Bjornbragi’s Weblog


Skammarsvínið
desember 13, 2008, 9:04 am
Flokkað undir: Svínaverðlaunin 2008

Image and video hosting by TinyPic

Í dag birtir Svínkinn fyrstu tilnefninguna til Svínaverðlaunanna 2008. Munu tilnefningar birtast daglega næstu daga. Nú er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að allir lesendur Svínkans kommenti, segi skoðun sína á tilnefningunum og hver ætti að hljóta verðlaunin. Við ákvörðun sigurvegara verður tekið mikið tillit til álits almúgans.

Skammarsvínið er veitt einstaklingi tengdum Svínkanum, sem hefur sýnt af sér skammarlega og óforbetranlega framkomu á árinu. Með útnefningu þessara verðlauna er vonast til þess að einstaklingurinn fái hvatningu til þess að taka sig á og laga framkomu sína.

Hannes Þór Halldórsson
Hannes er tilnefndur fyrir að hafa mig óeðlilega neðarlega á vinalistanum sínum á MySpace og gefa með því skýr skilaboð um að öll sú vinátta og ást sem ég hef gefið honum í gegnum árin var aðeins til ónýtis. Þá er Hannes orðinn óþarflega góður með sig eftir að hann fór að hanga með frægu fólki og menn fóru að tala um að hann væri kannski allt í lagi í marki. Einnig er Hannes óstundvís með eindæmum.

Þórarinn Örn Þrándarson
Þórarinn er tilnefndur fyrir að hafa tekið afar neikvæðum hamskiptum á árinu. Þórarinn var þekktur fyrir að vera hrókur alls fagnaðar og partíljón af Guðs náð. Hann fór hins vegar út að hlaupa snemma á árinu og er ekki ennþá kominn heim. Í dag er hann 15 kílóum léttari en í byrjun árs, hættur að drekka, byrjaður með stelpu og búinn að frelsast.
Uppfært: Þórarinn stíflaði klósettið hjá systur minni, sem hafði verið svo góð að hýsa hann í nokkra daga.

Gibbon Helgi Gíslason
Gibbon er tilnefndur fyrir að hafa hræðilegan tónlistarsmekk, en hann hlustar einkum á tilfinningaþrungið bandarískt háskólarokk í bland við endurútgáfur af gömlum lögum í flutningi fólks sem hefur unnið raunveruleikaþætti á borð við American Idol og Britain’s Got Talent. Gibbon er ákaflega vondur maður, illa innrættur og borðar óhollan mat.

Garðar Stefánsson
Garðar var miðpunktur í hneykslismáli sem kom upp á Svínaskeldu í fyrra, en þá yfirgaf hann veisluna alltof snemma og bar fyrir sig lélegri afsökun. Í ár bjuggust menn því við Garðari sterkari en nokkru sinni fyrr. En viti menn, Garðar mætti ekki og sýndi þar með Svínaskeldu yfirgengilega óvirðingu. Þá hefur Garðar ekki sýnt nokkra viðleitni til að styrkja vináttu sína við Svínkann eða önnur svín jarðar.
Uppfært: Garðar bauð mér ekki í útskriftarveisluna sína.

Björn Þór Ingason
Björn Þór er tilnefndur fyrir frammistöðu sína er hann sótti Kaupmannahöfn heim í haust. Bjuggust margir við því að honum fylgdi gleði og jafnvel nokkur glaumur, en það reyndist alrangt. Af einhverri óskiljanlegri ástæðu var Birni mál að kúka frá fyrstu mínútu og var alla helgina í leit að klósettum til að hægja sér á. Þá kvartaði hann ákaft yfir því að vera þunnur. Auk þess skreið hann upp í rúm til mín í útigallanum sínum, sem er auðvitað ekkert annað en rangt.


20 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Ég gef Garðari mitt atkvæði. Því ef ég man rétt þá bauð hann þér ekki í útskriftarveisluna sína.

Comment af Viðar

jámm, ég hugsa að ég sé sammála vöðvari í þessu máli. garðars frammistaða á árinu var hneykslanleg. ef ég man rétt, þurfti ég að spyrja hann hvort þú mættir koma í útskriftarveisluna hans (kannski var það samt fyrir einhvern annan).

en allavega, atkvæðið á gassann.

Comment af Óli Páll

Ég er líka sammála Kviðari. Garðar hefur reynst þér eintaklega illa og dreg ég það stórlega í efa að hann beri hag þinn fyrir brjósti. Þrátt fyrir að blómasending hans á síðastliðinni Svínaskeldu hafi verið fáránlega fyndin þá hefur hann grafið sig of djúpt í flór svika og tillitsleysis til þess að verða ekki sjálfkjörið skammarsvín.

Hinir finnst mér allir frekar nettir en vil þó taka fram að ég hef ekki átt samskipti við Þórarinn síðan að hann lagði af stað.

Comment af Óttar

Þetta er rétt hjá þér Viðar, hann bauð mér ekki í útskriftina. Ég var bara búinn að gleyma því, enda um ákaflega slæma minningu að ræða. Það voru mistök að reyna að grafa það í stað þess að takast á við tilfinningarnar. Þessu hefur verið bætt við ástæðurnar fyrir tilnefningu Garðars.

Það er þó ekki rétt hjá Óla að ég hafi beðið sjálfur um að fá að koma. Ég hef smá stolt. Ég fór bara og keypti mér útskriftarköku í bakaríinu Suðurveri og át hana grátandi yfir gömlum Friends-þáttum um kvöldið. Enda er sárt að vera hafnað.

Comment af bjornbragi

ég er hins vegar nokkuð viss um að ég hafi minnst á það við garðar hvort að það væri ekki í lagi að þú kíktir í carnivalið. man þetta þó ekki nægilega vel sökum geigvænlegrar ölvunar…djók.

Comment af Óli Páll

Það getur verið að þú hafir verið að spurja hvort að ég mætti kíkja með þér þar sem ég var að keyra þig en ég fór siðan í veisluna til Gumma P

En ég man það samt ekki, enda man ég aldrei neitt

Comment af Viðar

Viðar: keyrðir þú mig í veisluna til garðars?

Comment af Óli Páll

Æji vá ég man það ekki, ég held að ég hafi allaveganna keyrt einhvern

Comment af Viðar

Ég held að það sé nauðsynlegt að raddir Danmerkur fái að heyrast í þessari umræðu. Ef að Björn Þór fengi atkvæði fyrir hvert skipti sem hann sagðist hafa verið að eyðileggja klósett þessa 5 daga sem hann var hér þá væri hann um 12 atkvæðum á undan Garðari hárbróður sínum. Það vakti líka athygli manna þegar Björn Þór yfirgaf gleðskap einfaldlega vegna þess að hann þurfti að hægja sér.

Annað sem gleymdist í þessu eru einstaklega ósmekklegar nærbuxur Björns sem hann klæddist alla 5 dagana hér. Sjá mynd: http://www.facebook.com/photo.php?pid=159053&id=1257069433#/photo.php?pid=159055&id=1257069433

Comment af Magnús

Björn Þór er ekki einn um að eyðileggja klósett Kaupmannahafnar, því eins Svínkalesendur muna olli Þórarinn miklu fjaðrafoki er hann stíflaði salerni á Amager í sumar. Hann fékkst þó til að lagfæra klósettið og notaði til þess eldhúsáhöld, bleika gúmmíhanska og kúst með 2 metra löngu skafti. Að þessu loknu klæddi Þórarinn sig í hlaupaskóna og hljóp í kringum Søerne á hraða bifreiðar, til þess að reyna að finna virði sitt í lífinu á nýjan leik. Þar sem Tóta hefur ekki enn tekist að finna sitt innra virði, þrátt fyrir viðstöðulaus hlaup eins og í tilnefningunni segir, mæli ég með að honum séu veitt svínsleg skammarverðlaun, til þess eins að honum verði svo illa brugðið að hann vakni til síns gamla góða sjálfs.

Gibbon seldi hins vegar ófæddu barni mínu nýlega kommóðu á slikk og lagði þar með línurnar fyrir hirslu undir tískufatnað þess. Hann er því ekki eins illa innrættur og áður var talið. Þetta gerði hann um leið og hann seldi allt sitt í Kaupmannahöfn og fluttist til Ítalíu nú um helgina, í von um að hafa upp á Donatella Versace, eftir að hann uppgötvaði rætur sínar hér á bloggi Svínkans.

Comment af Eva

Ég kýs hiklaust Björn Þór enda er mér óendanlega illa við viðurstyggilega nærveru hans. Ég gleymi því aldrei þegar ég var fyrsta daginn í nýju vinnunni minni í sumar látinn týna gæsaskít á æfingavellinum í Smáranum, sem er eitt og sér alveg ömurlegt, keyrði Björn í hringi á sláttutraktornum sem hann hafði til einkanota í kringum mig íklæddur nærfötunum einum klæða og hló að mér. Mér hefur aldrei liðið jafn illa. Björn er líka annálaður hommahatari.

Gibbon fær hinsvegar öfugsnúið atkvæði mitt í þessari kosningu eftir að hann tilkynnti mér á trúnói um daginn að hann og Íslandsvinurinn Retief Goosen væru leynilegir drykkjufélagar og trúnaðarvinir og ætluðu að eyða jólum og áramótum saman.

Comment af Þorsteinn

Garðar fær mitt atkvæði. Mér varð um við lestur lýsinganna hér að ofan.

Ég hef verið nágranni Garðars frá því í sumarbyrjun og hefur fundist hann vera heldur þurr á manninn þegar ég mæti honum í stigaganginum. Einu sinni ætlaði ég að gefa honum háa fimmu en hann tók mjög fálega í það og gaf mér fáranlega sloppy fimmu til baka.

Ég held því að manngæðum Garðars hafi hrakað mikið að undanförnu, en eitt stykki Skammarsvínstitill gæti kannski vakið hann upp til lífsins og verkað sem nokkurs konar ‘intervention’.

Comment af Doddi

Hrokagikkurinn Hannes Þór Halldórsson fær mitt atkvæði. Hannes óð upp í allt sumar eins og um nýja landsliðsmarkvörð Íslands væri að ræða en í ljós kom að hann var í röðinni eftir yutube Kjartani,Stefáni Loga rúnkvini Oliver Kahn og fleiri öðrum mönnum sem voru m.a. atvinnulausir í eitt ár en voru samt valdir í landsliðið.
Þá er Hannes farinn að tala niður til allra vina sinna og lítur eingöngu á þá sem já-menn sína sem tilbiðja Hannes Þ. fimm sinnum á dag og snúa búk sínum í átt að Laugardalsvelli við þá iðju.

Comment af Sigurbaldur

Viðar er enginn brettamaður, það er allaveganna á hreinu.

Comment af Illaður Dan

Mitt atkvæði rennur að sjálfsögðu til Gibbons Helga. The Hills er einn af uppáhaldsþáttunum hans.

Comment af Haukur Harðarson

Mitt atkvæði rennur til Berta, ekki spurning

Comment af Þóra Sif

ég kýs Gibbon Helga Gíslason að sjálfsögðu sem skammarsvínið, það er aðallega vegna þess að hann vælir stanslaust í mér að downloada einhverju ógeðslega lélegu sjónvarpsefni fyrir sig. En ef kosið væri útfrá myndunum sem birtar eru, þá yrði Hannes án nokkurs vafa fyrir valinu.

Comment af Óli Már

Ég vel einnig Gibbon þar sem hann gerir ekkert annað en að reyna við kærustuna þína.

Comment af annareyn

Ég gef sjálfum mér atkvæði. Björn Bragi gleymdi að minnast á að ég hef borðað meira en hann af öllum mat á heimili hans í gegnum tíðina.

Ég hef meira að segja gengið svo langt að bjóða sjálfum mér ítrekað í mat hjá foreldrum hans, á meðan Svínið situr varnarlaust í Danmörku.

Comment af Þórarinn

Ég kýs að gefa honum Grími atkvæði hér, þar sem hann er alltaf að reyna við Önnu…

Comment af Helga systir Önnu




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>