Flokkað undir: Uncategorized

Heitt í kolunum Maður var ekki lengi að krækja sér í lítinn fagga.
Nú er vika síðan ég varð danskur ríkisborgari og hefur líf mitt tekið stakkaskiptum á þessum stutta tíma. Ég er að mestu búinn að gleyma íslenskunni, en er ekki enn farinn að læra dönskuna, þannig að ég er í raun maður án tungumáls. Af þeim sökum þarf ég að notast við bendingar og hljóð við hvers kyns tjáskipti. Þessi færsla er því ekki rituð af sjálfum mér, heldur danska rithöfundinum Ole Lund Kirkegaard. Hann fraus reyndar í hel fyrir tæpum þremur áratugum síðan, en tækni nútímans hefur gert mér kleift að blogga með þessum hætti.
Unnusti minn, Þórarinn Örn, hefur verið hjá mér þessa fyrstu daga en er á heimleið á morgun. Við höfum lent í ýmsum ævintýrum. Til dæmis stíflaði Þórarinn klósettið heima hjá systur minni. Ástæðan fyrir því að það gerðist var sú að Þórarinn borðar svo trefjaríkt fæði að hægðirnar hans mælast í styrkleikanum 9,5 á Mohs-kvarðanum, en Mohs-kvarðinn er notaður við að ákvarða hörku efna. Demantar eru því eina efnið í veröldinni sem er harðgerðara en hægðir Þórarins. Tóti þurfti að sækja hægðirnar upp úr klósettinu með gaffli og urða þær á eyðibýli skammt utan við Kaupmannahöfn.
Gíraffinn Anna er að slá í gegn í lýðháskólanum þar sem söngur og leikur ráða ríkjum. Fyrirhugað er að setja upp söngleikinn Sólsting í vetur, en hann hefur, eins og kunnugt er, hlotið verðlaun um heim allan fyrir bæði versta handrit sem skrifað hefur verið og ófyndnustu brandara leikhússögunnar. Forsvarsmenn skólans eru í samningaviðræðum við Jón Ragnar Jónsson um að hita upp fyrir söngleikinn með því að flytja Rónasketsinn í tveggja klukkustunda einleik. Áætlað er að greiða öllum þeim sem geta hugsað sér að sjá herlegheitin tæpar 10.000 danskar krónur, andvirði um 164.000 íslenskra króna á gengi dagsins í dag.
Það eru fleiri Íslendingar að gera það gott í Kaupmannahöfn. Magnús Berg fannst loksins í íbúðinni sinni eftir þriggja daga leit danskra björgunarsveitamanna. Ekkert hafði spurst til Magnúsar í nokkurn tíma, en hann hafði legið fastur undir 300 tommu flatskjá á 9. hæð í vesturálmu íbúðarinnar. Íbúðin er um 240.000 fermetrar, eða 10 sinnum stærri en Egilshöll.
Grímur Gullrass og Haukur Harðarson, sem eru gjarnan kallaðir heitasta hommapar Íslands, eru ekki síður heitir í Danaveldi. Þeir eru komnir með sjónvarpsþátt á TV2, sem á að fjalla um heimili og hönnun og munu þeir gefa margvísleg góð ráð. Grímur og Haukur hafa þegar verið útnefndir Beggi og Pacas Danmerkur.
Ólafur Kolbeinn Wong hefur hins vegar ekkert sést, en hann mun hafa lokað sig inni með eiginkonu sinni, Yoko Ono, fyrrum eiginkonu John Lennon. Þau eru bæði hætt í skóla og ætla að opna kínverskan veitingastað í Kaupmannahöfn, sem mun hafa þá sérstöðu að bjóða eingöngu upp á mat sem inniheldur aspartam.
Að lokum. Þeir sem vita hvað orðið “nysgerrighed” þýðir teljast góðir í dönsku.