Bjornbragi’s Weblog


Þegar byssurnar eiga erfitt með að festa svefn
júní 6, 2008, 10:31 pm
Flokkað undir: Vöðvar

Í gær voru vöðvarnir mínir órólegir þegar ég fór að sofa og héldu fyrir mér vöku. Sérstaklega voru byssurnar erfiðar, enda hafði ég verið að refsa þeim um morguninn. Ég þurfti að fá góðan svefn vegna þess að það var lappaæfing í morgun. Það var bara eitt í stöðunni og það var að syngja fyrir þær vögguvísu. Þess vegna song ég, við lagið Sofðu unga ástin mín, fyrir þær eina í einu:

Sofðu unga byssan mín
Úti regnið grætur
Pabbi geymir glútamín
Mysuprótein og kreatín
Á morgun ætlum við að taka fætur

Ég þarf ekki að taka það fram að byssurnar mínar sofnuðu samstundis eins og englar.

Stundum þarf að svæfa þessar elskur


2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Haha…. Ég þyrfti eiginlega að fá þig til þess að syngja fyrir brjósklosið mitt. Það heldur oft fyrir mér vöku.

Ummæli af Allan Sigurðsson

Af öllu því sem þú hefur sagt er þetta það fyndnasta.

Velkominn aftur vinur.

Ummæli af Viðar




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>