Flokkað undir: Vöðvar
Í gær voru vöðvarnir mínir órólegir þegar ég fór að sofa og héldu fyrir mér vöku. Sérstaklega voru byssurnar erfiðar, enda hafði ég verið að refsa þeim um morguninn. Ég þurfti að fá góðan svefn vegna þess að það var lappaæfing í morgun. Það var bara eitt í stöðunni og það var að syngja fyrir þær vögguvísu. Þess vegna song ég, við lagið Sofðu unga ástin mín, fyrir þær eina í einu:
Sofðu unga byssan mín
Úti regnið grætur
Pabbi geymir glútamín
Mysuprótein og kreatín
Á morgun ætlum við að taka fætur
Ég þarf ekki að taka það fram að byssurnar mínar sofnuðu samstundis eins og englar.


Af gefnu tilefni ber að taka fram að Jón Ragnar er ekki huggulegi blökkumaðurinn sem sést í miðjunni á myndinni að ofan – sá með húfuna. Einhverjir hafa haldið að þetta sé Jón Ragnar, en svo er ekki. Jón Ragnar er sá sem er lengst til vinstri á myndinni. Maðurinn í miðjunni er hins vegar tónlistarmaðurinn Wycleff Jean. Með þeim á myndinni er Henk ten Cate, fyrrum aðstoðarþjálfari Chelsea.
Myndin er tekin þegar Jón Ragnar skrifaði undir samning við knattspyrnufélagið Þrótt um að hann myndi vera í kaffisölunni á leikjum liðsins og hjálpa til við tiltektir að þeim loknum. Samningurinn gildir til þriggja ára. Wycleff Jean skrifaði undir samning um að hann muni endurgera tvö stuðningslög Þróttar, lögin „Lifi Þróttur“ og „Hvað er pabbi þinn?“