnason (44)
Jón Ragnar Jónsson (53)
Jóhann Alfreð Kristinsson (66)
Ólafur Már Ólafsson (0)
Ólafur Páll Ólafsson (37)
Ómar Þór Ómarsson (60)
Óttar Snædal Þorsteinsson (30)
Pétur Örn Svansson (69)
Stefán Bjarnason (33)
Stefán Haukur Viðarsson (104)
Steinþór Guðjónsson (42)
Viðar Jónsson (9)
Þórarinn Örn Þrándarson (74)