Flokkað undir: Getraun
Áður en við höldum áfram með tilnefningar til Svínaverðlaunanna kemur lítil gáta.
Hvað voru Jón Ragnar og Pétur Óskar að horfa á þegar ég tók þessa mynd af þeim á Skype?
Sérstök verðlaun verða veitt fyrir þann sem svarar rétt, en einnig verða veitt verðlaun fyrir áhugaverðustu tilgátuna (e. hypothesis). Þá verða enn fremur veitt verðlaun fyrir þann sem nær að afsanna þá tilgátu með gagnályktun (e. alternative hypothesis).
Ég vil einnig hvetja þá sem hafa ekki greitt atkvæði í undanförnum Svínaverðlaunaflokkum til þess að gera það hið snarasta.
Flokkað undir: Getraun
Gaurinn á myndunum hér fyrir neðan hefur breyst allsvakalega í útliti frá því að hann lék eftirminnilegt hlutverk í frægri bíómynd. Myndin kom út fyrir rúmum áratug. Hver er kvikmyndin (og hvað heitir leikarinn ef einhver er svo mikill seiðskratti að vita það líka)?
Verðlaunin fyrir rétt svar eru ekki af verri endanum, en ef einhver getur svarað þessu hlýtur hann 100.000 króna inneign á húðflúrstofunni Tattoo 69 á Hverfisgötu og árs áskrift að tímaritinu Frjáls þjóð.


