Bjornbragi’s Weblog


Viðar Jónsson: Ég er betri maður í dag
júní 7, 2008, 7:42 pm
Flokkað undir: Menn með stór typpi, Viðtal

Image and video hosting by TinyPic
„Ég meika þig ekki,“ segir Viðar Jónsson, verkfræðinemi og starfsmaður Kaupings. Ég sit við hliðina á honum á heimili hans og tek viðtal við hann á meðan við fylgjumst með leik Tyrklands og Portúgal á Evrópumótinu. „Við erum í love/hate sambandi. Ég elska þig í dag,“ segir hann aðspurður um hvers vegna hann bauð mér til sín. „En ég hata þig þegar þú ert svangur og erfiður. Og þegar þú tekur meira en ég í fótapressu,“ bætir hann við.

Hvernig kynnist þú mér?
„Þú lagðir mig í einelti í 8. bekk. Ef ég á að segja eins og er man ég ekki hvernig við urðum vinir.“

Sérðu eftir að hafa byrjað að hanga með mér?
„Nei, mér finnst ég vera betri maður i dag. Ég er samt að reyna að forðast að verða kærastinn þinn eins og þú hefur klárlega í hyggju. Að vera vinur þinn er eins og að vera í sambandi með erfiðri stelpu. Þú hefur samt verið með svo mörgum gaurum að mér finnst ég ekki vera neitt sérstakur.“

Óttastu að ég verði vöðvastæltari en þú?
„Ef ég á að segja alveg eins og er þá óttast ég ekkert meira. Þú ert getinn af birni og svíni og dýrslegt eðli þitt á eftir að koma þér langt. Þú hefur yfirburði gagnvart mér vegna þess að þú ert blanda af bjarndýri og klaufdýri. Þú hefur styrk bjarnarins og seiglu svínsins.“

Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
„Ég ætla að reka fyrirtæki með þér. Við munum sérhæfa okkur í importer / exporter / importer.“

Ef þú fengir einn yfirnáttúrulegan kraft, hvern myndir þú velja?
„Klárlega að geta stoppað tímann. Þá gæti ég sofið eins lengi og ég vil. Komið öllu í verk sem ég þarf að koma í verk.“

Ef þú þyrftir að drepa einn vin þinn, hvern myndir þú drepa og hvernig?
„Leyfðu mer að hugsa. Ég myndi drepa Allan af því að hann er svo lengi á leiðinni hingað (Allan hefur verið væntanlegur í nokkra klukkutíma). Ég myndi gera það með því að taka af honum allan skyndibita.“

Hver er þinn helsti veikleiki útlitslega?
„Gyðinganefið mitt. Ég er með gyðinganef.“

Hvað hefur þú gert til að láta minnahlutahópum líða betur?
„Ég hef hangið með þeim. Hommar, svertingjar og Asíubúar eru allir vinir mínir.“

Ertu hættur að lemja konuna þína?
„Já.“

Hvað er málið með typpið á þér? Hversu stórt er það?
„Þú skrifar þetta ekki. Þegiðu.“

Eitthvað að lokum?
„Say no to racism!“


3 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Þvílík snilld… Virkilega gott framtak að taka svona viðtal… Ég hef svo gaman að mannlífi nefnilega… og mjög góð svör hjá Viðari… en hann er líka svo massaður og með stórt typpi…

kv. J

Comment af JR

Yndislegt og viðamikið viðtal við Viðar (djöfull eru mörg “við” í þessu)… Viðar er nefnilega svo heilsteyptur einstaklingur á allan hátt. Ég tek einnig undir hrós kollega minna um fallegt vaxtarlag hans á allan hátt… Þegar ég hugsa út í það þá er Viðar soldið eins og Kentár (centaur)… geðveikt massaður að ofan og svo vaxinn eins og hestur að neðan…

Comment af K. Sturla

Hello webmaster
I would like to share with you a link to your site
write me here preonrelt@mail.ru

Comment af Alexwebmaster




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>