Flokkað undir: Tvífarar
Fyrir stuttu síðan birtust fyrstu tvífararnir hér á Svínkanum og munum við halda því áfram næstu daga. Að þessu sinni birtast tveir tvífarar sem eru svo yfirgengilega líkir að viðkvæmar sálir eru varaðar við því að berja þá augum. Fyrir þá sem þurfa á áfallahjálp að halda eftir að hafa séð hvað þetta fólk er líkt hvert öðru bendum við á neyðarsíma Rauða krossins. Númerið er 1717.
Glam er söngvari norsku glysrokksveitarinnar Wig Wam, sem gerði garðinn frægan í Eurovision árið 2005. Sigríður Margrét er fyrrum starfsmaður Subway í Kringlunni, en hún starfaði einnig við afgreiðslu í útibúi X18 á Fiskislóð um nokkurra mánaða skeið. Glam hefur löngum þótt fremur kvenlegur í útliti á meðan Sigríður hefur haft orð á sér fyrir að líta út eins og kynskiptingur.
Líkindin eru vægast sagt sláandi. Sérfræðingar og áhugafólk um tvífara hafa leitt að því líkum að Glam sé í raun kynfaðir Sigríðar. Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur, sem hingað til hefur verið talin faðir hennar, íhugar málsókn vegna þessara fullyrðinga.

← Donatella Versace og Gibbon Helgi Gíslason →
Donatella er heimsfrægur ítalskur fatahönnuður og systir Gianni Versace heitins. Gibbon er þekktastur fyrir að hafa tekið þátt í söngvakeppni Versló, Vælinu, árið 2006 þegar hann söng Westlife-slagarann Flying Without Wings með unnusta sínum Salóme Herði Engilsdóttur. Þeir höfnuðu ekki í verðlaunasæti.
Grímur og Donatella bera sama húð- og háralit og andlitsfallið er sem gert eftir sama móti. Þá eru þau bæði drykkfelld og gefin fyrir tísku. Ekki er vitað til þess að Donatella sé kynmóðir Gríms, en vitað er að faðir hans dvaldi mikið á Ítalíu seinni hluta árs 1985.
3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

hahahha þú ert sniðugur strákur.
Comment af Sigríður Margrét desember 10, 2008 @ 4:40 pmEinar Gylfi biður samt að heilsa stráknum sínum
kv. Sigga
Ó ok, ég hélt að Sigríður Margrét væri Sigga Bingó.
En þá hefðirðu auðvitað verið með mynd af Chloe úr 24 en ekki af Glam.
Comment af Haukur Johns desember 11, 2008 @ 10:41 pmÉg er mjög sár útí þíg Haukur Johns. Að þú skulir ekki muna mitt alvöru nafn.
Ég sem hélt að við hefðum átt svo ánægjulega og eftirminnilega stund þegar við horfðum saman á dvd þarna um daginn.
En það eru nú ekki margar Sigrúnar sem eru kallaðar Siggur… svo þér er fyrirgefið.
kv. Sigrún Edda Oddsdóttir (Bingó)
Comment af Sigga Bingó desember 12, 2008 @ 3:00 am