Bjornbragi’s Weblog


Helgin í molum
júní 9, 2008, 10:00 am
Flokkað undir: Helgi Björns

Image and video hosting by TinyPic
Kristján Valdimarsson Myndin er tekin á Kaffibarnum.

Fram til þessa hafa stuðningsmenn Fylkis sungið fyrir Kristján Valdimarsson: „Stjáni er æði, æði, æði… Stjáni varnarjaxl!“ En á Kaffibarnum söng fólk: „Stjáni er með sæði, sæði, sæði… sæði á jakkanum.“

Fólki þótti einnig skrýtið að hann skyldi vera í Fylkistreyjunni við jakkafötin sem hann var í.

Hanna Borg má muna sinn fífil fegurri, en henni var hent út af Kaffibarnum fyrir að æla á barborðið.

Tóti slapp hins vegar með skrekkinn og fékk að hanga inni á sama stað þrátt fyrir að hafa bitið fleiri en eina stelpu þannig að á sást.

Hann varð sér hins vegar til minnkunar þegar upp komst að hann hafði sjálfur saumað Prada og Armani merki á fötin sem hann var í, en þau voru raunverulega keypt í Europris.

Af hverju ekki leigubílaröð og zero mávar?

Viðar, sem þjáist af andhverfri anorexíu, er hættur að drekka en ætlar þess í stað að borða svo mikið að hann hljóti vímu af þegar hann fer út á lífið.

Jóhann Alfreð er tilbúinn að leyfa mér að ríða honum í rass fyrir 100 þúsund kall en neitar að gefa það upp til skatts. Af þeim sökum get ég ekki gengið að tilboðinu, enda er ég löghlýðinn.


4 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Björn Bragi – mikið þætti mér gaman að skyggnast inn í kollinn á þér til að fylgjast með þessu sjálfstæða lífi sem við lifum þar. Þar gerast hlutir sem fara greinilega bara alveg framhjá okkur sjálfum. Ég fílaði nú dauðafélagssíðuna betur en þennan uppspuna.

En Júdas skal passa að gefa þér koss á kinn um leið og hann sér þig næst – til að forðast annan níð sem þennan.

Comment af Hanna Borg a.k.a. Júdas

Láttu systur mína vera Björn…

Comment af JR

„Sannleikurinn er skringileg skepna, jafnvel skringilegri en uppspuninn,“ reit Byron lávarður í frásögn sinni af Don Juan.

Ekki hræðast að horfast í augu við sannleikann. Þeim sem það gera er ráðlagt að heimsækja aðrar vefsíður. Því hér verður sannleikurinn – og aðeins sannleikurinn – hafður í fyrirrúmi.

Ég ætla ekki að bera brigður á gjörðir Hönnu Borgar. Ég ráðlegg henni öðru fremur að líta í eigin barm til að forða annarri viðlíka uppákomu.

Comment af bjornbragi

Ég get kannski varpað ljósi á staðreyndir í þessu máli. Ég var staddur á Kaffibarnum umrætt kvöld og náði mynd af öllu saman. Á henni sést greinilega hvernig Hanna hefur spúið lifri og lungum og liggur að því búnu örmagna í ælu sinni.

http://i85.photobucket.com/albums/k75/gerk2239/vomit.jpg

Comment af Ingvi Nemó




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>