Bjornbragi’s Weblog


Góða kvöldið frá Kaupmannahöfn
september 24, 2008, 11:33 pm
Flokkað undir: Grillað í Svínka

Image and video hosting by TinyPic

Lesendur DV hafa væntanlega rekið upp stór augu þegar þeir sáu hálfan mann og hálft svín í blaðinu í dag. Það var að sjálfsögðu ég, en sagan af hnífamanninum góða rak á fjörur þeirra og var sagt frá málinu í blaðinu (sjá að ofan). Ég bíð nú spenntur eftir að Óttar Sveinsson skrifi Útkalls-bók um reynslu mína. Hún myndi væntanlega heita Útkall í lestinni.

Frá Danmörku er þó allt gott að frétta og engir fleiri hnífamenn hafa látið á sér kræla. Þó höfum við Íslendingar í Danmörku nokkrar áhyggjur af stöðu íslensku krónunnar. Hún er jú orðin jafn veik og lögfræðingurinn Andrew Beckett var á 104. mínútu kvikmyndarinnar Philadelphia. Af þeim sökum er orðið fremur dýrt að vera á lífi. Ég keypti mér til að mynda banana í dag og þurfti að greiða fyrir hann 140 þúsund íslenskar krónur, hárið á mér og allar fyllingar úr tönnunum.

Af þessum sökum hef ég tekið upp á óhefðbundum aðferðum við að verða mér úti um peninga. Ég er orðinn handrukkari. Mitt fyrsta verk var að búa til 100 þúsund króna skuld á Hauk Harðarson. Þegar hann neitaði að borga bankaði ég upp á hjá honum og tók hann í fótaklemmu. Svo kveikti ég í reiðhjólinu hans. Þá gafst hann upp og greiddi skuldina.

Og ekki nóg með það. Ég er kominn með enn eina viðskiptahugmyndina, sem ég mun bera undir Mjólkursamsöluna um jólin. Hún er sú að setja á markað jógúrt með bjórbragði. Varan mun að sjálfsögðu hljóta nafnið Bjórgúrt og verður markaðssett sem heilsusamleg lausn fyrir drykkjufólk sem vill koma sér í form án þess að setja tappann í flöskuna.

Anna er búin að gera plötusamning við Senu og gefur út sína fyrstu sólóplötu á Íslandi um jólin. Eins og gengur og gerist í bransanum þarf Anna að færa ýmsar fórnir. Skemmst er að minnast þess að Jóhanna Guðrún breytti nafninu sínu í Yohanna og Anna þarf líka að skipta um nafn. Hafa Senu-menn ákveðið að Anna taki upp nafnið Ríðu-Anna, sem skírskotun í Rihönnu.

Að lokum tel ég rétt að fara nokkrum orðum um rafrænt stríð séra Halldórs Gröndals og Jóns Ragnars. Halldór reit nýverið eftirfarandi ummæli í skoðanakerfið: „Nú hef ég blessunarlega komið í veg fyrir allar lélegar tilraunir til húmors af hálfu JR og fleiri grínista. Og afleiðingin er betra blogg og skemmtilegra skoðanakerfi.“ Fóru þau mjög fyrir brjóstið á Jóni, sem lýsti yfir stríði í kjölfarið. Ég verð að segja að ég hef mjög gaman af því að fá athugasemdir á Svínkann, hversu vitsmunalegar sem þær eru, og hvet alla lesendur til að skilja eftir sig nokkur orð. Ég þakka Gröndali fyrir góðar athugasemdir en bið hann um leið að endurskoða ummæli sín um Jón Ragnar. Sá síðarnefndi hefur verið afar ötull við að skilja eftir sig skemmtilegar athugasemdir á Svínkanum og, eins og hann benti réttilega á, eru athugasemdir bensín á vél bloggarans. Ef við höfum ekki ást fyrir hvort annað, hvað höfum við þá?

Góðar stundir.


6 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Hver ert þú að tala um ást og náungakærleik? Nú sé ég mig knúinn til að hlaupa um götur Kaupmannahafnar þar sem ekkert er eftir af reiðhjólinu mínu nema kolsvört askan.

Þess utan hef ég tilneyddur þurft að snúa mér að “crash-dietnum” á ný og þú getur rétt ímyndað þér hvað öll hlaupin og matarkúrinn munu gera mínum visnaða líkama. Hvers konar manneskja leggur á það ráð að handrukka saklausan strák sem þú kallar meira að segja vin þinn!

Hvernig get ég líka vitað að þó svo að ég hafi borgað þér þennan 100.000 kall að þú komir ekki aftur eftir mánuð og beitir sömu bolabrögðum?

Er sammála Jóni með bensínið á vél bloggarans, en eftir nýjasta útspil þitt Björn, tel ég réttast að skvetta duglega af dísilolíu á þessa hatursvél sem þú ert orðin að þannig að hún gangi ei meir. “Það er bara þannig sko!”

En verðum við ekki að skella þessu öllu á bölvað gengið?

Comment af Haukur Harðarson

Einlægur aðdáandi Svínka.

-Pillan

Comment af Pilluborgarinn

Ég skal glaður draga ummæli mín til baka, enda er JR góður drengur og meinar vel.

Einnig skil ég þig vel, ég þekki það að reka bloggsíðu og þetta er eins og bensín.

En gæðaeldsneyti er betra en litaður garðsláttuvélalögur. Svo ef við eyðum öll kannski örlitlum meiri tíma í glensið, þó ekki væri nema ein aukaleg mínúta, þá getum við í sameiningu breytt ræfislegu 95 oktana blýlausu ÓB bensíni í hágæða Shell V-Power eldsneyti, með tiltölulega lítilli fyrirhöfn.

með von um sátt og samlyndi

kveðja,

HG

Comment af Halldór Gröndal

Ég veit að þetta er sjúkt, en ég elska þig, þú bjargaðir deginum mínum :)

Comment af Helga Önnu sys

Ég sakna þín meira en Malone saknaði Stockton

Comment af Steve Nash

Út kall með hníf! ?

Comment af einsidan




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>