Bjornbragi’s Weblog


Svínkinn varð vitni að hnífaárás í lestinni
september 16, 2008, 1:12 am
Flokkað undir: Notaðu skurðarbretti drengur

Image and video hosting by TinyPic
Í huga brjálæðings Séð með augum Kobba kviðristu í lestinni.

„Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg, með ljósum prýddar götur og hrein og fögur torg.“ Svo var kveðið í ónefndu forvarnarlagi um árið. En hætturnar leynast víðar en í borg óttans. Kaupmannahöfn er að minnsta kosti ekki öll þar sem hún er séð. Tekið skal fram að þrátt fyrir að Svínkinn hafi endrum og eins verið sakaður um að skreyta eða skálda í færslum sínum er eftirfarandi frásögn jafn sönn og dagurinn er langur.

Eftir að hafa lokið við að hlusta á fyrirlestur í kúrsinum Advanced Service Marketing í dag ákvað ég að leggja leið mína niður í miðbæ Kaupmannahafnar. Ætlunin var að horfa á leik Tottenham og Aston Villa síðar um kvöldið. Klukkan sló 17 þegar ég steig inn í neðanjarðarlest á stoppistöðinni í Fredriksberg. Um leið og hurðin lokaðist á eftir mér tók ég eftir því að það var styr á milli tveggja manna við innganginn sem var næstur þeim sem ég kom inn um. Annar þeirra sat en hinn stóð yfir honum. Köllum hinn sitjandi mann Jeff, þar sem hann leit út eins og ungur og vinalegur Jeff Goldblum. Köllum hinn standandi mann Kobba, í höfuðið á Kobba kviðristu. Jeff var á að giska um 35 ára en Kobbi líklega rétt rúmlega tvítugur. Kobbi var hvítur, hávaxinn, með gleraugu og klæddur í föt sem Eminem hætti að ganga í fyrir áratug. Breski veðbankinn William Hill gaf stuðulinn 1,25 á að hann væri undir áhrifum efna sem er ekki að finna í lotukerfinu. Jeff var sömuleiðis hávaxinn og grannur, en ólíkt Kobba virtist hann vera gegn og skynsamur maður. Sannkallaður Bonus pater. Kobbi og Jeff þekktust ekki neitt.

Þrátt fyrir að ég sé í dag orðinn jafn danskur og smurbrauð með skarkola, remúlaði og sítrónu tókst mér ekki að skilja nákvæmlega hvað fór á milli þeirra. En sjötta skilningarvit mitt sagði mér Kobbi væri einfaldlega að leita að veseni, hirðulaus um í hvaða formi það væri. Hann sakaði Jeff um að sitja í sætinu sínu – vafalaust klassísk tilþrif frá manni eins og Kobba. Án nokkurs fyrirvara kýldi Kobbi svo Jeff með hægri krók. Jeff mátti sín lítils þar sem hann sat og stóð í snarhasti upp. Hann hélt Kobba frá sér, án þess þó að gera nokkuð á móti. Af vexti þeirra að dæma hefði Jeff þó verið síst minna sigurstranglegur í bardaga. En okkar maður vildi augljóslega ekki dansa þann tangó sem Kobbi gerði ágenga tilraun til að bjóða honum upp í.

Kobbi hélt áfram að veitast að Jeff og sá síðarnefndi tók upp á því að grípa í rimlana í loftinu á lestinni og sparka Kobba frá sér. Nokkuð klókt hjá okkar manni. Gangurinn var þröngur og auðvelt að halda árásarmanninum frá sér með þessum hætti. Sömuleiðis gerðu aðstæður það hins vegar það að verkum að það var nánast ómögulegt fyrir mig, eða aðra farþega, að koma Jeff til hjálpar. Skyndilega stekkur Jeff frá Kobba og bakkar hratt í áttina að mér, öskrandi: „Han har en kniv“ (í. hann hefur dregið upp kuta). Kobbi gengur á eftir Jeff og nemur staðar beint við hliðina á mér, með frekar grimmilega útlítandi hníf í hendinni. Ég fikraði mig frá þeim og spurði annan mann, sem við skulum kalla M. Night Shyamalan: „Skal vi ikke springe på ham og holde ham ned?“ (í. er ekki ráð að við tökum undir okkur stökk, bregðum fæti fyrir árásarmanninn og tökum hann svo í kleinu?) „Nej, han har en kniv!“ (í. Það tel ég ekki ráðlegt að svo stöddu. Hann heldur á kuta.) svaraði Shyamalan að bragði.

Í þeirri andrá stoppar lestin á næstu stoppistöð og hurðirnar opnast. Meirihluti farþeganna hraðaði sér út og ég þar á meðal. Kobbi stóð með hnífinn í hendinni og starði á Jeff. Kobbi virtist ekki beint líklegur til þess að stinga hann en aðstæður voru þannig að Jeff gat hvergi komist. Þegar hurðirnar voru að lokast aftur kallar einhver að það megi ekki láta lestina fara aftur af stað. Þar sem ég vildi að sjálfsögðu leika eitthvað hlutverk í hasarnum stökk ég á hurðina. Þökk sé stífri þjálfun í sumar, hjá Hilmari Birni Harðarsyni einkaþjálfara í World Class í Laugum, tókst mér að rífa hana opna aftur og troða svínslega vöxnum líkama mínum á milli, þannig að lestin gat ekki farið aftur af stað (fálkaorða sendist á Holger Danskes Vej 30, Fredriksberg, 2000 København, Danmark).

Jeff og Kobbi stóðu svo sem frosnir í sömu stellingum þar til lögreglan kom á svæðið um þremur mínutum síðar. Fyrst komu tveir lögreglumenn. Annar þeirra tók upp byssu og miðaði á Kobba en hinn hélt á kylfu og bjó sig undir að berja hann ef hann færi ekki að fyrirmælum þeirra. Lögreglumennirnir öskruðu á Kobba að láta frá sér hnífinn og leggjast á gólfið, sem Kobbi gerði hikstalaust. Þá stukku þeir á hann og járnuðu á honum hendurnar. Innan skamms komu fjórir lögregluþjónar í viðbót. Svo var farið með Kobba á brott. Eftir minni bestu vitneskju verður refsing hans sú að hann verður sendur í danskt gúlag um ókomna tíð eða hann skotinn á færi.

Lögreglan tók skýrslu af mér, Shyamalan og tveimur öðrum sjónarvottum, ásamt að sjálfsögðu Jeff. Jeff slapp óhultur og var það ákaflega gott, enda virtist hann viðkunnanlegur með eindæmum. Ég talaði við stuttlega við hann og sagði meðal annars: „Du var som en helt“ (í. Þú minntir á Guðlaug Friðþórsson þegar hann synti marga kílómetra í land eftir að Hellisey sökk í marsmánuði 1984). Og bætti við: „Jeg er ked af at jeg gjorde ikke noget til at hjælpe dig“ (í. mig tekur sáran að hafa ekki hjálpað þér á nokkurn hátt). Jeff kvaðst nú ekki erfa það og taldi að málið hefði verið leyst á farsælasta mögulega máta.

Stóru fréttir dagsins eru hins vegar þær að Tottenham tapaði 1-2 fyrir Aston Villa og situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Kobbi hefði betur ráðist á mig og klárað dæmið.


11 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

gott að vita að kvöldið var amk ekki með öllu ómögulegt

Ummæli af einsidan

Hey, þú heldur allavega ekki með Newcastle.

Ummæli af Hjalti Þór

Hetjan okkar. Þar skall hurð nærri hælum, fögnum því að þú sért óhultur. Þú þarf að fara að finna betra lið til að halda með. Fulham hefur líka fáa áhangendur….
Kveðja frá USA.
Tengdó

Ummæli af Mamma og Pabbi

Frábær færsla.

Þó ég taki undir vesæld Hjalta varandi Newcastle og endalausar ófarir þess félags, þá er Tottenham þó neðar á töflunni, því miður. Ef ég fengið að ráða þá myndu þessir klúbbar verma fyrst og annað sætið.

En svona er lífið.

Ummæli af Halldór Gröndal

hvaða lest var þetta? var þetta nokkuð E lestin ógurlega? C lestin er líka svakaleg, stoppar í Nörrebro og við vitum báðir hvað gerist þar, skotárásir og fleira.

gott að heyra samt að þú gast þvingað upp hurðina og hjálpað Jeff, annars hefði eflaust verið einhverjum blóðpottum fátækari.

Já og Gunnar Hrafn biður að heilsa.

Skemmtikveðja,
Addinn

Ummæli af Addinn

Það hlaut að vera ástæða fyrir fjarveru þinni í EBST í dag. Taktu þér allan þann tíma sem þú þarft til þess að jafna þig, mundu það að ég og Magnús erum hér með öxl til þess að gráta á.

Ummæli af Halli

Þó að leiðin virðist vönd
vertu aldrei hryggur.
Það er eins og hulin hönd
hjálpi er mest á liggur.

E. Jón Sigfússon Bergmann (1874-1927) frá Króksstöðum í Miðfirði.

Ummæli af Eva

Var það ekki í The Fugitive þar sem Harrison Ford svona rétt náði að komast í gegnum e-r lestardyr eftir að þær lokuðust …? man það ekki, kannski man Halldór Gröndal það..? en það móment kom allavega uppí kollinn á mér þegar ég las þetta… ég er stoltur af þér Björn… hefði verið nett samt ef þú hefðir tekið hnífagaurinn í svona fótaklemmu eins og saklausir sundgestir fengu oft að upplifa s.l. sumar…

Ummæli af Kristján Sturla

helvítis fótaklemman…

Ummæli af Haukur Harðar.

Stórskemmtileg, en um leið hrollvekjandi frásögn af háskalegri lestarferð. Ég er og mun alltaf verða stoltur af þér Bjölli rokk. Lít á þig sem einkason minn. Farðu nú varlega, þetta er hættulegur heimur.

Ummæli af Ragnar Snær

[...] skila henni. Einhvers staðar í millitíðinni var mér einnig gert að mæta í réttarhöld yfir hnífamanninum hressa og vitna gegn honum. En tilnefningar til Svínaverðlauna halda áfram að birtast á morgun eða [...]

Pingback af Gleðileg jól « Bjornbragi’s Weblog




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>