Það þarf auðvitað ekkert að ræða það hversu góðir þessir þættir eru. En ekki mundi ég að Paul Robinson hefði verið í markinu hjá Kýklópunum. Þetta hefur verið löngu áður en hann kom til Tottenham.
Í dag fékk ég símtal úr númerinu 410-6863 sem, eins og glögglega má sjá, gat ekki boðað gott. Í símanum var kona, sem hafði eftirfarandi að segja:
„Sæll Björn. Ég hringi frá skrifstofu HR. Mér þykir leitt að tilkynna þér að samstarfi HR og CBS (Copenhagen Business School) hefur verið slitið og þar af leiðandi gefst þér ekki kostur á að fara út í skiptinám næsta vetur. Í sárabætur viljum við bjóða þér upp á að sækja helgarnámskeið í Þrándheimi í Noregi. Það er reyndar aðeins dýrara, kostar um 400 þúsund krónur, en innifalið í verðinu er bók og svo verður öllum þátttakendum boðið í bíó að því loknu.“
Þarna var að sjálfsögðu um grín að ræða og var það í boði góðvinar míns, Jóns Ragnars Jónssonar. Þótti mér það sérlega fyndið. Einkum tilboðið um helgarnámskeið í Þrándheimi. Það kom hins vegar flatt upp á mig að heyra að Jón talaði með fullkominni kvenmannsrödd. Svo fullkominni að Höður hinn blindi hefði ekki getað heyrt að um karlmann væri að ræða. Ákvað ég að kanna málið og komst að raun um að Jón gekkst undir kynskiptiaðgerð í Boston í vetur. Ritstjórn þessa bloggs óskar honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann.

Óþekk stelpa Jón brá á leik þegar
hægt var um vik í bankanum.