Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi
Ég biðst andláts á því að hafa ekkert bloggað. Ástæður fyrir bloggleysi verða ekki tíundaðar, en þess heldur mun ég drepa á því helsta sem hefur drifið á daga mína með nokkrum myndum og texta. Myndir og texti eru jú eitt vinsælasta formið sem notast er við í dag til þess að koma hlutum á framfæri. Svínið lofar hins vegar skemmtilegum jólamánuði á Svínkanum, með miklu bloggi og gleði.

Mottan og rottan Vigdís Sverrisdóttir, dóttir Sverris Hermannssonar fyrrum Alþingismanns og bankastjóra, sótti Kaupmannahöfn heim og dvaldi um hríð hjá okkur hjónunum á Svínastöðum. Hér stillir Vigdís sér upp fyrir myndatöku ásamt svíninu sjálfu. Vigdís varð sér til mikillar skammar þegar hún kúkaði í útigrill fyrir utan blokkina okkar og var í kjölfarið handtekin. Þurfti hún að dvelja á hundahóteli síðustu tvær næturnar.

Glettið gamalt lag Björn Þór Ingason, sonur Inga aðstoðarskólastjóra, kom einnig til Kaupmannahafnar. Hér leikur hann lagið Áðan í útvarpinu fyrir ónefndan albanskan skiptinema, en Björn lét alla heyra af því að hann hefði lent í þriðja sæti í Vælinu á sínum tíma með einmitt þessu lagi.

Reiður og graður Björn gerði ítrekaðar tilraunir til að læða í deigið hjá Vigdísi, en án árangurs. Á endanum var honum nóg boðið og hann steypti Vigdísi í gólfið með þeim afleiðingum að hún tognaði í baki og hlaut stórt mar á síðuna. Þessi meiðsli hennar eru talin helsta ástæðan fyrir því að hún kaus að hægja sér í útigrillið fremur en í venjulegt klósett.

Hot and heavy Anna og nýi kærastinn hennar, Gibbon Helgi Gíslason, sonur Gísla Marteins Baldurssonar. Gibbon gekk áður undir nafninu Grímur, en tók upp nafnið Gibbon eftir að í ljós kom að hann er 1/4 skopparabolti og 1/4 api, en aðeins hálfur maður.

Leikur við hirðfíflið Ég að vinna Hí-Hí Dúlluson (fyrrum Haukur Harðarson, sonur Harðar bróður hans Viðars) í Pro Evolution. Hí-Hí hefur aldrei unnið Pro Evolution leik, enda er hann með bráðaofnæmi fyrir árangri. Ef hann kemst í snertingu við árangur bólgnar hann upp og hættir að geta andað. Samkvæmt læknisráði tapar hann því í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og tapar helst frekar illa.

Svínaboð á Svínastöðum Svínið og frú buðu Hí-Hí og Gibbon í mat og eldaði svínið kótilettur af sjálfu sér. Hí-Hí hyllir svínið fyrir matseldina en Gibbon er öllu skelkaðari, enda óvanur umgengni við svínið.

Loksins flottur Hér er ég búinn að finna mér lúkk sem ég er ánægður með, en það er þetta skegg sem er það vafasamasta sem sést hefur síðan Rúnar Ingi Einarsson, sonur Einars Áskels sögupersónu, varð kynþroska og fór að láta sér vaxa grön.
7 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
upprisinn er hann húrra húrra..
gott og einum of fyndið blogg.
Herra Svín lofaði mér bloggi daglega fram að jólum. Bara að koma því fram svo að pressan sé á þér.
Comment af Viðar desember 4, 2008 @ 7:51 amÉg hef tekið gleði mína á ný!
Comment af Hannes desember 4, 2008 @ 11:43 amRosalega sterk endurkoma.
Comment af Hjalti Þór desember 4, 2008 @ 12:28 pmÞetta er yndislegt alveg… léttir Lund… Siggu Lund…
Comment af JR desember 6, 2008 @ 6:53 pmTár, bros og takkaflóð af skemmtun yfir þessari færslu.
Comment af Hjalti Axel desember 8, 2008 @ 5:27 pmÉg lifi á þér, ánægður með skeggið það gefur þér svona ósnyrtilegt karmennskulúkk sem þykir víst mjög kynþokkafullt um jólin
Comment af Steini Guðjóns desember 17, 2008 @ 1:06 pmÉg hló upphátt að “ég biðst andláts”… Og reyndar allri færslunni ef út í það er farið.
Þú ert frrrrrrábær!!
Comment af Jana desember 22, 2008 @ 2:54 pm