Bjornbragi’s Weblog


Myndir frá Svínaskeldu 2008
júlí 7, 2008, 10:42 am
Flokkað undir: Glatt á hjalla, Grillað í Svínka

Afmæli Björns Braga, sem hlotið hefur nafnið Svínaskelda, var haldið með pompi og prakt síðasta föstudagskvöld. Veislan fór að mestu leyti friðsamlega fram, ef frá er talið leiðinlegt atvik þegar Grímur Helgi Gíslason tók bræðiskast er honum þótti dómgæslan í Svínablingi halla á sig. Grímur varð nýverið mikill stuðningsmaður knattspyrnuliðsins ÍA og útskýrist hegðun hans að einhverju leyti af því. Svínablingið endaði annars þannig að Norður-Kóreumenn sigruðu, öllum að óvörum, og skutu þar með Ísraelsmönnum, Sovétmönnum og Nasistum ref fyrir rass.

Svínkinn hefur sett inn myndir frá herlegheitunum og má nálgast þær hér, eða í tenglunum á vinstri hönd. Að neðan eru nokkrar vel valdar með útskýringum.

Image and video hosting by TinyPic
Fjölþjóðleg vinátta Viðar vílaði ekki fyrir sér að blanda geði við asíska minnihlutann.

Image and video hosting by TinyPic
Ekkert vesen núna Grímur gefur alþjóðlegt merki um að hann komi í friði. Ómar fylgist hneykslaður með, enda kom hann í þeim tilgangi að lenda í bardaga.

Image and video hosting by TinyPic
Á meðan allt lék í lyndi Það er skemmtileg tilviljun að á sama augnabliki og þessi hópmynd var tekin var Kristján Sturla að falla til jarðar. Kristján lenti fyrir aftan hópinn og lést samstundis.

Image and video hosting by TinyPic
Nakinn og reiður Óttar Snædal, sonur Jens Lehmann, sá ástæðu til að svipta sig klæðum þegar upp hófust eldheitar umræður um hvort Oliver Kahn eða faðir hans væri réttmætur handhafi treyju númer 1 hjá þýska landsliðinu.

Image and video hosting by TinyPic
Egils Lite Þú berð hann ekki utan á þér.

Image and video hosting by TinyPic
Örlagaspjöld Vöktu mikla lukku, en á sama tíma ollu þau vinslitum.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Kjarval? Viðar fékk það hlutverk að teikna Steingrím Njálsson fyrir liðsfélaga sína og tókst þeim að fatta það á innan við 10 sekúndum. Hér má sjá afraksturinn.

Image and video hosting by TinyPic
Næsti Donald Trump? Davíð Gill frumsýndi hárkollu sem hann lét sauma á sig í Bandaríkjunum.

Image and video hosting by TinyPic
Gleðst þrátt fyrir erfiðleika Hannes varð ánægður þegar hann komst að því að hann þyrfti ekki að taka útspörk í veislunni.

Image and video hosting by TinyPic
Tveir faggar Viðar gerir Jóni Ragnari ljóst að ef hann ætlar sér að vera tekinn alvarlega þarf hann að þjálfa latsana betur.


4 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Takk kærlega fyrir mig, þetta var snilldin ein..

Óli Páll er ennþá fúll útí mig, hann heldur því fram að ég hafi samið örlagaspjöldin um hann.

Comment af Viðar

Takk fyrir mig.. þetta var gífurlega skemmtilegt..

En við skulum hafa það á hreinu að þó leikurinn hafi verið mjög skemmtilegur þá voru ýmsir gallar sem aðeins ég greinilega kom auga á. Dómgæslan byrjaði vel en það fór að halla aðeins á hana undir lokin. Svínabaróninn eins og ég kýs að kalla dómarann var greinilega búinn að leggja á ráðin fyrir fram og halda fundi í lokuðu rými að taka fast á nasistunum. Það sýndi sig á föstudagskvöldið.

Comment af Grímur

Hi webmaster!

Comment af Kazelwck

Hi webmaster!

Comment af Kazelwdv




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>