Bjornbragi’s Weblog


Skápasvínið
desember 15, 2008, 4:44 pm
Flokkað undir: Svínaverðlaunin 2008

Image and video hosting by TinyPic

Tilnefningar til Svínaverðlaunanna 2008 halda áfram og nú er komið að Skápasvíninu. Sem fyrr hvetjum við alla lesendur til að kommenta og segja skoðun sína á tilnefningunum og hver ætti að hljóta verðlaunin. Við minnum fólk líka á að halda áfram að kjósa Hvatningarsvínið og Skammarsvínið í færslunum hér á undan.

Skápasvínið eru verðlaun sem veitt verða þeim einstaklingi tengdum Svínkanum, sem er líklegastur til að vera samkynhneigður en er ekki kominn út úr skápnum. Við ákvörðun tilnefninga í þennan flokk var horft til samskipta manna við hitt kynið og sitt eigin, næmni, viðkvæmni, snyrtileika, fituprósentu, hversu vel þeir ná saman við mæður vina sinna, þekkingu þeirra á verkum ýmissa söngdíva og hversu vel lyktandi þeir eru. Með útnefningu verðlaunanna er vonast til þess að þeir sem eru fastir inni í skápnum sjái ástæðu til þess að brjótast út úr honum og hætti að lifa í felum.

Eftirtaldir eru tilnefndir til Skápasvínsins 2008:

Allan Sigurðsson
Allan er tilnefndur fyrir að vera lesbía, en ekki hommi. Allan hefur alla tíð haft gríðarlega lesbískar tilburði og hefur lifað öllu sínu lifi eins og skápalessa. Fyrst ber að nefna klippinguna en á einhvern ótrúlegan hátt hefur Allan alltaf verið klipptur eins og kona á fertugsaldri. Þá er hann gríðarlega næmur, viðkvæmur og þægilegt að tala við hann, sem verða að teljast mjög kvenlegir eiginleikar. Allan hefur vissulega mikinn áhuga á stelpum, en þorir ekki að nálgast þær af ótta við sleggjudóma samfélagsins. Allan heldur nefnilega sjálfur að hann sé kona.

Pétur Örn Svansson
Pétur hefur ekki náð að þvo af sér hommastimpilinn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og margir af bestu vinum Péturs halda enn þann dag í dag að hann sé hommi. Grunurinn er svo sterkur vegna þess að Pétur er með eindæmum snyrtilegur, hreinlegur, smekklega klæddur og með glæsilega tónað litarhaft. Þá er hann indæll, dörrast lítið og með ómþýða rödd. Að auki hefur Pétur verið gómaður við að afgreiða á kaffihúsinu Kósý og vitað er að hann hefur góð sambönd í undirgrundum hommasamfélagsins.

Haukur Harðarson
Haukur hefur öll einkenni sem góður hommi þarf að hafa og veðbankar um allan heim eru svo sannfærðir um samkynhneigð hans að þeir eru hættir að taka við veðmálum á það. Það þarf ekkert að tíunda ástæðurnar fyrir augljósri samkynhneigð, hann gefur það einfaldlega upp með augunum og brosinu. Haukur er óvenju snyrtilegur, fitusnauður, vel lyktandi og góður vinur mæðra vina sinna. Náttúruleg undirgefni hans og roluháttur öskra einfaldlega: „Gefið mér karlmann til þess að drottna yfir mér og það strax!“

Magnús Berg Magnússon / Þorsteinn Kári Jónsson
Magnús Berg og Þorsteinn Kári fá sameiginlega tilnefningu þar sem þeir eru taldir hafa þróað með sér samkynhneigt samband þrátt fyrir að hafa hvorugur verið hommi fyrir. Þannig varð saklaus vinátta þessara tveggja drengja að feitum, sameinuðum hommagelti. Einkennin eru fjölmörg, en helst ber að nefna að þeir hafa iðulega eldað saman kynlegan mat og þá er vitað til þess að þeir hafa bakað saman oftar en einu sinni. Svoleiðis gera menn ekki.

Óttar Snædal Þorsteinsson
Óttar Snædal kemur kannski svolítið óvart inn á listann, en einkennin ljúga ekki. Óttar er snyrtilegur, grannur og hnyttinn og hefur aldrei verið í ástarsambandi við stelpu sem varir lengur en opnunartíminn á Vegamótum. Þá hefur hann alla tíð verið óvenju snertifælinn gagnvart karlmönnum sem vilja gera létt kynferðislegt glens í honum. Eins og allir vita hefur það þveröfuga þýðingu og ber merki um gríðarlegt óöryggi gagnvart eigin kynhneigð.


25 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Bjössi, búðu þig undir þetta: http://www.buzzle.com/editorials/1-21-2003-34073.asp

ps. Hef ekki hlegið svona mikið frá því að ég og Haukur Johnson fórum í teboð hjá mömmu þinni!

Comment af Haukur Harðarson

Ég verð að kjósa Magnús og Þorstein, allt eftir að Magnús sagði mér frá kleinuhringjahægðum sínum að þá hefur ekki ögn af mér haldið annað en að þeirra samkynhneigð sé komin til að vera.

Comment af Halli

Ég verð að vera sammála Halla.
Ég ákvað í nóvember síðastliðnum að heimsækja vin minn hann Magnús Berg alla leið til kóngsins köben. Á meðan dvöl minni stóð reyndi ég ítrekað að eyða tíma með Magnúsi en allt kom fyrir ekki. Ég endaði alltaf með Grími helga og Birni Braga sem ég ætlaði vissulega að heilsa uppá líka, en eyddi töluvert meiri tíma með þeim en ég hafði fyrirfram reiknað með í upphafi. Þannig á meðan að ég var með Grími og Bjössa var Magnús með Þorsteini að búa til kleinuhringi.
Ég vill þó leiðrétta þann miskilning sem Þorsteinn var að reyna að breiða út að ég væri hommahatari. Það á við engin rök að styðja og ég mundi fagna því og veita sambandi Þorsteins og Magnúsar blessun ef af yrði.

Comment af Björn Þór

pétur svansson er augljóslega sá kynvilltasti á þessum lista. óþarfi að útskýra það eitthvað nánar.

Comment af Óli Páll

Djöfull er þetta skemmtilegt blogg..!

en já ég hef ákveðið að velja Allan því hann á sér svo óljósan uppruna…

Comment af Kristján Sturla

mjög skemmtileg fréttin af Tom Cruise “ertu að segja að ég sé hommi! okei ég kæri þig”
en Haukur Harðarson fær atkvæðið mitt, mjög öflugur áróður frá Svínkanum sjálfum er að skila þessu atkvæði í hús.

Comment af Óli Már

Nei Björn Þór, nú verð ég að stöðva þig. Augljóslega vísa ég til kosningar um skammarsvínið þar sem farið er ofan í hegðun þína hérna í Kaupmannahöfn á dögunum. Ef ég hefði ætlað að umgangast þig mikið meira en ég gerði þá hefði ég líklegast þurft að eyða meiri tíma á: a) klósettinu þar sem þú eyddir um það bil helming dvalarinnar, b) Við rúmstokkinn hjá þér þar sem þú stundir “Fokk hvað ég er þunnur, djöfull þarf ég að eyðileggja klósettið hjá þér”. c) H&M.

Lögfræðiteymi mitt hefur sameinast lögfræðiteymi Hauks sem mun nú kanna grundvöll lögsóknar á hendur Svínka ehf.

Comment af Magnús

ég get ekki veitt Hauki atkvæði mitt þar sem það myndi koma mjög illa út fyrir mig, við höfum eytt svo miklum tíma saman. Þó að hann sé náttúrulega klárlega hommi. Jú ég kýs hann, það er svo augljóst

Comment af Grimur

Fátt myndi kæta mig meira en að fá sameiginlega lögsókn frá ykkur sex sem eruð tilefndir í þessum flokki. Þið yrðuð að sjálfsögðu kallaðir „hinir samkynhneigðu sex“ í fjölmiðlum.

Comment af bjornbragi

Hiklaust Haukur Harðarsson

Comment af Davíð Heimir

Ég þori ekki að velja neinn á þessum lista enda eru þetta allt prúðir og fallegir piltar. Vil bara koma því á framfæri að þetta blogg er að stytta manni stundirnar svo um munar hér í Boston..

áfram svona,

kv. pets

Comment af Pétur Óskar

Haukur Harðarson er of smart drengur til að kjósa hann ekki.

Comment af Halldór Gröndal

Ég set mitt atkvæði á Óttar Snædal. Einungis sú staðreynd að hann eigi þessa grænu mussa sem hann gengur í daglega, stundum ber undir, er nóg fyrir mig.

Comment af Ómar Þór

Magnús Berg/Þorsteinn Kári tvíeykið.

Sjáið bara hvað þeir eru fallegir saman

Comment af Ari

Ef að hinir “samkynhneigðu” sex væru ekki að undirbúa lögsókn sem mun setja nýja standarda í refsiaðgerðum gagnvart ærumeiðingum og rógburði þá myndi ég líklega kjósa sjálfan mig, enda hef ég átt all verulega samkynhneigt ár með Magnúsi. Ég hinsvegar vil benda á það að á myndinni af okkur Magnúsi hérna ofar erum við einmitt að staupa tequila með karamellubragði í hinni hommalegu borg Liverpool þar sem við tókum alltof marga göngutúra niðrá höfn í vetur. Til hamingju með að finna þá allra hommalegustu mynd sem til var af okkur Magnúsi.
En þar sem að þetta eru sérstaklega ósmekklegar og óviðunandi tilnefningar hérna að ofan þá veiti ég hinum alræmda íslenska hommahatara Birnu Þóru mitt atkvæði.

Comment af Þorsteinn

Feiti, sameinaði hommagölturinn hlýtur að sigra þetta.

Comment af Doddi

Tilnefning mín í þessum flokki er annaðhvort komin til vegna þess að þú vilt fjölga heimsóknum á síðuna eða þá að þú vilt komast í brækurnar mínar. Bæði er vel.
Persónulega tel ég engan þessara manna þó vera homma en sá sem kemst næst því er að sjálfsögðu Pétur. Hann er í rauninni hommi fyrir utan kynhneigð. Hann er snyrtilegur, elegant í bæði fatavali og framkomu og talar til manns með blíðri röddu.
Hvernig er það samt, hatar Guð líka skápahomma?

Comment af Óttar

Reyndar þekki ég ekki Þorstein og gæti hann því vel verið hommi? Ertu hommi Þorsteinn?

Comment af Óttar

Ég bauð vini mínum Magnúsi Berg í heimsókn til mín hingað til Barcelóna í haust. Hann sá sér ekki fært að koma í til mín, vinar síns til margra ára, án þess að taka Þorstein með og jafnframt kynna hann fyrir mér. Auk þess sem þeir sváfu saman á einbreiðri dýnu síðustu nóttina.

Mitt atkvæði fer til þeirra.

Comment af Hjalti Axel

Þar sem ég þekki bara einn mann þarna, verð ég að gefa honum atkvæðið mitt. Ég segi Haukur….

Comment af Helga systir Önnu

eftir nokkra umhugsun hef ég komist að þeirri niðurstöðu að Haukur Harðarson (hawkman_h) fái mitt atkvæði.ástæðan; í ferð minni til köben sá ég lítið sem ekkert af Hauki og var sagt að hann væri önnum kafinn maður. ég lagði því saman tvo og tvo og fékk út….

Comment af pálmi harðar

Pétur ekki spurning

Comment af Viðar

Ég kýs Óttar, hinir eru/hafa verið í sambandi með konum, skv. skrifum Bjarnar Braga hér að ofan.

Comment af Sigurbaldur

HAHAHAHA ég er líka fáranlega fleimaður.. hef alltaf verið. Væri líka hommi ef ég þyrfti ekki að snerta typpi.

Comment af Pétur

Pétur þú getur örugglega fengið að sleppa því að nota hendur

Comment af Viðar




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>