Bjornbragi’s Weblog


Addinn: Ég er ekki að þjóna samfélaginu í starfi mínu hjá VÍS
júní 30, 2008, 4:56 pm
Flokkað undir: Hvar ertu nú?

Image and video hosting by TinyPic
Á góðri stundu Addinn tekur því rólega í peysu frá Landsbankanum, sem er að öllum líkindum ekki stolin. Þess ber að geta að ekki er hægt að greina á myndinni hversu vöðvaður Addinn er orðinn í dag.

Hvar ertu nú? er nýr liður á Svínkanum. Þar verður tekið hús á mönnum sem trónuðu eitt sinn á toppi veraldar, en hafa ef til vill verið lítið í sviðsljósinu undanfarin misseri. Þess ber að geta að Kristján Sturla á hugmyndina að þessum lið og fær þakkir fyrir, enda góð. Bæði hugmyndin og Sturlan.

Þegar ég ákvað að byrja með þennan lið var aðeins einn maður sem kom til greina sem fyrsta fórnarlambið: Addinn. Addinn, eða Arnar Stefánsson eins og Þjóðskráin heldur að hann heiti, er skólabróðir minn úr Versló og ákaflega mikill meistari. Hann er fæddur árið 1983 og er líklegur til mikilla afreka í lífinu.

Hvað ertu að gera nákvæmlega núna?
„Ég er að leita mér að íbúð í Köben ásamt því að þykjast vera að vinna við tryggingar.“

Jæja góði. Hvar vinnur þú og hvert er hlutverk þitt?
„Ég er að vinna hjá Vátryggingafélagi Íslands hf. Starf mitt þar að leysa af sérfræðingana í ábyrgðartryggingunum, á meðan þeir skella sér í sumarfrí.“

Veistu eitthvað hvað þú ert að gera? Ertu ekki í raun og veru búinn að spinna þér lygavef og gera fyrirtækið að hálfgerðum leiksoppi?
„Þarna hittirðu naglann á höfuðið. Ég veit minna en ekki neitt hvað ég er að gera. Menn eru að biðja mig um að gera einhverjar starfsábyrgðartryggingar fyrir byggingastjóra, en ég geri þær aldrei. Ég er hérna einungis peninganna vegna.“

En hvers vegna ertu að leita þér að íbúð í köben?
„Ég er að fara í skóla í Lyngby og svo vil ég að sjálfsögðu elta besta vin minn, Björn Braga, sem er að fara í CBS.“

Hvað ertu að fara að læra þar?
„Dönsku og hluta af Service Management.“

Þú ert útskrifaður úr HÍ ekki satt? Hvað lærðir þú þar?
„Ég nam stjórnmálafræði og útskrifaðist með láði, eða það finnst mér allavega.“

Hvað þýðir samt „láði“ eiginlega?
„Veistu það ég veit það ekki. Ég sá þetta í einhverri bíómynd og finnst þetta í raun eiga við allt sem ég geri. Að gera eitthvað með láði hljómar bara vel.“

Þú ert harðgiftur ekki satt?
„Jú, ég er búinn að vera með stúlku sem heitir Anna Vala undanfarin þrjú og rúmlega hálft ár.“ (Innsk. blaðamanns: Kærasta Addans er belgísk og heitir í raun Luftwaffe Guðmundsdóttir.)

Hefur þú verið viðriðinn eitthvað ólöglegt síðan þú útskrifaðist?
„Vá, látum okkur sjá. Ég þarf virkilega að hugsa þetta. Ég hef ekkert verið í skipulagðri glæpastarfsemi ef þú meinar það Neibb, ég held ekki. Verð eiginlega að segja að ég er afar löghlýðinn borgari.“

Þú og Finnur Eiríks ætluðuð alltaf að endurgera kvikmyndina Blade á íslensku. Hvað varð um það?
„Það strandaði eiginlega allt á Jive-num (Innsk. blaðamanns: Jive-inn er Gunnar Hrafn Gunnarsson) og Breka Logasyni. Við vorum komnir með handrit, búnir að redda sverðum og hnífum og meira að segja búnir að ákveða lagalistann í myndinni. En þá varð Gunnar Hrafn aðeins of frægur og Breki var aðeins of töff fyrir þetta verkefni. Meira að segja þú varst búinn að samþykkja að leika eitt illmennið, þannig að það gefur auga leið að þessi mynd hefði verið golden.“

Gætir þú hugsað þér að hætta öllu sem þú ert að gera núna og fara heils hugar í Blade-verkefnið?
„Já, ég gæti það svo sem alveg. Handritið var það solid að það má alveg græða eitthvað á því. Ég meina það er ekki eins og ég sé að þjóna samfélaginu eitthvað í mínu starfi hérna hjá VÍS. Myndi hinsvegar tvímælalaust gera það með myndinni Blað IV.“

Hvað er eftirminnilegast úr versló?
„Það er svo margt maður. Hins vegar eru nokkur atriði sem standa tvímælalaust upp úr. Blakið í íþróttum, Gunnar Hrafn og Helga Björns, Vælið 2003 og Kýpur 2003 þar sem allt gerðist – þá sérstaklega ástarsagan milli Bjargar Valgeirs og Þorvalds og svo Kristínar Bergs og Þormóðs trölls. Og svo spilakvöldið ógurlega heima hjá Gunnari Hrafni þegar hann rak alla út, þar sem hann ætlaði alla leið með kærustunni sinni á þeim tíma.“

Ef þú þyrftir að vera meðlimur í einni nefnd í versló þar til þú ferð á eftirlaun, hvaða nefnd myndi það vera og af hverju?
„Allavega ekki íþró þar sem gengið sem var í henni þegar ég hætti eyðilagði hið góða mannorð sem hún hafði. Ég hugsa að ég myndi segja 12:00, því þá hefði ég ágætt tækifæri til þess að þröngva mínum húmors-hugsjónum upp á Verzlinga um ókomna tíð.“

Hvað fannst þér um mig þegar við vorum í versló? Hugsaðir þú: „Djöfull er Bjöllinn nettur“ eða „hversu athyglissjúkt er þetta fífl?“
„Eiginlega hvorugt. Ég man vel eftir því þegar ég sá þriðjubekkjarmyndina af þér fyrst og ég man greinilega að ég hugsaði með mér að þú værir kannski ekki sá myndarlegast í heimi. En síðan þegar ég sá þig í alvöru þá leistu töluvert betur út, varst eiginlega svolítið sætur. Þegar við byrjuðum síðan að „hanga“, sem er slangur yfir hitting á marmaranum, þá fannst mér þú alltaf frekar nettur. Með fullt af góðum hugmyndum og fyndinn. Alveg þangað til þú bannaðir mér að kalla þig Bjölla, þér fannst það minna þig um of á Böll. En fyrst þú ert byrjaður að kalla þig aftur Bjölla, þá ertu alveg pottþéttur gaur.“

Bannaði ég það einhvern tímann?
„Já, þú varðst alveg brjálaður þegar ég kallaði þig Bjölla. Sagðir mér vinsamlegast að hætta því þar sem þetta hljómaði eins og ég væri að kalla þig böll.“ (Svínkinn efast um þessar fullyrðingar Addans.)

Hugsaðir þú á einhverjum tímapunkti: „Þessi maður er svo ljótur að hann er ekki mennskur. Getur verið að hann sé getinn af ófreskju?“
„Vá, þetta er með fyndnari viðtölum sem hafa verið tekin við mig. Reyndar þegar ég hugsa út í það þá er þetta það eina, en það skiptir ekki öllu. Svarið við spurningunni er klárlega nei þar sem mér finnst þú ekki vera ófríður maður. Útlit þitt ber vott um stolt og glæsileika og ef ég vissi ekki að þú værir getinn af mönnum myndi ég segja að þú hefðir í þér, hvort í senn, glæsileika kentársins og krúttleika Harry Potter. Hvað stoltið varðar, þá myndi ég giska á að þú hefðir verið getinn af þessum tveimur aðilum einhvers staðar í Frakklandi, þar sem Frakkar eru afar stolt þjóð.“

Eitthvað að lokum?
„Já, ég vona eiginlega að við getum hist ofar. Þú varst einhvern tímann að tala um lunch. Þú varst reyndar fullur en mjög einlægur. Þú varst sumsé að tala um lunch með mér, Hauki og Gunna Jive þegar hann væri á landinu. Svar mitt er já, Björn Bragi. Ég væri alveg til í lunch og við ættum í alvöru að gera þetta. Skemmtikveðja, Al-Addinn“



Hugvekja um fríðleika leikmanna Man Utd
júní 27, 2008, 1:02 pm
Flokkað undir: Uncategorized

Ég vil þakka þeim þúsundum manna, kvenna og barna sem hafa skrifað mér og sagt mér hvað ég sé æðislegur og beðið mig um blogga meira. Án ykkar væri þetta einskis virði. Sérstakar þakkir fær Jón Ragnar, sem hefur farið fremstur í flokki í að lofsama mig.

Gaman að segja frá því að ég var á Laugavegi í gær þegar lítill drengur, á að giska 8-9 ára gamall, vatt sér upp að mér og sagði: „Báðir foreldrar mínir dóu úr kreppunni og ég bý á götunni. Stundum fæ ég ekkert að borða dögunum saman og ég er illa þjáður af berklum. En eftir að ég fór að lesa bloggið þitt þarf ég engar áhyggjur að hafa og ég er meira að segja búinn að gleyma því hvað foreldrar mínir hétu.“ Eins og gefur að skilja höfðu þessi orð mikil áhrif á mig og gerðu mér ljóst að ég þarf að blogga ennþá meira.

En annars ætlaði ég bara að koma á framfæri skemmtilegum fótboltabrandara. Fólk þarf kannski að hafa áhuga á ensku knattspyrnunni til þess að hafa gaman af honum og ekki skemmir fyrir að kunna nokkur orð í enskri tungu:

Sir Alex Ferguson has promised two new faces will be brought in to Old Trafford next season. Carlos Tevez has been promised one and Gary Neville has asked for the other.
Image and video hosting by TinyPic
Fallegt barn Carlos Tevez var valinn Herra Hagaskóli í 9. og 10. bekk.



Garðar Stefánsson setur upp járntjald fyrir leik Rússa og Spánverja
júní 26, 2008, 4:41 pm
Flokkað undir: Knattspyrna

Image and video hosting by TinyPic
Í herklæðum Garðar á tindi Elbrus í sovésku treyjunni, en þar hefur hann hreiðrað um sig í sumar. Sovétmenn leika einir þjóða í ullarpeysu og hettupeysu innundir.

„Það er vissulega gaman að fylgjast með velgengni Sovétmanna og hruni vesturríkjanna í Evrópukeppninni. Það má með sanni segja að sigur minna manna yfir Hollendingum hafi verið svar Rússa við eldflugnavarnarkerfi Bandaríkjanna“,“ segir Garðar Stefánsson, harðlínukommúnisti og einarður stuðningsmaður Rússa á Evrópumótinu í knattspyrnu. Hann hlakkar mikið til viðureignar Rússa og Spánverja í kvöld og hefur mikla trú á sínum mönnum. „Ég spái því að Sovétmenn taki þetta í framlengingu 2-1.“

Járntjaldið var hamingjutjald
Fari Rússar með sigur af hólmi bíða þeirra Þjóðverjar í úrslitunum, en þjóðirnar hafa löngum eldað grátt silfur saman. „Ef við töpum fyrir Þjóðverjum þá er ekki hægt að útiloka innrás í landið, þar sem við munum endurheimta Austur-Þýskaland,“ segir Garðar ákveðinn, en býst þó ekki við að til þess muni koma. „Sovétmenn vinna EM!“ fullyrðir hann.

Garðar hefur verið mikið viðriðinn stúdentapólitíkina í Háskóla Íslands og er, sem fyrr segir, róttækur vinstri öfgamaður. Á meðal þess sem hann hefur beitt sér fyrir er að járntjaldið verði „reist“ að nýju og sundurliðuð Sovétríkin sameinuð að nýju.

„Mér finnst járntjaldið ekki vera nógu góð lýsing á þeim dásamlegu hlutum sem áttu sér stað á árunum 1945-1991 í Austur-Evrópu. Frekar myndi ég nota orðið Hamingjutjaldið þar sem sósílismi felur aðallega í sér að jafna mun og losa okkur við þá firringu sem hin vestrænu illu öfl hafa komið í kring. Enda erum við að verða vitni að endalokum kapítalismans í þessum töluðum orðum. Hækkun á matarverði og hátt eldsneytisverð er eitthvað sem Sovetríkin sáu fyrir og höfðu lausn á. Hver var þessi lausn Sovétríkjanna, þú spyrð mig? Jú, að útrýma verðum! Hvað annað?!“ segir Garðar.

Arshavin er hinn nýi Khusainov
Aftur að knattspyrnunni. Þegar Garðar er spurður hvort Rússneska liðið eigi í dag leikmann á borð við hinn 164 sentímetra háa Galimzyan Khusainov, sem sló í gegn á HM 1962 OG 1966, er hann fljótur til svars. „Það er klárlega Andrei Arshavin, leikmaður Zenit St. Petersburg. Hann er eftilvill lítið eitt hærri en Khusainov, en það má rekja til byltingar í landbúnaðarframleiðslu Sovétríkjanna sem átti sér stað frá 1975-1985,“ segir hann og æpir svo: „Áfram Gosudarstvenny gimn Rossiyskoy Federatsii.“ Eftir umfangsmikla rannsóknarvinnu kom í ljós að það er þjóðsöngur Rússa.

Að lokum liggur beinast við að spyrja Garðar spurningarinnar sem brennur á allra vörum: Er Stalín á lífi? „Stalín er á lífi, í hjörtum allra rétthugsandi manna!“ svarar hann að bragði.

Image and video hosting by TinyPic
Ungur Stalín Andrei Arshavin reynir að ritskoða fagn áhangenda á EM með því að sussa á þá. Hann verður í eldlínunni í kvöld.



Haukur Harðarson: „Ég hef þurft að líða háðsglósur og niðurlægingu“
júní 14, 2008, 11:02 am
Flokkað undir: Viðtal

Image and video hosting by TinyPic
Annarlegar hvatir Haukur líkir eftir samförum á ankannalegan máta.

Ég sit í fundarherbergi Árvakurs á móti vinnufélaga, skólabróður og vini mínum – allt í einum og sama manninum, Hauki Harðarsyni. Ég kynntist Hauki fyrst þegar hann kom upp að mér á bjórkvöldi í Sjálfstæðisheimilinu á Seltjarnarnesi árið 2002, þegar við vorum báðir í Versló, og hóf að sleikja sig upp við mig. Ég spurði sjálfan mig að því hvaða frík þetta væri eiginlega og hefði ekki getað á mér heilum tekið, hefði ég vitað að sex árum síðar þyrfti ég enn að horfa á smeðjulegt skítaglottið hans. Haukur er í laugardagsviðtali Svínkans.

Nú ert þú 70 kíló og aldrei kallaður annað en „Hræið.“ Hefur þú í hyggju að fara að borða mat og rífa í stál á næstunni, eða ætlar þú að láta okkur horfa upp á þennan visnaða skrokk mikið lengur?
„Það fer eftir því hvort ég ákveð að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, en ef ég geri það þarf ég náttúrulega að skera mig niður um 10 kíló í viðbót. Ég er mjög hræddur við allar þessar ráðleggingar þínar og tel að þær kunni mjög vondri lukku að stýra. T.d. að það sé í lagi að borða mjög mikið af kökum svo lengi sem maður tekur kremið af þeim. Ég hef tekið eftir því að þú reynir að dæla í mig hvers kyns viðbjóði sem þú finnur þannig að ég tek öllu sem þú segir með fyrirvara. En hins vegar sér maður árangur þinn og þá kitlar að fara að rífa aðeins í járnin.“

Af hverju mætir þú aldrei í vinnuna? Hvar ertu og hvað ertu að gera þegar þú hringir þig inn veikan þrisvar í viku?
„Í fyrsta skiptið var ég með sárasótt. Daginn sem þú „fórst til tannlæknis“ var ég bara aðframkominn af spennu, enda er þetta streitumikið starf og sá mér ekki fært að mæta.“

Hvernig var bragðið af rassgatinu á Baldri Kristjáns þegar þú sleiktir það alla kosningavikuna í Versló vorið 2004, þegar hann var að bjóða sig fram til forseta?

„Örugglega betra en bragðið af handarkrikanum á Hannesi sem þú sleiktir.“

Ertu svona smeðjulegur að eðlisfari af því að þú heldur að það muni skila þér einhverju?

„Þetta er ástæðan fyrir því að ég kalla þig Hypocritus! En það hefur ekki skilað neinu hingað til þannig að ég ætti kannski að hætta að vera svona smeðjulegur.“

Nú hefur þú aldrei náð árangri í neinu. Nægir að nefna háðuglega útreið sem þú fékkst í forsetakosningunum í Versló og þá staðreynd að þú ert ömurlegur í fótbolta þrátt fyrir að hafa æft frá því að þú lærðir að labba. Hvers vegna heldur þú að þetta sé?
„Frá því að ég kynntist þér hef ég náttúrulega þurft að líða háðsglósur og niðurlægingu. En snýst þetta ekki bara allt um að vera með?“

Hvernig finnst þér að vera neyddur til að hanga með mér allt árið um kring af því að við erum saman í skóla, vinnum saman og eigum sömu kærustu?
„Það er farið að verða verulega íþyngjandi. En þú ert þeim hæfileikum gæddur að geta verið fyndinn öðru hverju og það heldur manni gangandi í gegnum erfiðustu stundirnar. Það eru ákveðnir hlutir sem hafa mjög fráhrindandi áhrif. Til dæmis þegar þú gleymir að taka Staksteinana* þína, sem eru náttúrulega geðlyfin þín, og byrjar að hóta nauðgunum í gríð og erg. Einnig eftir að þú byrjaðir að lyfta og ert stöðugt að hóta því að kremja mig til dauða. Þetta eru meðal annars ástæðurnar fyrir því að ég hringi mjög sjaldan í þig eftir vinnu.“

Image and video hosting by TinyPic
Hamingjusamir Haukur ásamt unnusta sínum, Grími Helga Gíslasyni, á Eurovision í Serbíu í vor. Þeir trúlofuðu sig um síðustu jól.


Ertu svona undirgefin tæfa að eðlisfari eða er ég sá eini sem drottnar gjörsamlega yfir þér?

„Þú ert náttúrulega sá allra geðveikasti maður sem ég hef hitt á ævi minni og það er kostulegt að fylgjast með aðförum þínum. Mér finnst mjög líklegt að þú ritstkoðir meira en helminginn af þessu samtali og hreinlega búir til setningar þannig að lesendur munu eiga mjög erfitt með að átta sig á því hvað kemur frá mér og hvað ekki.“

Hefur þú verið suguþræll fyrir aðra en mig?

„Nú geri ég ráð fyrir að hinn almenni lesandi Svínkans viti ekki hvað suguþræll er. En nei, þú ert ekki sá eini. Þetta er fínn aukapeningur.“

Hvað finnst þér um mig?
(Hér brestur Haukur í grát og tekur sér stund til að jafna sig.) „Það er ómetanlegt að eiga þig að. En stjörnusturlaðri mann hef ég aldrei á ævi minni hitt. Þú ert þó greinilega hræddur við árangur þar sem þú heldur með Fylki og Tottenham í fótboltanum. En það segir kannski ekki allt um þinn innri mann.“

Eitthvað að lokum?

„Ég bið alla lesendur Svínkans að taka því sem hér stendur með fyrirvara. Og þrátt fyrir ummæli mín um handarkrika Hannesar áðan hef ég ekkert á móti þeim góða pilti. Hann er frábær drengur og hefði örugglega orðið góður forseti, eins og ég.“

Image and video hosting by TinyPic
Í gervi virðulegs manns Haukur leigði sér jakkaföt í von um að vera tekinn alvarlega. Kannanir sýna að innan við 10% þjóðarinnar ber virðingu fyrir honum.

*Staksteinar eru piparmyntur frá Mogganum, sem undirritaður er sólginn í.

Tekið skal fram að viðtalinu hefur ekki verið breytt eða það ritskoðað á nokkurn hátt. Laugardagsviðtöl Svínkans eru, og munu alltaf verða, sönn og ófölsuð.



Leyndarmál Selmu
júní 12, 2008, 1:34 pm
Flokkað undir: Ha???

Halldór Gröndal félagi minn er að vinna með fötluðum í sumar og var að segja mér svolítið ótrúlega merkilegt sem ég ætla að deila með ykkur, kæru lesendur Svínkans.

hhg says:
manstu þegar ég sagði þér að ég væri með hóp í vinnuskólanum sem yrði að starfa með fötluðum
hhg says:
á fatlaðraheimilinu er einstaklingur sem lék Selmu í Jón Oddi og Jón Bjarna, grínlaust
hhg says:
og það skrýtna er að þessi einstaklingur heitir Geiri og er 30 ára karlmaður
hhg says:
selma var leikin af fötluðum strák

Þetta hljóta að vera tíðindi vikunnar, eða jafnvel aldarinnar.

Nonni Olli & Nonni Bjalli



Magavöðvamaður ei meir
júní 11, 2008, 10:35 am
Flokkað undir: Bakkus, Vöðvar

Image and video hosting by TinyPic

Viðar Jónsson, sem fyrr á tímum gekk undir nafninu Magavöðvamaðurinn og gat sér frægðar fyrir einstaklega lögulegan líkama, má svo sannarlega muna sinn fífil fegurri. Viðar hefur lagt lóðin á hilluna en leitast þess í stað við finna týnda drauma í flöskubotnum. Hefur hann ekki haft erindi sem erfiði. Þessi mynd var tekin af Viðari um helgina og sýnir svo ekki verður um villst að litli drengurinn með magavöðvana hefur villst af leið.



Vöðvatröll í röngum störfum
júní 10, 2008, 11:20 pm
Flokkað undir: Topp 10, Vöðvar | Tags:

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað það eru mörg störf sem maður gæti ekki með nokkru móti séð fyrir sér að maður, sem er gjörsamlega afmyndaður af vöðvum, gæti sinnt. Þá er ég ekki að meina af líkamlegum ástæðum, heldur vegna staðalímynda samfélagsins. Hef ég tekið saman topp 10 lista yfir þau störf sem vöðvatröll myndu passa verst inn í.

#10 Hárgreiðslumeistari
#9 Nefndarritari Menntamálaráðuneytisins
#8 Starfsmaður í nammisölu í bíóhúsi
#7 Seðlabankastjóri
#6 Biskup Íslands
#5 Aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
#4 Fiðluleikari
#3 Forseti Íslands
#2 Taugaskurðlæknir
#1 Náunginn sem flytur táknmálsfréttir

Það væri gaman að sjá fleiri hugmyndir…

Fleximus Maximus
Fleximus Maximus Taugaskurðlæknir sem leikur á fiðlu í frístundum.



Helgin í molum
júní 9, 2008, 10:00 am
Flokkað undir: Helgi Björns

Image and video hosting by TinyPic
Kristján Valdimarsson Myndin er tekin á Kaffibarnum.

Fram til þessa hafa stuðningsmenn Fylkis sungið fyrir Kristján Valdimarsson: „Stjáni er æði, æði, æði… Stjáni varnarjaxl!“ En á Kaffibarnum söng fólk: „Stjáni er með sæði, sæði, sæði… sæði á jakkanum.“

Fólki þótti einnig skrýtið að hann skyldi vera í Fylkistreyjunni við jakkafötin sem hann var í.

Hanna Borg má muna sinn fífil fegurri, en henni var hent út af Kaffibarnum fyrir að æla á barborðið.

Tóti slapp hins vegar með skrekkinn og fékk að hanga inni á sama stað þrátt fyrir að hafa bitið fleiri en eina stelpu þannig að á sást.

Hann varð sér hins vegar til minnkunar þegar upp komst að hann hafði sjálfur saumað Prada og Armani merki á fötin sem hann var í, en þau voru raunverulega keypt í Europris.

Af hverju ekki leigubílaröð og zero mávar?

Viðar, sem þjáist af andhverfri anorexíu, er hættur að drekka en ætlar þess í stað að borða svo mikið að hann hljóti vímu af þegar hann fer út á lífið.

Jóhann Alfreð er tilbúinn að leyfa mér að ríða honum í rass fyrir 100 þúsund kall en neitar að gefa það upp til skatts. Af þeim sökum get ég ekki gengið að tilboðinu, enda er ég löghlýðinn.



Viðar Jónsson: Ég er betri maður í dag
júní 7, 2008, 7:42 pm
Flokkað undir: Menn með stór typpi, Viðtal

Image and video hosting by TinyPic
„Ég meika þig ekki,“ segir Viðar Jónsson, verkfræðinemi og starfsmaður Kaupings. Ég sit við hliðina á honum á heimili hans og tek viðtal við hann á meðan við fylgjumst með leik Tyrklands og Portúgal á Evrópumótinu. „Við erum í love/hate sambandi. Ég elska þig í dag,“ segir hann aðspurður um hvers vegna hann bauð mér til sín. „En ég hata þig þegar þú ert svangur og erfiður. Og þegar þú tekur meira en ég í fótapressu,“ bætir hann við.

Hvernig kynnist þú mér?
„Þú lagðir mig í einelti í 8. bekk. Ef ég á að segja eins og er man ég ekki hvernig við urðum vinir.“

Sérðu eftir að hafa byrjað að hanga með mér?
„Nei, mér finnst ég vera betri maður i dag. Ég er samt að reyna að forðast að verða kærastinn þinn eins og þú hefur klárlega í hyggju. Að vera vinur þinn er eins og að vera í sambandi með erfiðri stelpu. Þú hefur samt verið með svo mörgum gaurum að mér finnst ég ekki vera neitt sérstakur.“

Óttastu að ég verði vöðvastæltari en þú?
„Ef ég á að segja alveg eins og er þá óttast ég ekkert meira. Þú ert getinn af birni og svíni og dýrslegt eðli þitt á eftir að koma þér langt. Þú hefur yfirburði gagnvart mér vegna þess að þú ert blanda af bjarndýri og klaufdýri. Þú hefur styrk bjarnarins og seiglu svínsins.“

Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
„Ég ætla að reka fyrirtæki með þér. Við munum sérhæfa okkur í importer / exporter / importer.“

Ef þú fengir einn yfirnáttúrulegan kraft, hvern myndir þú velja?
„Klárlega að geta stoppað tímann. Þá gæti ég sofið eins lengi og ég vil. Komið öllu í verk sem ég þarf að koma í verk.“

Ef þú þyrftir að drepa einn vin þinn, hvern myndir þú drepa og hvernig?
„Leyfðu mer að hugsa. Ég myndi drepa Allan af því að hann er svo lengi á leiðinni hingað (Allan hefur verið væntanlegur í nokkra klukkutíma). Ég myndi gera það með því að taka af honum allan skyndibita.“

Hver er þinn helsti veikleiki útlitslega?
„Gyðinganefið mitt. Ég er með gyðinganef.“

Hvað hefur þú gert til að láta minnahlutahópum líða betur?
„Ég hef hangið með þeim. Hommar, svertingjar og Asíubúar eru allir vinir mínir.“

Ertu hættur að lemja konuna þína?
„Já.“

Hvað er málið með typpið á þér? Hversu stórt er það?
„Þú skrifar þetta ekki. Þegiðu.“

Eitthvað að lokum?
„Say no to racism!“



Þegar byssurnar eiga erfitt með að festa svefn
júní 6, 2008, 10:31 pm
Flokkað undir: Vöðvar

Í gær voru vöðvarnir mínir órólegir þegar ég fór að sofa og héldu fyrir mér vöku. Sérstaklega voru byssurnar erfiðar, enda hafði ég verið að refsa þeim um morguninn. Ég þurfti að fá góðan svefn vegna þess að það var lappaæfing í morgun. Það var bara eitt í stöðunni og það var að syngja fyrir þær vögguvísu. Þess vegna song ég, við lagið Sofðu unga ástin mín, fyrir þær eina í einu:

Sofðu unga byssan mín
Úti regnið grætur
Pabbi geymir glútamín
Mysuprótein og kreatín
Á morgun ætlum við að taka fætur

Ég þarf ekki að taka það fram að byssurnar mínar sofnuðu samstundis eins og englar.

Stundum þarf að svæfa þessar elskur