Bjornbragi’s Weblog


Hvunndagshetjan Bjarki
júní 2, 2008, 7:21 pm
Flokkað undir: Yfirnáttúruleg fyrirbæri

Þessi strákur var með mér í grunnskóla. Hvar hann hefur haldið sig síðan honum lauk veit ég ekki, en þetta er með því öflugra sem ég hef séð.



Björn Bragi tekur fram lyklaborðið
júní 2, 2008, 4:40 pm
Flokkað undir: Samfélag blökkumanna

Í tilefni af því að í þessum mánuði eru fimm ár frá því að kamerúnski knattspyrnumaðurinn Marc Vivien-Foe dó á knattspyrnuvellinum hef ég ákveðið að draga fram lyklaborðið á ný og byrja að blogga. Fyrir fimm árum hætti ég einmitt að blogga af sömu ástæðu og ákvað þá að taka mér fimm ár í að syrgja hann með rafrænum hætti. Nú er hins vegar kominn tími til að gleðjast og lifa.

Image and video hosting by TinyPic
Ég og Bjarni Helgason, vinur minn úr Árbænum, syrgjum meistara Foe. Eins og sjá má fór ég mikið í ljós á þessum tíma enda var í tísku að vera chocko.