Bjornbragi’s Weblog


Arta má vínber, ef vaxa skulu
október 30, 2008, 5:06 pm
Flokkað undir: Stungið á kýlum þjóðfélagsins

Hálfur hestur Þetta er ástæðan fyrir því að ég vil aldrei fara úr buxunum fyrir framan fólk.

Ég biðst forláts á litlu bloggi að undanförnu. Það vita kannski ekki margir að ég þarf að greiða WordPress.com $2,5 dollara fyrir hvert orð sem ég skrifa þannig að það er svolítið dýrt að halda þessu úti. Færslurnar kosta að meðaltali um $1.000 dollara, en það er kostnaður sem ég er tilbúinn að taka á mig fyrir hina mörg þúsund lesendur Svínkans. Þessi færsla verður því smá uppfærsla á því sem hefur gerst að undanförnu.

Ég fór til Íslands á dögunum og fékk innsýn í líf fólksins sem þar býr. Vissuð þið að Ísland er actually grænt og Grænland er actually ís? Reyndar var svo kalt á Íslandi að ég fékk drep í báða fæturna og þurfti að láta fjarlægja þá við komuna aftur til Kaupmannahafnar. Í staðinn var græddur á mig neðri helmingurinn af hesti, þannig að þetta var ekki alslæmt. Kuldinn á Íslandi stafar af því að undanfarin ár hefur landið verið hitað upp með bræddum seðlabúntum, en sökum fjármálakrísunnar nýtur þessa munaðar ekki við lengur.

Hannes Þór Halldórsson fór til reynslu hjá knattspyrnufélaginu Viking í Noregi. Skemmst er að segja frá því að forsvarsmenn Viking voru vægast sagt óánægðir með frammistöðu Hannesar. Þá furðuðu þeir sig sömuleiðis á því að Hannes væri eini markmaðurinn í Landsbankadeildinni sem hefur ekki leikið landsleik á árinu. Þeir buðu honum þó starf við að vera á myndavélinni sem tekur upp viðbrögðin í varamannaskýlunum á heimaleikjum liðsins. Hannes hefur ekki ákveðið hvort hann taki starfinu.

Annars er Landsbankadeildin að sjálfsögðu ekki til lengur í kjölfar bankahrunsins. Íslandsmótið í knattspyrnu mun á næsta ári heita Fótboltadeild ríkisins.*

Óttar Snædal lifir í stöðugum ótta við að missa vinnuna á Viðskiptablaðinu, en þar hefur hann unnið í þrjá daga. Vitað er að Óttar ræddi við forsvarsmenn Banana ehf. um að koma aftur til starfa þar, en Óttar vann hjá fyrirtækinu sleitulaust á árunum 1998-2007. Ef allt fer á versta veg ætlar Óttar hins vegar að snúa sér að skriftum og gefa út bækurnar Lifrin kallar: Árin á Grettisgötunni og Út úr þynnkunni, sem hefur verið lýst sem sjálfshjálparbókum fyrir drykkjufólk sem neitar að setja tappann í flöskuna. Óttar hefur áður skrifað bókina Notaðar tófur: Í fótspor Hannesar, en Hannes fékk lögbann á útgáfu hennar.

Kristján Sturla Bjarnason hefur séð sóknarfæri í kreppunni og opnað bar í aftursætinu á Volkswagen-bifreið sinni. Aðspurður um tildrög uppátækisins sagði Kristján: „Ég er bara búinn að vera að keyra fullt fólk allt mitt líf. Af hverju ekki að reyna að verða sér úti um smá aukapening.“ Barinn hefur hlotið nafnið Ekki hella niður.

Ég hef ákveðið að snúa aftur til Íslands um áramótin og vera því aðeins eina önn í skiptinámi. Þegar ég var að velja mér áfanga í vikunni komst ég hins vegar að því að það er búið að breyta námsskránni umtalsvert sökum efnahagsástandsins. Ekki þykir lengur þörf á að kenna helstu fjármálafögin og aðrir hagnýtari áfangar eru komnir í staðinn. Þannig hafa Fjármál I og II til dæmis þurft að víkja fyrir Nígeríusvindli I og II, sem verður kennt af knattspyrnumanninum fyrrverandi, Daniel Amokachi. Þá hefur Davíð Gill Jónsson hlotið lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík, en hann hefur fengið það verkefni að setja saman áfanga sem kennir fólki að fá frítt að borða á veitingahúsum bæjarins.

Að lokum tel ég mig knúinn til að greina frá því að í nótt dreymdi mig að ég og Jón Ragnar værum að hafa samfarir. Það er áhugavert í ljósi þess að ég hef oftsinnis lýst því yfir að ef ég þyrfti að sofa hjá karlmanni yrði Jón fyrir valinu, þar sem hann er ákaflega stinnur og mjúkur af karlmanni að vera. Þá er hann allgóður, bjartur og óflekkaður. Nú verð ég seint talinn sérfræðingur í draumráðningum, en tel nokkuð víst að þessi draumur þýði að ég sé hommi. Jón Ragnar, vilt þú þekkjast boð mitt? Ég skal vera blíður.

Meira innan skamms.

*(c) Óttar Snædal.


4 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Takk fyrir Björn. Þú lést hálf-fullorðinn mann pissa á sig úr hlátri.

Comment af Viðar

Gott að einhver skuli hafa orð á því hversu góður, bjartur og óflekkaður Jón Rangar er og að hulunni skuli loks hafa verið svipt af Noregsferð Vélarinnar.

Þannig að ef litið er framhjá því að ég kem út eins og kynbrenglaður alkahólisti í þessarri færslur þá tek ég ofan fyrir Svínkanum.

Fannst líka

Comment af Óttar

“þessari færslu” ekki “þessarar færslur”

“Fannst líka” átti samt að vera þarna

Comment af Óttar

Maður fær bara blóð í hann hér… Ég tek boðinu ef ég fæ að vera “þiggjandinn”

Færslan fær 5/5

Comment af JR




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>