Bjornbragi’s Weblog


Arta má vínber, ef vaxa skulu
október 30, 2008, 5:06 pm
Flokkað undir: Stungið á kýlum þjóðfélagsins

Hálfur hestur Þetta er ástæðan fyrir því að ég vil aldrei fara úr buxunum fyrir framan fólk.

Ég biðst forláts á litlu bloggi að undanförnu. Það vita kannski ekki margir að ég þarf að greiða WordPress.com $2,5 dollara fyrir hvert orð sem ég skrifa þannig að það er svolítið dýrt að halda þessu úti. Færslurnar kosta að meðaltali um $1.000 dollara, en það er kostnaður sem ég er tilbúinn að taka á mig fyrir hina mörg þúsund lesendur Svínkans. Þessi færsla verður því smá uppfærsla á því sem hefur gerst að undanförnu.

Ég fór til Íslands á dögunum og fékk innsýn í líf fólksins sem þar býr. Vissuð þið að Ísland er actually grænt og Grænland er actually ís? Reyndar var svo kalt á Íslandi að ég fékk drep í báða fæturna og þurfti að láta fjarlægja þá við komuna aftur til Kaupmannahafnar. Í staðinn var græddur á mig neðri helmingurinn af hesti, þannig að þetta var ekki alslæmt. Kuldinn á Íslandi stafar af því að undanfarin ár hefur landið verið hitað upp með bræddum seðlabúntum, en sökum fjármálakrísunnar nýtur þessa munaðar ekki við lengur.

Hannes Þór Halldórsson fór til reynslu hjá knattspyrnufélaginu Viking í Noregi. Skemmst er að segja frá því að forsvarsmenn Viking voru vægast sagt óánægðir með frammistöðu Hannesar. Þá furðuðu þeir sig sömuleiðis á því að Hannes væri eini markmaðurinn í Landsbankadeildinni sem hefur ekki leikið landsleik á árinu. Þeir buðu honum þó starf við að vera á myndavélinni sem tekur upp viðbrögðin í varamannaskýlunum á heimaleikjum liðsins. Hannes hefur ekki ákveðið hvort hann taki starfinu.

Annars er Landsbankadeildin að sjálfsögðu ekki til lengur í kjölfar bankahrunsins. Íslandsmótið í knattspyrnu mun á næsta ári heita Fótboltadeild ríkisins.*

Óttar Snædal lifir í stöðugum ótta við að missa vinnuna á Viðskiptablaðinu, en þar hefur hann unnið í þrjá daga. Vitað er að Óttar ræddi við forsvarsmenn Banana ehf. um að koma aftur til starfa þar, en Óttar vann hjá fyrirtækinu sleitulaust á árunum 1998-2007. Ef allt fer á versta veg ætlar Óttar hins vegar að snúa sér að skriftum og gefa út bækurnar Lifrin kallar: Árin á Grettisgötunni og Út úr þynnkunni, sem hefur verið lýst sem sjálfshjálparbókum fyrir drykkjufólk sem neitar að setja tappann í flöskuna. Óttar hefur áður skrifað bókina Notaðar tófur: Í fótspor Hannesar, en Hannes fékk lögbann á útgáfu hennar.

Kristján Sturla Bjarnason hefur séð sóknarfæri í kreppunni og opnað bar í aftursætinu á Volkswagen-bifreið sinni. Aðspurður um tildrög uppátækisins sagði Kristján: „Ég er bara búinn að vera að keyra fullt fólk allt mitt líf. Af hverju ekki að reyna að verða sér úti um smá aukapening.“ Barinn hefur hlotið nafnið Ekki hella niður.

Ég hef ákveðið að snúa aftur til Íslands um áramótin og vera því aðeins eina önn í skiptinámi. Þegar ég var að velja mér áfanga í vikunni komst ég hins vegar að því að það er búið að breyta námsskránni umtalsvert sökum efnahagsástandsins. Ekki þykir lengur þörf á að kenna helstu fjármálafögin og aðrir hagnýtari áfangar eru komnir í staðinn. Þannig hafa Fjármál I og II til dæmis þurft að víkja fyrir Nígeríusvindli I og II, sem verður kennt af knattspyrnumanninum fyrrverandi, Daniel Amokachi. Þá hefur Davíð Gill Jónsson hlotið lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík, en hann hefur fengið það verkefni að setja saman áfanga sem kennir fólki að fá frítt að borða á veitingahúsum bæjarins.

Að lokum tel ég mig knúinn til að greina frá því að í nótt dreymdi mig að ég og Jón Ragnar værum að hafa samfarir. Það er áhugavert í ljósi þess að ég hef oftsinnis lýst því yfir að ef ég þyrfti að sofa hjá karlmanni yrði Jón fyrir valinu, þar sem hann er ákaflega stinnur og mjúkur af karlmanni að vera. Þá er hann allgóður, bjartur og óflekkaður. Nú verð ég seint talinn sérfræðingur í draumráðningum, en tel nokkuð víst að þessi draumur þýði að ég sé hommi. Jón Ragnar, vilt þú þekkjast boð mitt? Ég skal vera blíður.

Meira innan skamms.

*(c) Óttar Snædal.



Nokkrar myndir úr æsku
október 14, 2008, 3:34 am
Flokkað undir: Veröld sem var

Fyrir þá sem hafa ekki fylgst vel með þá er ég kominn til Íslands og verð þar í nokkra daga á meðan ég er í vetrarfríi. Ég og Þórarinn Klár Eyrúnarson, betur þekktur sem Tóti, vorum um daginn að framkalla nokkrar filmur með myndum sem við tókum á árunum 1999-2001. Eins og við var að búast er um mikinn fjársjóð að ræða og ákvað ég að henda nokkrum hér inn, ásamt skýringum. Þær gefa góða mynd af því hvernig það var að alast upp í gettóinu. Þið megið eiga von á því að geta nálgast þessar myndir, ásamt fjölda annarra, á Facebook á næstu dögum.

Það má geta þess að nokkrar myndir sem voru á filmunum voru svo fáránlega grófar að meira að segja Svínkinn getur ekki með nokkru móti birt þær. Fólk getur því ímyndað sér hvað það var vandræðalegt að sækja myndirnar úr framköllun, en við áttum allt eins von á því að náunginn sem afgreiddi okkur myndi hringja á lögregluna, eða gera jafnvel Interpol viðvart.

Image and video hosting by TinyPic
Níðst á minni máttar Tóti ræðst á samnemanda sinn fyrir utan Skalla í Árbænum.

Image and video hosting by TinyPic
Níðst á ennþá minni máttar Ég tuska til óþekkt fórnarlamb sem er a.m.k. helmingi yngra en ég.

Image and video hosting by TinyPic
Líf í tuskunum Gaman væri að komast að því hvað þessi ungi maður vann sér til saka. Líklega gat hann ekki nefnt 5 meðlimi hljómsveitarinnar Wu-Tang Clan á nafn.

Image and video hosting by TinyPic
Frumstætt einelti Ég, Tóti og Þorsteinn Lár stöðvum umferð við Rauðavatn.

Image and video hosting by TinyPic
Tveir hressir faggar Ég og Tóti sumarið 2001 þegar við vorum orðnir töff.

Image and video hosting by TinyPic
Betra er faggi en tardi Viðar og Björn Þór fengu vinnu þegar Nóatún varð verndaður vinnustaður. Viðar er ennþá að vinna í Nóatúni, en Björn Þór dó í kreppunni.

Image and video hosting by TinyPic
Glatt á hjalla Ég ásamt tveimur sem meikuðu það og flúðu gettóið. Tanið sem ég er með kostaði tæpar 300 þúsund krónur en það er verðlaust í dag.

Image and video hosting by TinyPic
Ótrúlegt afrek Þórarinn hlaut alvarlegan heilaskaða er hann drakk fjóra lítra af bremsuvökva þegar hann var 14 ára. Með mikilli endurhæfingu, eljusemi og dugnaði tókst Þórarni hins vegar að ná sér næstum því að fullu og útskrifast úr Háskóla Íslands.

Image and video hosting by TinyPic
Alveg trylltur Þórarinn eys úr skálum reiði sinnar yfir stúlku sem hann hafði hellt fulla en vildi síðan ekki sofa hjá honum.

Image and video hosting by TinyPic
Skot og mark Þórarni gekk hins vegar betur með þessa, enda var hún drykkjudauð.

Image and video hosting by TinyPic
Obbosí Steinþóri var óþægilega brugðið er hann vaknaði og komst að því að vinir hans höfðu nauðgað honum. En bara í gríni að sjálfsögðu.



Miklar lækkanir í Danmörku
október 8, 2008, 5:00 pm
Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi

Image and video hosting by TinyPic
Af sem áður var Haraldur Gísli Sigfússon bendir til hægri, frá honum séð, sem er sú átt sem hann telur betri af tveimur slæmum kostum.

Miklar lækkanir hafa verið á öllu mögulegu í Danmörku að undanförnu og hefur það valdið talsverðu umróti víða um heim. Lækkanirnar þykja margar hverjar gefa til kynna að ekki sé allt með felldu í heiminum í dag.

Haraldur Gísli Sigfússon, námsmaður, lækkaði um 6,4 sentimetra um leið og hann vaknaði í morgun. Hann stóð í tæpum 175 sentimetrum þegar hann fór á fætur, en var 181 sentimetri á hæð þegar hann flutti til Danmerkur í lok ágúst.

Haukur Harðarson, suguþræll og blóraböggull (e. whipping boy), lækkaði fituprósentu sína úr 1,3 í 0,6. Danska landlæknisembættið sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem Haukur var aðvaraður. Verði hann ekki búinn að koma sér aftur upp fyrir 1% í fitu innan 30 daga verður honum vísað úr landi.

Björn Bragi Arnarsson, lækkaði umtalsvert í áliti hjá Magnúsi Berg Magnússyni, skólabróður sínum, en sá fyrrnefndi hefur gert ákaflega lítið í sameiginlegu 72 klukkustunda hópverkefni þeirra í kúrsinum Advanced Service Marketing. Eftir að Magnús skammaði Björn eins og hund í kaffihléi þeirra pilta í dag tók Björn hins vegar við sér í hópvinnunni og gekk lækkunin að mestu til baka. Magnús hefur nú sæmilegt álit á Birni og er talið að hópverkefnið sé ekki í hættu.

Þorsteinn Kári Jónsson, skógarhöggsmaður, lækkaði í iPodinum sínum laust fyrir klukkan 14 í dag. Þorsteinn var að hlusta á lagið Ordinary World með Duran Duran á hljóðstyrk 35, en lækkaði skyndilega niður í 20. Ekki er vitað hvað olli lækkuninni en fyrrum starfsmaður verslunarinnar Japis telur líklegt að Þorsteinn sé með eyrnabólgu.



Að eiga rétta mynt
október 7, 2008, 12:03 am
Flokkað undir: Fjármálafréttir

Image and video hosting by TinyPic
Gambískt dalasí Jafnast næstum því á við góða myntu.

Þann 20. júlí 2007 fékk ég vitrun. Þá birtist mér í draumi austurríski hagfræðingurinn Eugen von Böhm-Bawerk og sagði mér að honum þætti afar líklegt að íslenska krónan myndi ekki styrkjast frekar, heldur taka að veikjast. Fyrst rólega en síðan af miklum þunga, líkt og snjóbolti sem rúllar niður fjallshlíð – beint til helvítis. Þennan ágæta dag var gengisvísitalan í 110.

Ég lét ekki segja mér það tvisvar, heldur fór beinustu leið út í banka og tók út alla fjármuni sem ég átti og seldi krónurnar í skiptum fyrir gambískt dalasí. Nú, tæpum 15 mánuðum síðar, er ég orðinn svo ríkur að eignir mínar nema fimmfaldri vergri landsframleiðslu íslenska ríkisins.

Í öðrum fréttum af gjaldmiðlum má nefna að gengi myntunnar hefur styrkst umtalsvert gagnvart krónunni undanfarna daga. Í SuperBrugsen var í dag hægt að kaupa myntupakka, með 100 myntum, á 260 krónur íslenskar. Sem þýðir að myntan er 2,6 sinnum verðmætari íslenska krónan í dag.



Stund sannleikans – þetta verða allir að sjá
október 5, 2008, 9:48 pm
Flokkað undir: Oft má satt kyrrt liggja

Image and video hosting by TinyPic
Lauren Cleri Áhugavert væri að komast að því hvað fær slíka manneskju til að játa syndir sínar frammi fyrir alþjóð.

Sandhedens time er afar áhugaverður þáttur sem er sýndur hér í Danmörku. Þátturinn er dönsk útgáfa af The Moment Of Truth, sem mér skilst að sé nýverið byrja að sýna á Íslandi eða eigi allavega að fara að sýna þar á næstunni. Fyrir þá sem ekki kannast við þættina þá ganga þeir út á það að þátttakendur eru tengdir við lygamæli og þurfa að svara afar persónulegum spurningum um sjálfa sig. Allt er þetta að sjálfsögðu gert til þess að eignast peninga, en um leið og þátttakendur svara ósatt missa þeir allt sem þeir voru búnir að eignast. Þeir geta hins vegar hætt hvenær sem þeir vilja og gengið burt með þá upphæð sem þeir eru komnir með.

Í Sandhedens time í síðustu viku fengu áhorfendur að fylgjast með ungri konu játa fyrir framan móður sína, systur og bestu vinkonu – að ógleymdri allri dönsku þjóðinni – að hún og kærastinn hennar stunduðu reglubundið kynlíf með öðru pari og að kærastinn hennar hefði tekið upp á því að koma með ókunnugan mann heim og horft á hana sofa hjá honum. Hún fékk væna fúlgu að launum.

Í síðasta þætti kom svo maður, líklega um fertugt, og játaði að hafa tekið inn stera, fengið sér hóru, reynt við eiginkonu vinar síns, stolið stórri peningaupphæð og beitt fyrrum kærustu sína ofbeldi. Allar játningarnar reyndust hins vegar til ónýtis því þegar hann neitaði því að steranotkun hans hefði haft áhrif á frammistöðu hans í rúminu gaf lygamælirinn merki um að hann væri að ljúga. Eins og fyrr segir missa þátttakendur allt sem þeir hafa unnið sér inn þegar þeir verða vísir að slíku.

Eftir að hafa horft á þessa tvo þætti fór ég að lesa mér aðeins til um The Moment Of Truth og komst að því að einn þáttur átti að hafa verið svo svakalegur að forsvarsmenn sjónvarpsstöðvarinnar Fox ætluðu ekki að sýna hann. Það er náttúrulega ekkert annað en sölumennska, enda lifa menn fyrir svona efni þar á bæ. En ég sótti þáttinn engu að síður og heilagur Eiður Smári á himnum hvað hann er magnaður.

Erkiskinka nokkur að nafni Lauren Cleri er tengd við lygamælinn, að viðstaddri fjölskyldu sinni og eiginmanni til tveggja ára. Játningarnar sem koma fram eru svo hrikalegar að það er varla hægt að horfa á þetta. Á minni löngu og erfiðu ævi hef ég líka aldrei séð annan eins hneykslunarsvip og á manninum hennar á meðan hún svarar spurningunum. Það var mikið fjallað um Cleri-hjónin í fjölmiðlum vestanhafs í kjölfar þáttarins, en þau skildu nokkrum mánuðum eftir upptöku hans. Það kemur væntanlega fáum sem sjá þáttinn á óvart.

Hérna má nálgast gott torrent af þættinum. Þetta á að vera frekar hratt niðurhal og þátturinn í fínum gæðum.



Kreppan tekur á sig nýja og skelfilegri mynd
október 3, 2008, 11:20 am
Flokkað undir: Með kreppu á bakinu

Image and video hosting by TinyPic
Kokkur án fjármagns Gott er að rífa niður búnt af íslenskum fimmþúsundkrónuseðlum og bera fram með skónum.

Það er erfitt að vera íslenskur námsmaður í útlöndum í dag. Sérstaklega í Danmörku, enda alkunna að Danir hata Íslendinga. Í liðinni viku voru samþykkt lög hér í landi, þess efnis að allir Íslendingar búsettir í Danmörku þyrftu að ganga með hvítan borða, með mynd af íslensku krónunni, um handlegg sér. Ástæðan fyrir því er sú að Danir vilja þekkja Íslendinga úr fjöldanum svo þeir geti hlegið að þeim og verið vondir við þá. Staða Íslendinga í Danmörku í dag er því ekki alls kostar ósvipuð stöðu gyðinga í Þriðja ríkinu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Við deyjum hins vegar ekki ráðalaus þrátt fyrir ólgandi fátækt og lausafjárskort. Í gærkvöldi náði ég að selja eyrun á mér í skiptum fyrir súpudisk til þess að halda mér á lífi. Í fyrstu kann það hlutskipti mitt að hljóma illa, en svo var nú aldeilis ekki. Í kjölfarið var mér boðin vinna við að leika sel í dönsku brúðuleikhúsi. Í laun fyrir hverja sýningu fæ ég 5 danskar krónur, andvirði 300 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag.

Sökum efnahagsástandsins höfum við hjónin á Bjöllastöðum eðlilega þurft að halda að okkur höndum í neyslu. Þetta er einna mest áberandi í eldhúsinu. Í fyrradag sauð ég gamla Converse-skó, sem við borðuðum með bestu lyst. Í gærkvöldi ristaði ég mér svo hulstrið af Tiger Woods 2007 leiknum mínum en Anna lét sér nægja að borða burðarpoka úr Fakta, enda er hún í aðhaldi.

Annars þarf ég engu að kvíða því ég er búin að skrifa handrit að kvikmynd sem ég á von á að selja fyrir metfé. Myndin fjallar um nokkra graða menntaskólastráka sem hugsa ekki um annað en rassa á stelpum og eru að „eltast við rassa“ dagana langa. Myndin gerist í síðustu viku og ber öll sagan mikinn keim af núverandi efnahagsástandi. Verkið heitir að sjálfsögðu Botninum náð.

Listi yfir hluti sem eru verri en núverandi efnahagsástand:
$ Að vera indónesíski trjámaðurinn.
$ Að vinna á Nonnabita.



Hálf-tólf fréttir greiningardeildar Svínkans
október 1, 2008, 11:33 pm
Flokkað undir: Fjármálafréttir

Image and video hosting by TinyPic
Kreppan svíður Starfsmenn Glitnis gráta fyrir utan höfuðstöðvar fyrirtækisins á Kirkjusandi í dag, eftir að tilkynnt var að Glitnir myndi hætta allri fjármálastarfsemi og gerast myndbandaleiga og sólbaðsstofa.

Krónan deyr í lok þessa árs og myntur verða teknar upp
Krónan hefur veikst gríðarlega það sem af er þessu ári. Í dag kostar ein evra 800 þúsund íslenskar krónur og sál úr íslensku barni, en fyrir réttu ári var gengi evrunnar hins vegar tæpar 90 krónur íslenskar. Danska krónan hefur sömuleiðis lækkað óguðlega. Sem dæmi um það má nefna að fyrir ári kostaði bíómiði í Danmörku um 1.000 krónur íslenskar, en vilji Íslendingur fara í bíó í Danmörku í dag þarf hann að hoppa í gegnum eldgjörð og afsala að minnsta kosti einu líffæri úr sér.

Greiningardeild Svínkans telur að krónan muni halda áfram að lækka út þetta ár og verða að lokum verðlaus með öllu, að undanskildu innra virði (e. intrinsic value). Það er, að hún verði einungis nytsamleg sem bréfsefni eða klósettpappír. Í framhaldi af því er líklegt að myntur verði teknar upp sem gjaldmiðill og Ísland verði fyrst þjóða til að ganga í Myntubandalagið.

Haukur Harðarson gefur út afkomuviðvörun
Haukur Harðarson, námsmaður, hefur gefið út afkomuviðvörun vegna afkomu sinnar á seinni helmingi þessa árs. Í tilkynningunni kemur fram að vegna ferðar Hauks til Malmö fyrr í haust, þar sem drjúgar fjárhæðir fóru í fatakaup, auk óhóflegrar eyðslu í húsgögn í nýja íbúð sem hann fluttist í, hafi hann tekið á sig mikla verðmætarýrnun. Hlutabréf í Hauki hafa lækkað um 31% í þessari viku. Sérfræðingar telja líklegt að svo fari að Grímur Helgi Gíslason, vinur Hauks til margra ára, muni yfirtaka hann.

Þorsteinn Kári og Magnús Berg sameinast
Þorsteinn Kári Jónsson og Magnús Berg Magnússon hafa loks sameinast, eftir langar viðræður þeirra í millum. Þorsteinn og Magnús hafa verið nánast óaðskiljanlegir undanfarin misseri og komust að þeirri niðurstöðu að það væri fjárhagslega hagkvæmast fyrir þá að verða eitt. Í því felst í grófum dráttum að þeir munu búa saman, fá sameiginlega kennitölu og eiga reglubundin holdleg samræði. Eftir sameininguna hafa þeir hlotið nafnið Marsteinn Bári.