Bjornbragi’s Weblog


Af laukum og svínum
september 8, 2008, 12:43 pm
Flokkað undir: Heimspeki

#1 Hvers vegna segir maður að eitthvað sé laukrétt?

#2 Hvers vegna segir maður að eitthvað svínvirki?

Sá sem veit svörin við þessu er vinsamlegast beðinn um að deila vitneskju sinni með lesendum Svínkans. Öðrum stendur hins vegar til boða að koma með athyglisverðar tilgátur eða hnyttin tilsvör.


5 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

#1

Laukur var stundum notaður um það besta af einhverju. Þannig er talað um að einhver sé laukur ættarinnar og orðasambandið að stíga í laukana merkir að ‘lifa í sæld’. Líklegt er því að herðandi forliðurinn sé sóttur til merkingarinnar ‘það besta af einhverju’ og laukrétt sé því eitthvað sem er svo rétt að það getur ekki verið réttara.

#2

Svín- í sögninni svínvirka telst einnig til svokallaðra herðandi forliða.

Líklegt er að dönsk áhrif hafi upphaflega ýtt undir notkun forliðarins svín- en í því máli er svine- algengur herðandi forliður.

Þar hefuru það. Nú hef ég blessunarlega komið í veg fyrir allar lélegar tilraunir til húmors af hálfu JR og fleiri grínista. Og afleiðingin er betra blogg og skemmtilegra skoðanakerfi.

Comment af Halldór 'Vísindavefur' Gröndal

Einnig vil ég gera breytingu á fyrra kommenti mínu. Þar kvitta ég undir með sjálfgefna millinafninu “Vísindavefur”, en eftir á að hyggja þá hljómar “Vísindarefur” miklu betur.

Comment af Halldór 'Vísindarefur' Gröndal

Þetta er augljóslega rangt hjá Halldóri í ljósi þess að báðir eru forliðirnir skammstafanir.

Comment af Óttar

Ég lýsi yfir stríði á hendur Halldóri Gröndal… Það þýðir lítið að skjóta upp kollinum í 5% tilvika og ætla að vera voðalega hnyttinn… Ég fer reglulega inn á Svínkann og skemmti mér konunglega. Til að þakka fyrir mér þá kvitta ég við hverja færslu og skrifa það fyrsta sem kemur upp í hugann. Sem fyrrverandi/núverandi bloggari þá veit ég hvað komment gera mikið fyrir pistlahöfundinn. Ef blogg er eins og bíll þá er komment eldsneytið – nema hvað að það þarf ekki að vera Formúlu1 Super blýlaust… nóg að hafa það bara normalt 95…!

Góðar stundir og takk fyrir skemmtilega pælingu Björn Bragi…

Lifi bloggið og léleg komment

Jón “köngulóarefur” Jónsson

Comment af JR

ég efast um að við komumst nokkurn tímann til botns í þessu

Comment af einsidan




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>