Bjornbragi’s Weblog


Ástand heimsins í dag – fyrsti kapítuli
júlí 17, 2008, 11:30 pm
Flokkað undir: Ekki hlægja að honum. Annars hættir hann aldrei.

Níðst á minni máttar Svínkinn fer illa með vini sína.

Svínkinn biðst innilegrar afsökunar á bloggleysi, en hann hefur þjáðst af gin- og klaufaveiki. Hér verður drepið á því helsta sem komið hefur upp í þjóðfélaginu undanfarna daga.

- Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram og formaður Videonefndar, var valinn feitasti leikmaður Íslandsmótsins af áskrifendum Stöð 2 Sport. Hannes hlaut jafn mörg atkvæði og Björgólfur Takefusa, leikmaður KR, en þar sem Hannes er með hærri fituprósentu en Björgólfur, eða 46%, hlaut hann útnefninguna. Hannes hlýtur að launum áskrift að Stöð 2 Sport í eitt ár og kassa af Doritos með Cool American bragði.

- Þvert á móti hefur Haukur Harðarson horast niður sem aldrei fyrr. Haukur stefnir sem kunnugt er á þátttöku í Norðurlandamótinu í anorexíu, sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í október, en lágmarksþyngd á mótið er 48 kíló. Haukur er 52 kíló í dag og er nýlega byrjaður á svokölluðum “Crash Diet” megrunarkúr. Kúrinn gengur í meginatriðum út á að hann má aðeins innbyrða mat sem tekur meira en þrjár sekúndur að falla í jörðina þegar honum sleppt úr opnum lófa í axlarhæð. Um er að ræða mat eins og lauf, flugur, klósettpappírssnifsi og einhverjar tegundir af mjöli.

- Svínkinn sjálfur er kominn með íbúð í Danmörku, en þangað flytur hann 24. ágúst næstkomandi. Svínkinn mun búa í Tal-kúlutjaldi, sem hefur verið komið fyrir á Kongens Nytorv, og mun deila því með róna. Greiðir hann í leigu 100 krónur danskar á mánuði, andvirði 13,6 milljóna íslenskra króna.

- Þórarinn Blær Sólveigarson hefur sent skriflega beiðni á alla prent- og ljósvakamiðla á Íslandi um að birta ekki myndir sem voru teknar af honum og 13 ára stúlku í ástaratlotum í Rauðavatnsskógi. Þórarinn, eða Rauðavatnsfitlarinn eins og hann var kallaður í DV á miðvikudaginn, hélt því upphaflega fram að stúlkan væri systir hans og hann væri einfaldlega að „sýna henni svolítið.“ Síðar kom á daginn að hún hafði engin tengsl við hann. Þórarni er auk þess gert að sök að hafa berað sig í vefmyndavél í msn-samskiptum við ungar stúlkur. Fólki er ráðlagt að gæta sín á netfanginu torres_boy69@hotmail.com, en það er netfang Þórarins.

- Ómar Þór Ómarsson hefur lagt lokahönd á unglingabókina Strákar eins og við sem hann ætlar að gefa út um jólin. Auk þess mun Ómar standa fyrir sjálfshjálparnámskeiði fyrir „unga og hressa stráka sem hafa orðið utanvelta í þjóðfélaginu“ eins og segir í auglýsingu frá Ómari sjálfum.

- Grímur Helgi Gíslason er búinn að bóka tíma í svuntuaðgerð í Kína, en aðgerðin er svo umfangsmikil og vafasöm að hana má ekki framkvæma í neinu ríki sem á aðild að Schengen-sáttmálanum. „Nú get ég ekki meir,“ sagði Grímur þegar Svínkinn náði tali af honum, en hann hefur fitnað um liðlega 90 kíló frá því í ársbyrjun. Ástæðuna má rekja til þess að þegar kreppan skall á tók Grímur dramatíska ákvörðun um að borða alla lausa- og fastafjármuni sína, með fyrrgreindum afleiðingum.

- Óttar Snædal Jensson á hins vegar ráð undir hverju rifi í kreppunni, enda útskrifaður hagfræðingur úr Trúðaskóla Íslands. Óttar seldi tímaritinu Séð og heyrt hárið á sér, DVD-tónleika með Uriah Heep og þrjá brandara úr eigin safni. Fyrir það hlaut hann 10 happaþrennur og bol.

- Davíð Gill Jónsson gekk hins vegar ennþá lengra og seldi stafina D, í og ð úr fyrra nafninu sínu og allt nafnið Gill. Þar af leiðandi heitir hann einfaldlega av Jónsson í dag. Kaupandinn er ónefndur kaupsýslumaður frá Mið-Austurlöndum.

- Allan Sigurðsson var á þriðjudag útnefndur „minnst asískasti Asíubúi jarðar“ við athöfn í Norræna húsinu. Dómnefnd mat svo að þeir eiginleikar Allans að vera húðlatur, gráðugur og eyðslusamur væru ekki í takt við asíska arfleið hans og því átti hann titilinn vísan. Í þakkarræðu greindi Allan frá því að hann væri í raun og veru frá Grænlandi og hefði siglt til Íslands frá Kangerlussuaq á sjókajak árið 1993.