Svínið lifir
ágúst 27, 2008, 9:01 pm
Flokkað undir: Uncategorized
Flokkað undir: Uncategorized
Svínkinn biðst innilegrar afsökunar á því að hafa ekkert bloggað í óratíð. Það er ástæða til að hrekja allar kenningar um að Svínkinn sé dauður eða bloggið að líða undir lok. Svínið lifir áfram og bloggið mun ná fyrri hæðum og svífa enn hærra en nokkru sinni fyrr.
Aðalástæðan fyrir bloggleysi er sú að ég var í sumarprófum og í kjölfarið flutti ég til Kaupmannahafnar, þar sem ég er nú. Hér verð ég í skiptinámi við CBS (Copenhagen Business School) í vetur. Núna vil ég hins vegar aðeins láta alla mína heittelskuðu vini og vandamenn fá nýja númerið mitt, sem ég er með hérna úti. Það er: (0045) 256 33 900. Skrifið það niður eða húðflúrið á kynfæri ykkar. Hringið svo í mig þegar eitthvað bjátar á.
Ástarkveðjur,
H.Svín Andersen
1 ummæli