Bjornbragi’s Weblog


Garðar Stefánsson setur upp járntjald fyrir leik Rússa og Spánverja
júní 26, 2008, 4:41 pm
Flokkað undir: Knattspyrna

Image and video hosting by TinyPic
Í herklæðum Garðar á tindi Elbrus í sovésku treyjunni, en þar hefur hann hreiðrað um sig í sumar. Sovétmenn leika einir þjóða í ullarpeysu og hettupeysu innundir.

„Það er vissulega gaman að fylgjast með velgengni Sovétmanna og hruni vesturríkjanna í Evrópukeppninni. Það má með sanni segja að sigur minna manna yfir Hollendingum hafi verið svar Rússa við eldflugnavarnarkerfi Bandaríkjanna“,“ segir Garðar Stefánsson, harðlínukommúnisti og einarður stuðningsmaður Rússa á Evrópumótinu í knattspyrnu. Hann hlakkar mikið til viðureignar Rússa og Spánverja í kvöld og hefur mikla trú á sínum mönnum. „Ég spái því að Sovétmenn taki þetta í framlengingu 2-1.“

Járntjaldið var hamingjutjald
Fari Rússar með sigur af hólmi bíða þeirra Þjóðverjar í úrslitunum, en þjóðirnar hafa löngum eldað grátt silfur saman. „Ef við töpum fyrir Þjóðverjum þá er ekki hægt að útiloka innrás í landið, þar sem við munum endurheimta Austur-Þýskaland,“ segir Garðar ákveðinn, en býst þó ekki við að til þess muni koma. „Sovétmenn vinna EM!“ fullyrðir hann.

Garðar hefur verið mikið viðriðinn stúdentapólitíkina í Háskóla Íslands og er, sem fyrr segir, róttækur vinstri öfgamaður. Á meðal þess sem hann hefur beitt sér fyrir er að járntjaldið verði „reist“ að nýju og sundurliðuð Sovétríkin sameinuð að nýju.

„Mér finnst járntjaldið ekki vera nógu góð lýsing á þeim dásamlegu hlutum sem áttu sér stað á árunum 1945-1991 í Austur-Evrópu. Frekar myndi ég nota orðið Hamingjutjaldið þar sem sósílismi felur aðallega í sér að jafna mun og losa okkur við þá firringu sem hin vestrænu illu öfl hafa komið í kring. Enda erum við að verða vitni að endalokum kapítalismans í þessum töluðum orðum. Hækkun á matarverði og hátt eldsneytisverð er eitthvað sem Sovetríkin sáu fyrir og höfðu lausn á. Hver var þessi lausn Sovétríkjanna, þú spyrð mig? Jú, að útrýma verðum! Hvað annað?!“ segir Garðar.

Arshavin er hinn nýi Khusainov
Aftur að knattspyrnunni. Þegar Garðar er spurður hvort Rússneska liðið eigi í dag leikmann á borð við hinn 164 sentímetra háa Galimzyan Khusainov, sem sló í gegn á HM 1962 OG 1966, er hann fljótur til svars. „Það er klárlega Andrei Arshavin, leikmaður Zenit St. Petersburg. Hann er eftilvill lítið eitt hærri en Khusainov, en það má rekja til byltingar í landbúnaðarframleiðslu Sovétríkjanna sem átti sér stað frá 1975-1985,“ segir hann og æpir svo: „Áfram Gosudarstvenny gimn Rossiyskoy Federatsii.“ Eftir umfangsmikla rannsóknarvinnu kom í ljós að það er þjóðsöngur Rússa.

Að lokum liggur beinast við að spyrja Garðar spurningarinnar sem brennur á allra vörum: Er Stalín á lífi? „Stalín er á lífi, í hjörtum allra rétthugsandi manna!“ svarar hann að bragði.

Image and video hosting by TinyPic
Ungur Stalín Andrei Arshavin reynir að ritskoða fagn áhangenda á EM með því að sussa á þá. Hann verður í eldlínunni í kvöld.