Bjornbragi’s Weblog


Að eiga rétta mynt
október 7, 2008, 12:03 am
Flokkað undir: Fjármálafréttir

Image and video hosting by TinyPic
Gambískt dalasí Jafnast næstum því á við góða myntu.

Þann 20. júlí 2007 fékk ég vitrun. Þá birtist mér í draumi austurríski hagfræðingurinn Eugen von Böhm-Bawerk og sagði mér að honum þætti afar líklegt að íslenska krónan myndi ekki styrkjast frekar, heldur taka að veikjast. Fyrst rólega en síðan af miklum þunga, líkt og snjóbolti sem rúllar niður fjallshlíð – beint til helvítis. Þennan ágæta dag var gengisvísitalan í 110.

Ég lét ekki segja mér það tvisvar, heldur fór beinustu leið út í banka og tók út alla fjármuni sem ég átti og seldi krónurnar í skiptum fyrir gambískt dalasí. Nú, tæpum 15 mánuðum síðar, er ég orðinn svo ríkur að eignir mínar nema fimmfaldri vergri landsframleiðslu íslenska ríkisins.

Í öðrum fréttum af gjaldmiðlum má nefna að gengi myntunnar hefur styrkst umtalsvert gagnvart krónunni undanfarna daga. Í SuperBrugsen var í dag hægt að kaupa myntupakka, með 100 myntum, á 260 krónur íslenskar. Sem þýðir að myntan er 2,6 sinnum verðmætari íslenska krónan í dag.



Hálf-tólf fréttir greiningardeildar Svínkans
október 1, 2008, 11:33 pm
Flokkað undir: Fjármálafréttir

Image and video hosting by TinyPic
Kreppan svíður Starfsmenn Glitnis gráta fyrir utan höfuðstöðvar fyrirtækisins á Kirkjusandi í dag, eftir að tilkynnt var að Glitnir myndi hætta allri fjármálastarfsemi og gerast myndbandaleiga og sólbaðsstofa.

Krónan deyr í lok þessa árs og myntur verða teknar upp
Krónan hefur veikst gríðarlega það sem af er þessu ári. Í dag kostar ein evra 800 þúsund íslenskar krónur og sál úr íslensku barni, en fyrir réttu ári var gengi evrunnar hins vegar tæpar 90 krónur íslenskar. Danska krónan hefur sömuleiðis lækkað óguðlega. Sem dæmi um það má nefna að fyrir ári kostaði bíómiði í Danmörku um 1.000 krónur íslenskar, en vilji Íslendingur fara í bíó í Danmörku í dag þarf hann að hoppa í gegnum eldgjörð og afsala að minnsta kosti einu líffæri úr sér.

Greiningardeild Svínkans telur að krónan muni halda áfram að lækka út þetta ár og verða að lokum verðlaus með öllu, að undanskildu innra virði (e. intrinsic value). Það er, að hún verði einungis nytsamleg sem bréfsefni eða klósettpappír. Í framhaldi af því er líklegt að myntur verði teknar upp sem gjaldmiðill og Ísland verði fyrst þjóða til að ganga í Myntubandalagið.

Haukur Harðarson gefur út afkomuviðvörun
Haukur Harðarson, námsmaður, hefur gefið út afkomuviðvörun vegna afkomu sinnar á seinni helmingi þessa árs. Í tilkynningunni kemur fram að vegna ferðar Hauks til Malmö fyrr í haust, þar sem drjúgar fjárhæðir fóru í fatakaup, auk óhóflegrar eyðslu í húsgögn í nýja íbúð sem hann fluttist í, hafi hann tekið á sig mikla verðmætarýrnun. Hlutabréf í Hauki hafa lækkað um 31% í þessari viku. Sérfræðingar telja líklegt að svo fari að Grímur Helgi Gíslason, vinur Hauks til margra ára, muni yfirtaka hann.

Þorsteinn Kári og Magnús Berg sameinast
Þorsteinn Kári Jónsson og Magnús Berg Magnússon hafa loks sameinast, eftir langar viðræður þeirra í millum. Þorsteinn og Magnús hafa verið nánast óaðskiljanlegir undanfarin misseri og komust að þeirri niðurstöðu að það væri fjárhagslega hagkvæmast fyrir þá að verða eitt. Í því felst í grófum dráttum að þeir munu búa saman, fá sameiginlega kennitölu og eiga reglubundin holdleg samræði. Eftir sameininguna hafa þeir hlotið nafnið Marsteinn Bári.