Flokkað undir: Ekki hlægja að honum. Annars hættir hann aldrei.
Níðst á minni máttar Svínkinn fer illa með vini sína.
Svínkinn biðst innilegrar afsökunar á bloggleysi, en hann hefur þjáðst af gin- og klaufaveiki. Hér verður drepið á því helsta sem komið hefur upp í þjóðfélaginu undanfarna daga.
- Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram og formaður Videonefndar, var valinn feitasti leikmaður Íslandsmótsins af áskrifendum Stöð 2 Sport. Hannes hlaut jafn mörg atkvæði og Björgólfur Takefusa, leikmaður KR, en þar sem Hannes er með hærri fituprósentu en Björgólfur, eða 46%, hlaut hann útnefninguna. Hannes hlýtur að launum áskrift að Stöð 2 Sport í eitt ár og kassa af Doritos með Cool American bragði.
- Þvert á móti hefur Haukur Harðarson horast niður sem aldrei fyrr. Haukur stefnir sem kunnugt er á þátttöku í Norðurlandamótinu í anorexíu, sem fram fer í Malmö í Svíþjóð í október, en lágmarksþyngd á mótið er 48 kíló. Haukur er 52 kíló í dag og er nýlega byrjaður á svokölluðum “Crash Diet” megrunarkúr. Kúrinn gengur í meginatriðum út á að hann má aðeins innbyrða mat sem tekur meira en þrjár sekúndur að falla í jörðina þegar honum sleppt úr opnum lófa í axlarhæð. Um er að ræða mat eins og lauf, flugur, klósettpappírssnifsi og einhverjar tegundir af mjöli.
- Svínkinn sjálfur er kominn með íbúð í Danmörku, en þangað flytur hann 24. ágúst næstkomandi. Svínkinn mun búa í Tal-kúlutjaldi, sem hefur verið komið fyrir á Kongens Nytorv, og mun deila því með róna. Greiðir hann í leigu 100 krónur danskar á mánuði, andvirði 13,6 milljóna íslenskra króna.
- Þórarinn Blær Sólveigarson hefur sent skriflega beiðni á alla prent- og ljósvakamiðla á Íslandi um að birta ekki myndir sem voru teknar af honum og 13 ára stúlku í ástaratlotum í Rauðavatnsskógi. Þórarinn, eða Rauðavatnsfitlarinn eins og hann var kallaður í DV á miðvikudaginn, hélt því upphaflega fram að stúlkan væri systir hans og hann væri einfaldlega að „sýna henni svolítið.“ Síðar kom á daginn að hún hafði engin tengsl við hann. Þórarni er auk þess gert að sök að hafa berað sig í vefmyndavél í msn-samskiptum við ungar stúlkur. Fólki er ráðlagt að gæta sín á netfanginu torres_boy69@hotmail.com, en það er netfang Þórarins.
- Ómar Þór Ómarsson hefur lagt lokahönd á unglingabókina Strákar eins og við sem hann ætlar að gefa út um jólin. Auk þess mun Ómar standa fyrir sjálfshjálparnámskeiði fyrir „unga og hressa stráka sem hafa orðið utanvelta í þjóðfélaginu“ eins og segir í auglýsingu frá Ómari sjálfum.
- Grímur Helgi Gíslason er búinn að bóka tíma í svuntuaðgerð í Kína, en aðgerðin er svo umfangsmikil og vafasöm að hana má ekki framkvæma í neinu ríki sem á aðild að Schengen-sáttmálanum. „Nú get ég ekki meir,“ sagði Grímur þegar Svínkinn náði tali af honum, en hann hefur fitnað um liðlega 90 kíló frá því í ársbyrjun. Ástæðuna má rekja til þess að þegar kreppan skall á tók Grímur dramatíska ákvörðun um að borða alla lausa- og fastafjármuni sína, með fyrrgreindum afleiðingum.
- Óttar Snædal Jensson á hins vegar ráð undir hverju rifi í kreppunni, enda útskrifaður hagfræðingur úr Trúðaskóla Íslands. Óttar seldi tímaritinu Séð og heyrt hárið á sér, DVD-tónleika með Uriah Heep og þrjá brandara úr eigin safni. Fyrir það hlaut hann 10 happaþrennur og bol.
- Davíð Gill Jónsson gekk hins vegar ennþá lengra og seldi stafina D, í og ð úr fyrra nafninu sínu og allt nafnið Gill. Þar af leiðandi heitir hann einfaldlega av Jónsson í dag. Kaupandinn er ónefndur kaupsýslumaður frá Mið-Austurlöndum.
- Allan Sigurðsson var á þriðjudag útnefndur „minnst asískasti Asíubúi jarðar“ við athöfn í Norræna húsinu. Dómnefnd mat svo að þeir eiginleikar Allans að vera húðlatur, gráðugur og eyðslusamur væru ekki í takt við asíska arfleið hans og því átti hann titilinn vísan. Í þakkarræðu greindi Allan frá því að hann væri í raun og veru frá Grænlandi og hefði siglt til Íslands frá Kangerlussuaq á sjókajak árið 1993.
11 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
haha þvílíkt rugl
Comment af Allan Sigurðsson júlí 18, 2008 @ 6:26 pmþetta er það gott blogg, að ég geri kröfu á a.m.k. eina færslu á dag!!!
Comment af Addinn júlí 24, 2008 @ 4:16 pmhefur svínkinn verið úrskúrðaður látinn?
Comment af Óli Már júlí 31, 2008 @ 1:04 pmBjörn Bragi er búinn að drepa svínið sem hefur lifað með honum í öll þessi ár. Þannig að já, svínkinn er látinn.
Comment af Viðar júlí 31, 2008 @ 5:01 pmHættið þessu kjaftæði. Það drepur enginn svínið!
Comment af Óttar júlí 31, 2008 @ 9:20 pmEf svínið deyr mun ég skera sjálfan mig á háls í beinni útsendingu ÍA – Fram til stuðnings fjölskyldu þess.
Comment af Ómar Þór ágúst 5, 2008 @ 4:44 pmÉg er brjálaður, skrifaðu.
Comment af Magnús ágúst 7, 2008 @ 8:02 amÍ samræmi við 2. grein gildandi laga nr 15/1991 um ákvörðun dauða, er hér með ákvörðuð dánarstund þess vefseturs; 11:43, föstudaginn 15.ágúst. Þar eð enginn heilastarfsemi er lengur til staðar á vefsetrinu bjornbragi.wordpress.com. Af moldu ertu kominn…etc…
Comment af Jóhann Alfreð ágúst 15, 2008 @ 11:50 amÉg skora á alla lesendur síðunnar að hóta hér lífláti svo að svínkinn skrifi… Ef ekki verður búið að setja inn nýja færslu hér þann 31. ágúst þá neyðist ég til að taka mitt eigið líf…
Comment af JR ágúst 16, 2008 @ 12:55 pmÉg tek áskorun J.R. Ewing og hef nú hafið lyfjakúr sem mun smátt og smátt eyða þeim Óttari sem þið þekkið og dáið og að lokum draga mig til dauða þann 31.ágúst. Einungis bloggfærsla frá svíni mun stöðva þetta ferli.
Svínið hefur því til 31. ágúst til að halda mér á lífi og til 27.ágúst til að halda mér talandi og með einhvern mátt í neðri skrokknum.
Comment af Óttar ágúst 17, 2008 @ 3:48 pmbloggaðu tussan þín
Comment af Doddi ágúst 20, 2008 @ 1:01 pm