Flokkað undir: Grillað í Svínka
Lesendur DV hafa væntanlega rekið upp stór augu þegar þeir sáu hálfan mann og hálft svín í blaðinu í dag. Það var að sjálfsögðu ég, en sagan af hnífamanninum góða rak á fjörur þeirra og var sagt frá málinu í blaðinu (sjá að ofan). Ég bíð nú spenntur eftir að Óttar Sveinsson skrifi Útkalls-bók um reynslu mína. Hún myndi væntanlega heita Útkall í lestinni.
Frá Danmörku er þó allt gott að frétta og engir fleiri hnífamenn hafa látið á sér kræla. Þó höfum við Íslendingar í Danmörku nokkrar áhyggjur af stöðu íslensku krónunnar. Hún er jú orðin jafn veik og lögfræðingurinn Andrew Beckett var á 104. mínútu kvikmyndarinnar Philadelphia. Af þeim sökum er orðið fremur dýrt að vera á lífi. Ég keypti mér til að mynda banana í dag og þurfti að greiða fyrir hann 140 þúsund íslenskar krónur, hárið á mér og allar fyllingar úr tönnunum.
Af þessum sökum hef ég tekið upp á óhefðbundum aðferðum við að verða mér úti um peninga. Ég er orðinn handrukkari. Mitt fyrsta verk var að búa til 100 þúsund króna skuld á Hauk Harðarson. Þegar hann neitaði að borga bankaði ég upp á hjá honum og tók hann í fótaklemmu. Svo kveikti ég í reiðhjólinu hans. Þá gafst hann upp og greiddi skuldina.
Og ekki nóg með það. Ég er kominn með enn eina viðskiptahugmyndina, sem ég mun bera undir Mjólkursamsöluna um jólin. Hún er sú að setja á markað jógúrt með bjórbragði. Varan mun að sjálfsögðu hljóta nafnið Bjórgúrt og verður markaðssett sem heilsusamleg lausn fyrir drykkjufólk sem vill koma sér í form án þess að setja tappann í flöskuna.
Anna er búin að gera plötusamning við Senu og gefur út sína fyrstu sólóplötu á Íslandi um jólin. Eins og gengur og gerist í bransanum þarf Anna að færa ýmsar fórnir. Skemmst er að minnast þess að Jóhanna Guðrún breytti nafninu sínu í Yohanna og Anna þarf líka að skipta um nafn. Hafa Senu-menn ákveðið að Anna taki upp nafnið Ríðu-Anna, sem skírskotun í Rihönnu.
Að lokum tel ég rétt að fara nokkrum orðum um rafrænt stríð séra Halldórs Gröndals og Jóns Ragnars. Halldór reit nýverið eftirfarandi ummæli í skoðanakerfið: „Nú hef ég blessunarlega komið í veg fyrir allar lélegar tilraunir til húmors af hálfu JR og fleiri grínista. Og afleiðingin er betra blogg og skemmtilegra skoðanakerfi.“ Fóru þau mjög fyrir brjóstið á Jóni, sem lýsti yfir stríði í kjölfarið. Ég verð að segja að ég hef mjög gaman af því að fá athugasemdir á Svínkann, hversu vitsmunalegar sem þær eru, og hvet alla lesendur til að skilja eftir sig nokkur orð. Ég þakka Gröndali fyrir góðar athugasemdir en bið hann um leið að endurskoða ummæli sín um Jón Ragnar. Sá síðarnefndi hefur verið afar ötull við að skilja eftir sig skemmtilegar athugasemdir á Svínkanum og, eins og hann benti réttilega á, eru athugasemdir bensín á vél bloggarans. Ef við höfum ekki ást fyrir hvort annað, hvað höfum við þá?
Góðar stundir.
Flokkað undir: Notaðu skurðarbretti drengur

Í huga brjálæðings Séð með augum Kobba kviðristu í lestinni.
„Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg, með ljósum prýddar götur og hrein og fögur torg.“ Svo var kveðið í ónefndu forvarnarlagi um árið. En hætturnar leynast víðar en í borg óttans. Kaupmannahöfn er að minnsta kosti ekki öll þar sem hún er séð. Tekið skal fram að þrátt fyrir að Svínkinn hafi endrum og eins verið sakaður um að skreyta eða skálda í færslum sínum er eftirfarandi frásögn jafn sönn og dagurinn er langur.
Eftir að hafa lokið við að hlusta á fyrirlestur í kúrsinum Advanced Service Marketing í dag ákvað ég að leggja leið mína niður í miðbæ Kaupmannahafnar. Ætlunin var að horfa á leik Tottenham og Aston Villa síðar um kvöldið. Klukkan sló 17 þegar ég steig inn í neðanjarðarlest á stoppistöðinni í Fredriksberg. Um leið og hurðin lokaðist á eftir mér tók ég eftir því að það var styr á milli tveggja manna við innganginn sem var næstur þeim sem ég kom inn um. Annar þeirra sat en hinn stóð yfir honum. Köllum hinn sitjandi mann Jeff, þar sem hann leit út eins og ungur og vinalegur Jeff Goldblum. Köllum hinn standandi mann Kobba, í höfuðið á Kobba kviðristu. Jeff var á að giska um 35 ára en Kobbi líklega rétt rúmlega tvítugur. Kobbi var hvítur, hávaxinn, með gleraugu og klæddur í föt sem Eminem hætti að ganga í fyrir áratug. Breski veðbankinn William Hill gaf stuðulinn 1,25 á að hann væri undir áhrifum efna sem er ekki að finna í lotukerfinu. Jeff var sömuleiðis hávaxinn og grannur, en ólíkt Kobba virtist hann vera gegn og skynsamur maður. Sannkallaður Bonus pater. Kobbi og Jeff þekktust ekki neitt.
Þrátt fyrir að ég sé í dag orðinn jafn danskur og smurbrauð með skarkola, remúlaði og sítrónu tókst mér ekki að skilja nákvæmlega hvað fór á milli þeirra. En sjötta skilningarvit mitt sagði mér Kobbi væri einfaldlega að leita að veseni, hirðulaus um í hvaða formi það væri. Hann sakaði Jeff um að sitja í sætinu sínu – vafalaust klassísk tilþrif frá manni eins og Kobba. Án nokkurs fyrirvara kýldi Kobbi svo Jeff með hægri krók. Jeff mátti sín lítils þar sem hann sat og stóð í snarhasti upp. Hann hélt Kobba frá sér, án þess þó að gera nokkuð á móti. Af vexti þeirra að dæma hefði Jeff þó verið síst minna sigurstranglegur í bardaga. En okkar maður vildi augljóslega ekki dansa þann tangó sem Kobbi gerði ágenga tilraun til að bjóða honum upp í.
Kobbi hélt áfram að veitast að Jeff og sá síðarnefndi tók upp á því að grípa í rimlana í loftinu á lestinni og sparka Kobba frá sér. Nokkuð klókt hjá okkar manni. Gangurinn var þröngur og auðvelt að halda árásarmanninum frá sér með þessum hætti. Sömuleiðis gerðu aðstæður það hins vegar það að verkum að það var nánast ómögulegt fyrir mig, eða aðra farþega, að koma Jeff til hjálpar. Skyndilega stekkur Jeff frá Kobba og bakkar hratt í áttina að mér, öskrandi: „Han har en kniv“ (í. hann hefur dregið upp kuta). Kobbi gengur á eftir Jeff og nemur staðar beint við hliðina á mér, með frekar grimmilega útlítandi hníf í hendinni. Ég fikraði mig frá þeim og spurði annan mann, sem við skulum kalla M. Night Shyamalan: „Skal vi ikke springe på ham og holde ham ned?“ (í. er ekki ráð að við tökum undir okkur stökk, bregðum fæti fyrir árásarmanninn og tökum hann svo í kleinu?) „Nej, han har en kniv!“ (í. Það tel ég ekki ráðlegt að svo stöddu. Hann heldur á kuta.) svaraði Shyamalan að bragði.
Í þeirri andrá stoppar lestin á næstu stoppistöð og hurðirnar opnast. Meirihluti farþeganna hraðaði sér út og ég þar á meðal. Kobbi stóð með hnífinn í hendinni og starði á Jeff. Kobbi virtist ekki beint líklegur til þess að stinga hann en aðstæður voru þannig að Jeff gat hvergi komist. Þegar hurðirnar voru að lokast aftur kallar einhver að það megi ekki láta lestina fara aftur af stað. Þar sem ég vildi að sjálfsögðu leika eitthvað hlutverk í hasarnum stökk ég á hurðina. Þökk sé stífri þjálfun í sumar, hjá Hilmari Birni Harðarsyni einkaþjálfara í World Class í Laugum, tókst mér að rífa hana opna aftur og troða svínslega vöxnum líkama mínum á milli, þannig að lestin gat ekki farið aftur af stað (fálkaorða sendist á Holger Danskes Vej 30, Fredriksberg, 2000 København, Danmark).
Jeff og Kobbi stóðu svo sem frosnir í sömu stellingum þar til lögreglan kom á svæðið um þremur mínutum síðar. Fyrst komu tveir lögreglumenn. Annar þeirra tók upp byssu og miðaði á Kobba en hinn hélt á kylfu og bjó sig undir að berja hann ef hann færi ekki að fyrirmælum þeirra. Lögreglumennirnir öskruðu á Kobba að láta frá sér hnífinn og leggjast á gólfið, sem Kobbi gerði hikstalaust. Þá stukku þeir á hann og járnuðu á honum hendurnar. Innan skamms komu fjórir lögregluþjónar í viðbót. Svo var farið með Kobba á brott. Eftir minni bestu vitneskju verður refsing hans sú að hann verður sendur í danskt gúlag um ókomna tíð eða hann skotinn á færi.
Lögreglan tók skýrslu af mér, Shyamalan og tveimur öðrum sjónarvottum, ásamt að sjálfsögðu Jeff. Jeff slapp óhultur og var það ákaflega gott, enda virtist hann viðkunnanlegur með eindæmum. Ég talaði við stuttlega við hann og sagði meðal annars: „Du var som en helt“ (í. Þú minntir á Guðlaug Friðþórsson þegar hann synti marga kílómetra í land eftir að Hellisey sökk í marsmánuði 1984). Og bætti við: „Jeg er ked af at jeg gjorde ikke noget til at hjælpe dig“ (í. mig tekur sáran að hafa ekki hjálpað þér á nokkurn hátt). Jeff kvaðst nú ekki erfa það og taldi að málið hefði verið leyst á farsælasta mögulega máta.
Stóru fréttir dagsins eru hins vegar þær að Tottenham tapaði 1-2 fyrir Aston Villa og situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Kobbi hefði betur ráðist á mig og klárað dæmið.
Flokkað undir: Heimspeki

#1 Hvers vegna segir maður að eitthvað sé laukrétt?
#2 Hvers vegna segir maður að eitthvað svínvirki?
Sá sem veit svörin við þessu er vinsamlegast beðinn um að deila vitneskju sinni með lesendum Svínkans. Öðrum stendur hins vegar til boða að koma með athyglisverðar tilgátur eða hnyttin tilsvör.
Flokkað undir: Margt er rotið í Danaveldi
Pétur Óskar er sigurvegari kvikmyndagetraunarinnar og hlýtur að launum veglega vinninga og mikinn heiður. Svolítið vandræðalegt að Jón Ragnar skuli hafa reynt að eigna sér heiðurinn.
Nú er ég búinn að búa í Danmörku í tæpar tvær vikur og er nánast orðinn danskur að fullu. Ég tala dönskuna reiprennandi og kann ekki lengur stakt orð í íslensku. Ég er kominn með danska kennitölu, á bara danska vini og er búinn að eignast danska fjölskyldu. Ég er meira að segja búinn að eignast tvíburadætur sem heita Pia og Peberfrugt.
Þrátt fyrir nýtt þjóðerni mitt er ég ekki enn farinn að kunna til vegar eins og hreinræktaður Dani. Um daginn var ég að hjóla í skólann og villtist svo svakalega að ég endaði í Vilníus, höfuðborg Litháen. Ástæðan fyrir því var sú að ég tók hægri beygju einum of snemma. Á myndinni að neðan má sjá leiðina sem ég fór.

Það er rétt að leiðrétta útbreiddan misskilning. Danir eru alls ekki feitir, sveittir og rauðir í framan. Þeir eru þvert á móti allir fríðir sem dádýr og með lægri fituprósentu en léttmjólk. Undanfarna daga hef ég reynt eftir fremsta megni að komast að því hvers vegna svo er, þar sem Danir drekka síst minni bjór en Íslendingar. Þeir eru greinilega á einhverju skotheldu róna-dieti.
Annar útbreiddur misskilningur meðal Íslendinga er sá að Dönum líki eitthvað við okkur Íslendinga. Þeir hata okkur. En reyndar ekki jafn mikið og þeir hata Norðmenn og Svía. Addinn ætlaði að komast til botns í málinu á dögunum og spurði danskan félaga sinn sakleysislega: “Why do you hate us?” Félaginn svaraði um hæl: “Because you took all our money!” Mér var brugðið þegar ég heyrði þetta. Nú geng ég alltaf með smekkfulla vasa af seðlum og gef dönsku fólki úti á götu, til að reyna að skila einhverju af því sem ég hef tekið frá dönsku þjóðinni.
Annars er ég kominn með frábæra viðskiptahugmynd. Ég ætla að stofna sólbaðsstofu með dönsku þema á Íslandi. Hún á að sjálfsögðu að heita Tanmörk.

Bolludagur Knattspyrnan á Íslandi er um margt ólík knattspyrnunni í Danmörku. Í Danaveldi er markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar til dæmis ekki þyngri en Elvis Presley var þegar hann fannst látinn.
Flokkað undir: Getraun
Gaurinn á myndunum hér fyrir neðan hefur breyst allsvakalega í útliti frá því að hann lék eftirminnilegt hlutverk í frægri bíómynd. Myndin kom út fyrir rúmum áratug. Hver er kvikmyndin (og hvað heitir leikarinn ef einhver er svo mikill seiðskratti að vita það líka)?
Verðlaunin fyrir rétt svar eru ekki af verri endanum, en ef einhver getur svarað þessu hlýtur hann 100.000 króna inneign á húðflúrstofunni Tattoo 69 á Hverfisgötu og árs áskrift að tímaritinu Frjáls þjóð.
Flokkað undir: Þú verður að borða eitthvað drengur

Hlaupið undan örlögunum Síðasta myndin sem var tekin af Tóta.
Lögreglan í Fredriksberg lýsir eftir 23 ára karlmanni, sem hvarf frá heimili sínu að Holger Danskes Vej 30 um miðjan dag í gær, sunnudag. Maðurinn er 184cm á hæð, 46 kíló, jarpur á hörund og gengur undir nafinu Tóti. Hann var klæddur í hlaupaskó frá Asics og eþíópíska frjálsíþróttabúninginn þegar síðast sást til hans. Verði fólk vart við manninn er það beðið að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 32 51 51 51. Fólki er ekki ráðlagt að reyna að koma höndum yfir manninn þar sem hann þykir með ólíkindum snöggur.


