Þetta myndband er það fyndnasta sem ég hef séð á ævi minni. Ég veit ekki hvers kyns djöfull hefur tekið sér bólfestu í þessari geit, en hljóðin í henni eru svo mannleg og fáránleg að það er geðveiki. Ef ég ætti þessa geit þyrfti ég engan annan félagsskap í lífinu. Ég myndi aldrei fá nóg af henni. Hljóðið á 0:52 er svo fyndið að brisið í mér féll saman af hlátri.
Myndandið hér fyrir neðan er líka ógeðslega gott. Þessi geit er fáránlega góð á því og með eindæmum mannleg. Hún er augljóslega afar ósátt og lætur vita af því með óyggjandi hætti. Hún yrði mjög góð í mótmælin á Íslandi. Klárlega næst besta geitin á eftir geitinni að ofan.
Lýðheilsustöð varar fólk hins vegar við því að spila hljóðin í báðum geitunum á sama tíma, því þá fellur það í trans og hlýtur varanlegan heilaskaða.
3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Seinni geitin er náttúrulega töluvert fyndnari. Þvílík geðshræring!
Comment af Óttar desember 13, 2008 @ 2:44 pmÞað er bölvuð þvæla, ég skeit næstum í mig yfir þessari fyrri geit. 0:52 er algjört rúst.
Comment af Atli Már janúar 18, 2009 @ 2:31 amhhahahhahahaahahhaahahahahhah
Comment af geitin júní 7, 2009 @ 12:19 am