Bjornbragi’s Weblog


Að eiga rétta mynt
október 7, 2008, 12:03 am
Flokkað undir: Fjármálafréttir

Image and video hosting by TinyPic
Gambískt dalasí Jafnast næstum því á við góða myntu.

Þann 20. júlí 2007 fékk ég vitrun. Þá birtist mér í draumi austurríski hagfræðingurinn Eugen von Böhm-Bawerk og sagði mér að honum þætti afar líklegt að íslenska krónan myndi ekki styrkjast frekar, heldur taka að veikjast. Fyrst rólega en síðan af miklum þunga, líkt og snjóbolti sem rúllar niður fjallshlíð – beint til helvítis. Þennan ágæta dag var gengisvísitalan í 110.

Ég lét ekki segja mér það tvisvar, heldur fór beinustu leið út í banka og tók út alla fjármuni sem ég átti og seldi krónurnar í skiptum fyrir gambískt dalasí. Nú, tæpum 15 mánuðum síðar, er ég orðinn svo ríkur að eignir mínar nema fimmfaldri vergri landsframleiðslu íslenska ríkisins.

Í öðrum fréttum af gjaldmiðlum má nefna að gengi myntunnar hefur styrkst umtalsvert gagnvart krónunni undanfarna daga. Í SuperBrugsen var í dag hægt að kaupa myntupakka, með 100 myntum, á 260 krónur íslenskar. Sem þýðir að myntan er 2,6 sinnum verðmætari íslenska krónan í dag.


5 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Nú er ég meðlimur í myntubandalaginu, en ég tel samt mikilvægt að þú setjist niður heila helgi með helstu sérfræðingum myntubandalagsins, og semjir ítarlegt regluverk um notkun myntunnar. Hvaða útfærslur af gjaldmiðlinum eru leyfilegar? Er Smint myntan jafn góð og gild og sú sem maður fær (fékk) gefins í fjármálafyrirtækjunum, og ýmsum stofnunum?

Þetta er mikilvægt fyrir framgöngu myntubandalagsins.

Comment af Halldór Gröndal

Viss kaldhæðni í því fólgin að Böhm-Bawerk hafi bjargað þér frá kreppunni. Sjálfur fórst hann í síðustu kreppu af þessari stærðargráðu, árið 1914.

Comment af Óttar

Gamli vin, ég tek eftir að nemóstjörnurnar og sjálfstæðismennirnir sem tjá sig hér kjósa að upphefja sjálfa sig með misfyndnu gríni og gáfulegum athugasemdum, í stað þess að hrósa góðu bloggi.

Því hrósa ég hér með eðalbloggi – sem minnir mig á blómaskeið Bjöllans – og segi einfaldlega:

Klapp klapp og húrra fyrir Svínkanum!

Comment af Hannes

Ég veit ekki hvaðan þetta diss kom.

Comment af Hannes

Eftir daginn hef ég ákveðið að taka rassgatið á þér af athugunarlista. Sérstaklega í ljósi þess að þú tókst ekki stóra stöðu í bixie matnum í gærkvöldi líkt og aðrir.

Þér er frjálst að setjast á súkkulaðitertu og go crazy.

Comment af Magnús




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>