Gleðileg jól
desember 24, 2008, 8:37 am
Flokkað undir: Það er allt breytt vegna svín
Flokkað undir: Það er allt breytt vegna svín
Svínkinn óskar landsmönnum öllum, svínum og öðrum skepnum jarðar gleðilegra jóla. Um leið biðst hann afsökunar á þeim töfum sem orðið hafa á Svínaverðlaununum. Þær eru til komnar vegna þess að ég var að klára próf í skólanum og þurfti í kjölfarið að ganga frá íbúðinni minni í Kaupmannahöfn og skila henni. Einhvers staðar í millitíðinni var mér einnig gert að mæta í réttarhöld yfir hnífamanninum hressa og vitna gegn honum. En tilnefningar til Svínaverðlauna halda áfram að birtast á morgun eða hinn og verðlaunin sjálf verða svo veitt á gamlársdag.
12 Ummæli
