Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi
Pétur Óskar er sigurvegari kvikmyndagetraunarinnar og hlýtur að launum veglega vinninga og mikinn heiður. Svolítið vandræðalegt að Jón Ragnar skuli hafa reynt að eigna sér heiðurinn.
Nú er ég búinn að búa í Danmörku í tæpar tvær vikur og er nánast orðinn danskur að fullu. Ég tala dönskuna reiprennandi og kann ekki lengur stakt orð í íslensku. Ég er kominn með danska kennitölu, á bara danska vini og er búinn að eignast danska fjölskyldu. Ég er meira að segja búinn að eignast tvíburadætur sem heita Pia og Peberfrugt.
Þrátt fyrir nýtt þjóðerni mitt er ég ekki enn farinn að kunna til vegar eins og hreinræktaður Dani. Um daginn var ég að hjóla í skólann og villtist svo svakalega að ég endaði í Vilníus, höfuðborg Litháen. Ástæðan fyrir því var sú að ég tók hægri beygju einum of snemma. Á myndinni að neðan má sjá leiðina sem ég fór.

Það er rétt að leiðrétta útbreiddan misskilning. Danir eru alls ekki feitir, sveittir og rauðir í framan. Þeir eru þvert á móti allir fríðir sem dádýr og með lægri fituprósentu en léttmjólk. Undanfarna daga hef ég reynt eftir fremsta megni að komast að því hvers vegna svo er, þar sem Danir drekka síst minni bjór en Íslendingar. Þeir eru greinilega á einhverju skotheldu róna-dieti.
Annar útbreiddur misskilningur meðal Íslendinga er sá að Dönum líki eitthvað við okkur Íslendinga. Þeir hata okkur. En reyndar ekki jafn mikið og þeir hata Norðmenn og Svía. Addinn ætlaði að komast til botns í málinu á dögunum og spurði danskan félaga sinn sakleysislega: “Why do you hate us?” Félaginn svaraði um hæl: “Because you took all our money!” Mér var brugðið þegar ég heyrði þetta. Nú geng ég alltaf með smekkfulla vasa af seðlum og gef dönsku fólki úti á götu, til að reyna að skila einhverju af því sem ég hef tekið frá dönsku þjóðinni.
Annars er ég kominn með frábæra viðskiptahugmynd. Ég ætla að stofna sólbaðsstofu með dönsku þema á Íslandi. Hún á að sjálfsögðu að heita Tanmörk.

Bolludagur Knattspyrnan á Íslandi er um margt ólík knattspyrnunni í Danmörku. Í Danaveldi er markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar til dæmis ekki þyngri en Elvis Presley var þegar hann fannst látinn.
3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
Djöfull er þetta gott blogg.
Comment af doddi september 7, 2008 @ 4:03 pmJeg er vanvittig og sindssyg. Du ser strålende ud! Du er dejlig. hahahahahaha
Comment af Addinn september 7, 2008 @ 5:24 pmÞessi færsla var svipað skemmtileg og það hefði verið ef skotið hjá Veigari Páli hefði farið inn á móti Norsurunum.
En varðandi íslendingahatrið er þetta mjög góð hugmynd hjá þér að ganga um með fulla vasa af seðlum. Ég var einmitt að skipta mánaðarlaununum sem ég fékk fyrir ágúst í 374 milljarða Zimbabwe-dollara og henti nú seðlum í danina sem óður væri. Sjáumst í hressleika á Strikinu á eftir gamli göltur. Segja það!
Comment af Haukur H. september 8, 2008 @ 12:34 pm